Minningartónleikar
Elly Vilhjálms
MIÐASALA ER HAFIN - KAUPA MIÐA HÉR
Minningartónleikarnir verða glæsilegir í alla staði. Einstakur ferill Ellyjar verður rifjaður upp í máli og myndum, tónlist og myndskeiðum. Laugardalshöllinni verður breytt í tímavél og gestir munu eiga kost á því að hverfa aftur til 7. áratugarins í eina kvöldstund. Ættingjar Ellyjar standa að tónleikunum ásamt Senu og munu ýmsir samferðamenn og vinir Ellyjar stíga á stokk.
Guðrún Gunnarsdóttir, einn helsti merkisberi minningar Ellyjar undanfarin ár skipar veigamikið hlutverk í tónleikahaldinu sem og Margrét Blöndal. Sú síðarnefnda hefur nýlokið við að skrifa bók um ævi Ellyjar og verður hún í försölu á tónleikunum á sérstöku tilboðsverði.
Allar helstu söngkonur landsins koma fram á tónleikunum. Meðal þeirra stjarna sem stíga á svið eru:
Andrea Gylfadóttir
Diddú
Eivör
Ellen Kristjánsdóttir
Guðrún Gunnarsdóttir
Kristjana Stefánsdóttir
Lay Low
Ragga Gísla
Sigga Beinteins
Þessi föngulegi hópur verður dyggilega studdur af Agli Ólafssyni,
Björgvini Halldórssyni, Gissuri Páli og Stefáni Hilmarssyni, auk
hrynsveitar, blásara og strengjasveitar.
Heiðursgestir
á tónleikunum eru þrír samferðarmenn Ellyjar, þeir Raggi Bjarna, Jón
Páll Bjarnason og Guðmundur Steingrímsson. Samúel J. Samúelsson sér um
útsetningar og hljómsveitarstjórn. Gréta Salóme stjórnar
strengjasveitinni, sem verður eingöngu skipuð konum.
Leikstjóri
er Gunnar Helgason, Móeiður Helgadóttir sér um sviðsmynd og Ellen
Loftsdóttir um búninga. Handrit og lagaval var í höndum Gunnars,
Guðrúnar, Margrétar og Samúels.
Kynnir er Margrét Blöndal.
MIÐASALA ER HAFIN - KAUPA MIÐA HÉR