Um Senu
blondud-mynd

Þín upplifun er okkar ástríða

Allan daginn, alla daga, allan ársins hring erum við að hlusta, horfa og spila. Við heyrum splunkunýja tónlistarsköpun og gamla standarda og hlustum um leið á það sem Íslendingar vilja heyra. Við horfum á kvikmyndir daginn út og inn og sjáum á sama tíma hvað annað fólk vill sjá. Við spilum leiki, lesum bækur og skoðum nýjustu leikföngin og um leið tökum við eftir því hvað kveikir forvitnina hjá öðrum. Við vinnum með skilningarvitin, tjáninguna og frábærar móttökur fólksins í landinu.


  • pirahna

Drápsfiskarnir eru mættir aftur

Piranha 3-DD frumsýnd á miðvikudag

7. jún. 2012 Kvikmyndir

Piranha 3DD er sjálfstætt framhald myndarinnar Piranha 3D og er skemmtileg blanda af gríni, spennu og vel tenntum fiskum. Eins og þeir muna sem sáu fyrri myndina þá olli jarðskjálfti því að stórar glufur mynduðust í botni Viktoríuvatns með þeim afleiðingum að hinir forsögulegu piranha-fiskar tóku að streyma upp í vatnið.

Piranha 3DD er sjálfstætt framhald myndarinnar Piranha 3D og er skemmtileg blanda af gríni, spennu og vel tenntum fiskum. Eins og þeir muna sem sáu fyrri myndina þá olli jarðskjálfti því að stórar glufur mynduðust í botni Viktoríuvatns með þeim afleiðingum að hinir forsögulegu piranha-fiskar tóku að streyma upp í vatnið. Þeir átu allt sem hreyfðist og því miður fyrir suma strandgestina þá lentu þeir á matseðlinum. En ef einhver hélt að vandinn hefði verið leystur þá kemur annað í ljós þegar fiskakvikindunum tekst einhvern veginn að komast inn í vinsælan vatnsskemmtigarð þar sem hundruð manns eru saman komin til að gera sér glaðan dag. Enn á ný kemur til kasta lögreglustjórans Fallons að finna leið til að hemja þennan ófögnuð áður en hann étur alla gestina og skemmir ekki bara fjölskyldustemninguna heldur setur allt efnahagslíf strandbæjarins á hliðina.

Þeir Ving Rhames og Christopher Lloyd eru þeir einu af aðalleikurum fyrri myndarinnar sem snúa aftur í framhaldinu. Í stað þeirra Elizabeth Shue og Richards Dreyfuss koma nú m.a. þau Katrina Bowden (valin kynþokkafyllsta kona veraldar 2011 af tímaritinu Esquire), Danielle Panabaker og Gary Busey auk þess sem gamli góði David Hasselhoff leikur sjálfan sig í myndinni. Myndin var tilnefnd til verðlauna sem besta hrollvekjan á Teen Choice-kvikmyndahátíðinni í Kaliforníu síðastliðið sumar.

  
Piranha 3DD Official Trailer #1 - Ving Rhames Movie (2012) HD
Piranha 3DD Official Trailer

Hafðu samband

Hringdu í okkur

591 5100

Við svörum milli 09:00 og 17:00
alla virka daga.

Sendu fyrirspurn

Til að fyrirbyggja ruslpóst: