Um Senu
blondud-mynd

Þín upplifun er okkar ástríða

Allan daginn, alla daga, allan ársins hring erum við að hlusta, horfa og spila. Við heyrum splunkunýja tónlistarsköpun og gamla standarda og hlustum um leið á það sem Íslendingar vilja heyra. Við horfum á kvikmyndir daginn út og inn og sjáum á sama tíma hvað annað fólk vill sjá. Við spilum leiki, lesum bækur og skoðum nýjustu leikföngin og um leið tökum við eftir því hvað kveikir forvitnina hjá öðrum. Við vinnum með skilningarvitin, tjáninguna og frábærar móttökur fólksins í landinu.


Kvikmyndir

Fyrirsagnalisti

The Internship - 11. jún. 2013 Kvikmyndir

Frumsýnd á morgun

Tveir sölumenn af gamla skólanum missa vinnuna þegar söluvörur þeirra fara alfarið í netsölu og ákveða í framhaldinu að sækja um störf hjá Google þrátt fyrir takmarkaða tölvuþekkingu.Vince Vaughn og Owen Wilson leiða saman hesta sína á ný í þessari bráðfyndu gamanmynd sem frumsýnd er á morgun, 12. júní.

Meira...

After Earth frumsýnd á morgun - 4. jún. 2013 Kvikmyndir

Nýjasta kvikmynd leikstjórans M. Night Shyamalan frumsýnd á morgun

Cyper Raige (Will Smith) er fremur styggur faðir og harður í horn að taka. Hann brotlendir ásamt syni sínum Kitai (Jaden Smith) á plánetunni Jörð, þúsund árum eftir að hún var skilin eftir í rústum.  Myndin er frumsýnd á morgun miðvikudag í Smárabíói, Háskólabíói, Laugarásbíói, Egilshöll og Borgbaríói Akureyri.

Meira...

Blue is the Warmest Colour - 4. jún. 2013 Kvikmyndir

Tímamótakvikmynd um lesbískar ástir hlýtur Gullpálmann í Cannes

Það er með stolti sem við tilkynnum að kvikmyndin Blue is the Warmest Color (La Vie D'Adèle Chapitres 1 et 2) verður sýnd á vegum Græna ljóssins í haust. Myndin hlaut Gullpálmann á Cannes hátíðinni fyrir skömmu og skaut leikstjórinn Abdellatif Kechiche þannig meðal annars Coen bræðrum ref fyrir rass. Hér er á ferðinni epísk og djörf ástarsaga sem fjallar um ástarsamband tveggja ungra kvenna. Kvikmyndin verður frumsýnd í Háskólabíói í október. Fylgist með!

Meira...

Epic - 29. maí 2013 Kvikmyndir

Frumsýnd á föstudag

Epic er stórbrotið og einstaklega litríkt ævintýri um unga stúlku sem fyrir töfra verður agnarsmá og kemst um leið í kynni við skógarverur sem eru okkur mannfólkinu að öllu jöfnu ósýnilegar. Epic er nýjasta teiknimynd Óskarsverðlaunahafans Chris Wedge sem gerði fyrstu Ice Age-myndina árið 2002 og síðan hina frábæru Robots árið 2005. Myndin er frumsýnd á föstudag í Smárabíói, Háskólabíói, Laugarásbíói, Egilshöll, Álfabakka og Borgarbíói Akureyri.

Meira...

The Numbers Station - 8. maí 2013 Kvikmyndir

Niðurtalningin er hafin.

Leigumorðingi fær það verkefni að vernda unga konu gegn öflum sem vilja hana dauða, hvað sem það kann að kosta. Myndin er eftir danska leikstjórann Kasper Barfoed og um leið fyrsta myndin sem hann gerir á ensku. Íslendingurinn Óttar Guðnason er kvikmyndatökumaður myndarinnar. Myndin er frumsýnd á föstudaginn í Smárabíói, Háskólabíói og Borgarbíói Akureyri. sem og VOD-leigum Símans og Vodafone.

 
Meira...

Evil Dead frumsýnd - 30. apr. 2013 Kvikmyndir

Klassíska hrollvekjan frá 1981 vakin upp!

Það er óhætt að fullyrða að endurgerð þessarar sígildu hryllingsmyndar hafi verið beðið með mikilli eftirvæntingu. Ekki spillir fyrir að hún er frá þeim sömu og gerðu upprunalegu klassíkina, en framleiðendur myndarinnar eru aðalmennirnir á bak við þá fyrri; leikstjórinn Sam Raimi og aðalleikarinn Bruce Campbell. Myndin fór beint á toppinn í USA og hefur hlotið lof gagnrýnenda. Myndin er frumsýnd á föstudaginn í Smárabíói, Háskólabíói og Borgarbíói Akureyri.

Meira...

Kapringen (A Hijacking) - 9. apr. 2013 Kvikmyndir

Frumsýnd á föstudaginn í Háskólabíói

Kapringen er enn ein gæðaspennumyndin frá Norðurlöndum. Kvikmyndin fjallar um danska flutningaskipið MV Rosen sem sómalskir sjóræningjar ræna á Indlandshafi. Við taka skelfilegar aðstæður þar sem þunnur þráður skilur á milli lífs og dauða. Leikstjórinn Tobias Lindholm gerði áður verðlaunamyndin R, sem og handritið að Borgen og Jagten. Kapringen er byggð á sönnum atburðum og hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda.

Meira...

Admission - 3. apr. 2013 Kvikmyndir

Frumsýnd á föstudag

Kona sem starfar við að samþykkja eða hafna umsóknum um nám við Princeton-háskólann lendir í vanda þegar piltur sem hana grunar að sé hennar eigin sonur sækir um. Admission er bráðskemmtileg mynd með þeim Tinu Fey og Paul Rudd í aðalhlutverkum, en leikstjóri er Paul Weitz sem á að baki myndir eins og American Pie, About a Boy, In Good Company og Being Flynn svo einhverjar séu nefndar af mörgum góðum.

Meira...

On the Road frumsýnd - 2. apr. 2013 Kvikmyndir

Frumsýnd á föstudaginn í Háskólabíói og Bíó Paradís

Græna ljósið frumsýnir On the Road, nýjustu mynd Walters Salles á föstudaginn, í Bíó Paradís og Háskólabíói. Leikstjórinn heimsótti Ísland í tilefni frumsýningar kvikmyndarinnar The Motorcycle Diaries sem sló svo sannarlega í gegn og sópaði til sín tilnefningum og verðlaunum. On the Road er byggð á bókinni klassísku eftir Jack Kerouac og fjöldi stórleikara fer á kostum í litríkum hlutverkum.

Meira...

The Croods - 27. mar. 2013 Kvikmyndir

Frumsýnd á morgun

The Croods er ný þrívíddarteiknimynd frá Dreamworks um forsögulega fjölskyldu sem neyðist til að halda af stað í sitt fyrsta ferðalag þegar hellirinn þeirra hrynur saman. The Croods er eftir þá Kirk De Micco og Chris Sanders sem saman og hvor í sínu lagi eiga að baki nokkrar þekktustu teiknimyndir síðari ára eins og Aladdin, Mulan, The Lion King, Lilo og Stich og How To Train Your Dragon svo einhverjar séu nefndar af mörgum.

Meira...

Ókeypis í bíó! - 22. mar. 2013 Kvikmyndir

Íslensk kvikmyndahelgi verður haldin nú um helgina um allt land. Af því tilefni verða átta íslenskar perlur sýndar í Háskólabíói um helgina og verður ókeypis inn á þær allar, á meðan húsrúm leyfir.

Meira...

Safe Haven - 21. mar. 2013 Kvikmyndir

Ung kona á flótta finnur skjól í litlum bæ þar sem hún tekur sér nýtt nafn og verður ástfangin. En fortíðin eltir hana uppi. Meira...

Jagten (The Hunt) - 19. feb. 2013 Kvikmyndir

Getur lygi orðið að sannleika?  Sagt er frá leikskólakennaranum Lucasi sem er ranglega sakaður um að misnota barn í leikskólanum. Í kjölfarið verður hann skotmark múgsefjunar. Thomas Vinterberg færir okkur enn eitt meistaraverkið.

Meira...

Beyond the Hills frumsýnd - 13. feb. 2013 Kvikmyndir

Hér er á ferðinni nýja myndin eftir rúmenska leikstjórann Cristian Mungio, sem vakti heimsathygli fyrir meistaraverkið 4 Months, 3 Weeks and 2 Days fyrir nokkrum árum. Myndin er í senn átakanleg og dularfull og lætur engan ósnortinn.

Meira...
Nitro Circus

Nitro Circus 3D sýnd einu sinni - 7. feb. 2013 Kvikmyndir

Bíóviðburður ársins; aðeins ein sýning

Smárabíó kynnir bíóviðburð ársins; aðeins ein sýning á einni rosalegustu kvikmynd sem gerð hefur verið.  Í myndinni sýna sýna brjáluðu adrenalínfíklarnir í Nitro Circus hópnum hvernig hægt er að tvinna saman jaðarsporti og afþreyingu á eftirminnilegan hátt. Miðasala er hafin og aðeins 400 miða eru í boði.
Meira...

Hafðu samband

Hringdu í okkur

591 5100

Við svörum milli 09:00 og 17:00
alla virka daga.

Sendu fyrirspurn

Til að fyrirbyggja ruslpóst: