Ef þú myndir blanda saman Skyrim og God of War yrði útkoman Reckoning: Kingdoms of Amalur. Leikurinn er stórbrotinn hlutverkaleikur sem inniheldur risavaxinn heim og öflugan söguþráð sem leikmenn eru meira en 300 klukkutíma að klára. Inní spilunina blandast svo öflugt bardagakerfi sem minnir helst á bardagana í God of War leikjunum þar sem hraði og hasar ráða ríkjum.
Að gerð þessa leiks kom hópur fagmanna í gerð hlutverkaleikja, en söguþráðinn skrifaði R.A. Salvatore sem hefur skrifað ófáar Dungeons og Dragons bækur, grafíkin er í höndum Todd McFarlane, en hann bjó meðal annars til Spawn kvikindið. Sá sem hefur svo yfirumsjón með gerð leiksins er Ken Rolston sem hefur unnið að flestum Elder Scrolls leikjunum. Þessi hreinlega getur ekki klikkað.
591 5100 Við svörum milli 09:00 og 17:00 alla virka daga