Það er óhætt að segja að þessi þriðji leikur Uncharted seríunnar þurrki út öll landamæri milli tölvuleikja og kvikmynda, en leikurinn inniheldur fjöldan allan af stórbrotnum atriðum sem kalla fram adrenalínflæði, bullandi spennu og helling dularfullum atburðum. Ofan á þetta allt saman leggst fullkomin netspilun sem er sambærileg við það besta sem þekkist í dag.
Í Uncharted 3 fá leikmenn tækifæri til að henda sér að fullum krafti í gegnum alvöru ævintýri þar sem Drake og félagar leita að dularfullri borg sem kölluð er Atlantis sandsins.
Leikurinn inniheldur:
Sprengjuhlaðinn söguþráð sem inniheldur stórbrotnari atriði en áður.
Netspilun sem jafnast á við það besta í dag. Leikmenn geta spilað saman á móti eða með hvor öðrum og upplifað þannig helstu atriði og borð leiksins.
Nathan Drake getur tekið á óvinum sínum á fjölbreyttari hátt en áður. Nú getur kappinn slegist við marga andstæðinga í einu og notað hluti úr umhverfinu til hjálpar. Leikurinn inniheldur einnig betra kerfi þegar Drake þarf að læðast um.
Glæný grafíkvél sem getur birt mun flottari atriði en áður og sést það vel í hreyfingum á sandi, reyk, vatni og fleiru.
Algjör bylting.
|