Einn eftirsóttasti listamaður heims er á leið til Íslands. Staðreyndin er sú að hann verður á Íslandi þann 16. júlí, hann verður með tónleika í Höllinni og þetta verður ógleymanlegt. Á því leikur engin vafi, enda er hann nú þegar orðinn þekktur fyrir magnaða tónleika og einstaka sviðsframkomu. Miðasala hefst 29. maí kl. 10 á Miði.is. Aðeins um 5 þúsund miðar verði í boði og ekki er hægt að halda aukatónleika.
Meira...
Smárabíó í samstarfi við Stöð 2 Sport heldur áfram að ryðja brautina í beinum útsendingum frá heimsklassa íþróttaviðburðum í þrívídd. Nú er komið að úrslitaleik meistaradeildarinnar, en eins og kunnugt er slást Bayern Munchen og Borussia Dortmund um þennan eftirsótta titil og fer viðureignin fram laugardaginn 25. maí á Wembley Stadium í London. Miðasala hefst á fimmtudaginn kl. 10.
Meira...
Miðasalan á Jeff Dunham hófst með hvelli kl. 10 í morgun. 2.500 miðar voru í boði á fjögur verðsvæði og skemmst er frá því að segja að þegar þetta er skrifað, (innan við tveimur tímum eftir að sala hófst) er orðið uppselt í þrjú svæði; A+, A og C svæði.
Aðeins um 400 miðar eru eftir í B svæði og rjúka þeir nú út. Áhugasamir eru hvattir til þess að hafa hraðar hendur því ekki er ólíklegt að það verði uppseld innan skamms. Það er greinilega ógleymanlegt kvöld í vændum 20. september.
Ekkert lát er á vinsældum gamanleiksins Laddi lengir lífið sem í Hörpu. Frá fyrsta degi hefur selst upp á hverja sýninguna á fætur annarri og var brugðið á það ráð snemma að færa hana í stærri sal til að anna eftirspurn. Þrátt fyrir það selst upp á allar sýningar jafnharðan og hefur því verið ákveðið að taka nú stökkið alla leið upp í Norðurljósin. Tekur sá salur 600 manns í sæti og verður fyrsta sýningin þar laugardaginn 8. júní. Um er að ræða síðustu sýningu fyrir sumarfrí; fyrstir koma, fyrstir fá.
Meira...
Eins og greint hefur verið frá kemur hinn eini sanni Jeff Dunham fram í Laugardalshöllinni 20. september og er stefnt á stærsta grínviðburð Íslandssögunnar. Það tilkynnist hér með að miðasala hefst 2. maí kl. 10 á Miði.is. Eingöngu verður selt í númerið sæti, aðeins 2.500 miðar í boði og um fjögur verðsvæði að ræða. Póstlistaforsala Senu fer svo fram 30. apríl kl. 10, en þá fá allir skráðir meðlimir póst með tengli sem gerir þeim kleift að versla miða samstundis.
Meira...
"Þessi fjárfesting er í takt við fjárfestingarstefnu Kjölfestu, við viljum byggja upp dreift eignarsafn og fjárfesta í fyrirtækjum með góða rekstrarsögu. Við erum stolt af því að fjárfesting í Senu er fyrsta verkefni Kjölfestu og teljum að það séu tækifæri í þeirri þróun sem er að eiga sér stað á afþreyingarmarkaðnum." Segir Kolbrún Jónsdóttir framkvæmdastjóri Kjölfestu. Björn Sigurðsson framkvæmdastjóri Senu tekur í sama streng og telur það mikinn styrk fyrir félagið að fá Kjölfestu inn í eigendahópinn.
Meira...
Jeff Dunham er vinsælasti grínisti Bandaríkjanna samkvæmt Time Magazine og einn áhrifamesti skemmtikraftur á vesturlöndum að mati Forbes. Dunham á milljónir aðdáenda um allan heim og efni frá honum hefur notið gífurlegra vinsælda, hvort sem um er að ræða upptökur á YouTube eða sölu á DVD diskum. Stefnt er á ekkert minna en stærsta grínkvöld sögunnar í Höllinni föstudaginn 20. september.
Meira...
Það er allt að verða vitlaust í miðasölu gamanleiksins Laddi lengir lífið, sem frumsýndur verður í Hörpu á föstudag í næstu viku. Enn og aftur er orðið uppselt á allar sýningar sem í boði eru og því opnum við nú fyrir 3 nýjar sýningar. Áður hafði sýningin verið færð í stærri sal til að anna eftirspurn. Laddi, Siggi og Kalli þakka enn og aftur fyrir ótrúlegar viðtökur. Miðasala fer fram á Miði.is, Harpa.is og í miðasölu Hörpu.
Meira...
Ekkert lát er á hasarnum i miðasölunni á Laddi lengir lífið. Allar sýningar eru nú uppseldar þannig að kl 12 í dag verða 3 nýjar sýningar settar í sölu. Og sýningin er komin í stærri sal til að anna eftirspurn. Laddi, Kalli og Siggi eru þakklátir fyrir viðtökurnar.
Meira...
Miðasala á Laddi lengir lífið hófst með látum kl 12 í dag. Þegar þetta er skrifað, 30 mínútum síðar, eru sýningarnar 7 sem í boði voru, svo til uppseldar. Tveimur sýningum hefur verið bætt við strax og sýningin verður færð í stærri sal til að anna eftirspurn.
Meira...
Laddi snýr aftur í frumsömdum einleik sem mun afhjúpa hliðar á Ladda sem hafa ekki sést áður. Mennirir á bak við sýninguna eru engir aukvisar; Karl Ágúst Úlfsson sér um handritið og Sigurður Sigurjónsson leikstýrir. Í sameiningu semja vinirnir þrír söguþráðinn og efniviðurinn er Laddi, líf hans og ferill og fyrirbærið húmor.
Meira...
Hinn eini sanni Gunnar Nelson mætir Jorge Santiago í risabardaga laugardaginn 16. febrúar í London. Smárabíó sýnir beint frá bardaganum og gefst því tækifæri til að sjá hann á alvöru bíótjaldi í hámarks mynd- og hljóðgæðum. Þeir sem kaupa miða fyrir 13. febrúar geta unnið ferð til London á bardagann sjálfan.
Sena kynnir með stolti; Pale Green Ghosts, nýju plötuna með John Grant sem kemur út 11. mars. Af því tilefni er blásið til útgáfutónleika í Silfurbergi Hörpu laugardaginn 16. mars. Miðasala hefst 1. febrúar kl 12 á Harpa.is og Miði.is; aðeins 700 miðar í boði og þeir sem eru skráðir á viðburðapóstlista Senu geta tryggt sér miða degi áður en almenn sala hefst.
Meira...