Eftir Ár
Sena frumsýnir stórmyndina Australia annan í jólum
Sena frumsýnir Australia á föstudaginn annan í jólum - 26. des í Smárabíói, Regnboganum, Háskólabíói,og Borgarbíói Akureyri. Þetta er epísk stórmynd í anda Titanic, Out of Africa og Gone with the Wind eftir meistar Baz Luhrman sem sló í gegn með Moulin Rouge.
Myndin gerist á árunum 1939-42, þegar vindar seinni heimstyrjaldar leggjast yfir Ástralíu og segir frá breskri hefðarfrú Lady Ashley (Nicole Kidman) sem ferðast til Ástralíu til að leita uppi eiginmann sinn og finna búgarðinn þeirra með sölu í huga. Þegar hún kemur þangað finnur hún mann sinn dauðann og búfénaðinn, yfir 2000 nautgripi, á reiki á landi á stærð við Belgíu!
Hún neyðist til að taka höndum saman við kúreka nokkurn, Dover (Hugh Jackman) til að verja búgarðinn og koma skikkan á búfénaðinn. Myndin fylgir skötuhjúunum eftir næstu 4 árin þar sem þau leggja í það stórvirki að reka nautgripina yfir hrjóstrugt landslag Ástralíu m.a. eyðimörkina, stormasamt ástarsamband þeirra, loftárásir Japana á Darwin árið 1942 og munaðarlausan frumbyggjadreng sem breytir lífi þeirra. Rómantísk stórmynd sem enginn má missa af!
Sena HEIMSfrumsýnir The Day the Earth Stood Still
Sena HEIMSfrumsýnir The Day the Earth Stood Still á föstudaginn 12. des í Smárabíói, Regnboganum, Háskólabíói, Sambíóunum Álfabakka, Borgarbíói Akureyri og Sambíóunum Keflavík. Um er að ræða magnaða stórmynd í anda Independence Day byggð á einum besta sci-fi þriller allra tíma frá 1951 um innrás geimvera á jörðina. Með aðalhlutverk í nýju og stórbættu útgáfunni fer Keanu Reeves og honum til halds og traust er Jennifer Connelly og Jaden Smith (sonur Will Smiths)!
Kristján Jóhannsson og Sena í eina sæng
Kristján Jóhannsson og Sena hafa gert með sér samstarfssamning til næstu 5 ára um víðtækt samstarf á Íslandi. Sena tekur að sér útgáfu á gömlu og nýju efni Kristjáns og auk þess mun Bravó, tónleika- og umboðsarmur Senu, sjá um allt tónleikahald og umboðsmennsku fyrir Kristján næstu árin.
Laddi 6-tugur: 15 þúsund eintök uppseld hjá útgefanda
Laddi 6-tugur kom út á DVD fyrir tæpum tveimur vikum og hafa viðbrögðin verið með miklum ólíkindum. 15.000 eintök voru framleidd og fyrirfram var búist við að slíkt magn myndi duga fram yfir jól og vel það, enda seljast DVD diskar að meðaltali í 3 - 4.000 eintökum og þau tilfelli þar sem diskar hafa selst í meira en 15.000 eintökum hérlendis eru sennilega teljandi á fingrum annarrar handar.
Sena kynnir endurútgáfu á uppistandinu Ég var einu sinni Nörd.
Sena og Jón Gnarr kynna endurútgáfu á uppistandinu Ég var einu sinni Nörd. Jón Gnarr skaust upp á stjörnuhimininn með þessum frábæra einleik sem slóg rækilega í gegn á fjölunum fyrir um 10 árum síðan og svo aftur á VHS spólu. Þessi frábæra skemmtun hefur ekki fengist á DVD í áraraðir og vildu Sena og Jón Gnarr bæta úr því.
Þessi endurútgáfa er komin með nýtt útlit og inniheldur fullt af aukaefni þar á meðal glænýtt efni (tekið upp 2008) með Jóni Gnarr og Pétri Jóhanni Sigfússyni þar sem þeir félagar líta yfir farinn veg.
Sena frumsýnir Zack and Miri Make a Porno
Sena frumsýndi á föstudag gamanmyndina Zack and Miri Make a Porno í Smárabíói, Laugarásbíói og Borgarbíói Akureyri. Seth Rogen (Superbad/Knocked Up/Pineapple Express) fer á kostum í Zack and Miri sem er leikstýrð af Kevin Smith (Clerks, Dogma ofl) og er þetta án nokkurs vafa fyndnasta gamanmynd ársins þrátt fyrir margar góðar!
Laddi 6-tugur komin út á DVD!
Eins og kunnugt er hefur sýningin Laddi 6-tugur gengið fyrir fullu húsi í Borgarleikhúsinu frá frumsýningu í febrúar 2007. Uppselt hefur verið á tæplega 130 sýningar í röð, samfleytt í tvö ár og gestir eru orðnir hátt í 70 þúsund. Um skeið hafa síðustu sýningarnar verið uppseldar langt fram í tímann og lokasýning er 13. desember.
Senu og Bravó er það mikil ánægja að tilkynna hér með um útgáfu sýningarinnar á einstaklega veglegum DVD diski. Hefur disksins verið beðið með þó nokkurrar eftirvæntingar og er það því gleðilegt að geta staðfest að honum er dreift í allar helstu verslandir landsins í dag.
Yfir 90 mínútur af aukaefni
Mikið hefur verið lagt í gerð DVD disksins og inniheldur hann meðal annars yfir 90 mínútur af spennandi aukaefni:
- Baksviðs: Tökuliðið kíkti baksviðs, ræddi við aðstandendur sýningarinnar, fylgdist með undirbúningi og horfði á heila sýningu hinum megin við tjaldið - þar sáu þeir Ladda skipta um búninga og gervi með ógnarhraða í tvo tíma.
Haukur Morthens - Með blik í auga
Glæsileg þreföld ferilsútgáfa kemur út föstudaginn 28. nóvember.
Haukur Morthens er án efa einn dáðasti söngvari Íslands fyrr og síðar og skipar hann merkan sess í huga íslenskra tónlistarunnenda. Á þessari glæsilegu ferilsútgáfu er að finna 66 lög frá öllum ferli Hauks og meðal laga má nefna eftirtalin gullkorn: Með blik í auga, Kaupakonan hans Gísla í Gröf, Bjössi kvennagull, Lóa litla á Brú, Rock-calypso í réttunum, Hæ Mambo, Frostrósir, Þrek og tár, Capri Katarína, Brúnaljósin brúnu, Til eru fræ, Ó, borg mín borg, Í landhelginni (12 mílur), Simbi sjómaður ásamt fjölmörgum öðrum.
"Með blik í auga” er stærsta og yfirgripsmesta safn af lögum Hauks Morthens sem út hefur komið og gefur góða mynd af ævistarfi þessa mikla hæfileikamanns.
Minningartónleikar Vilhjálms Vilhjálmssonar (CD/DVD)
10. og 11.október síðastliðin fóru fram minningartónleikar Vilhjálms Vilhjálmssonar í Laugardalshöll og slógu þeir algjörlega í gegn. Alls seldust 12.000 miðar á þá þrennu tónleika sem haldnir voru. Nú er komin út geislaplata og mynddiskur með þessum glæsilegu tónleikum. Hugmyndina af tónleikunum fengu þeir Magnús Kjartansson og Jón Ólafsson og fengu þeir til liðs við sig Senu og Bravó! sem sáu svo um skipulagningu á tónleikunum.
Fram komu alls 18 söngvarar og þar á meðal var Jóhann Vilhjálmsson, sonur Vilhjálms Vilhjálmssonar. Jóhann söng Lítill drengur sem faðir hans hafði einmitt samið um hann við mikla hrifningu áhorfenda. Þess má geta að þetta var í fyrsta skipti sem Jóhann hafði sungið opinberlega. Aðrir söngvarar eru Björgvin Halldórsson Bubbi Morthens, Diddú, Egill Ólafsson, Ellen Kristjánsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Helgi Björnsson, Jónsi, KK, Laddi, Lay Low, Páll Rósinkranz, Ragnheiður Gröndal og Stefán Hilmarsson. Sérstakir gestir eru svo Helena Eyjólfsdóttir og Þorvaldur Halldórsson.
Raggi Bjarna – Lögin sem ekki mega gleymast
Ferill Ragnars Bjarnasonar er einstakur. Hann hefur verið að í nærri 60 ár, nýtur
jafnvel meiri vinsælda nú en nokkru sinni áður og sendir frá sér nýjar plötur
af meiri krafti en nokkru sinni fyrr á ferlinum. Nýja geislaplatan „Lögin sem ekki mega gleymast“ ber
nafn með rentu. Hér hefur Raggi valið 15 lög sem öll eiga sér sess í hans lífi, bæði í
einkalífinu og tónlistarlífinu. Þau eiga það sameiginlegt að hann hefur sungið
þau oft á sínum langa feril en aldrei áður gefið þau út.
Píanósnillingurinn Agnar Már stýrði upptökum við gerð plötunnar
og með Ragga syngja Ellen Kristjánsdóttir, Kristjana Stefánsdóttir, Jónsi og Bjarni Arason.
Sena frumsýnir Nick and Norah´s Infinite Playlist í bíó
Sena gamanmyndina Nick and Norah´s Infinite Playlist með Michael Cera (úr Superbad og Juno) í aðalhlutverki. Myndin verður frumsýnd í Smárabíói, Regnboganum og Borgarbíói Akureyri. Þess má geta að myndin er með 72% fresh á Rottentomatoes!
Sólarhringur í New York og allt getur gerst...Týndar guggur og topptónlist!
Æðisleg gamanmynd sem kemur á óvart og inniheldur frábær lög.
Sena frumsýnir teiknimyndina Ígor
Sena frumsýnir er teiknimyndina Ígor í Smárabíói, Háskólabíói, Regnboganum, Laugarásbíói og Borgarbíói Akureyri. Um er að ræða frábæra teiknimynd fyrir alla fjölskylduna með íslensku tali. Íslensk talsetning var í höndum Stúdíós Sýrlands og í leikstjórn Jakob Þórs Einarssonar og allir okkar fremstu leikarar ljá raddir sínar í myndinni m.a. Björgvin Franz Gíslason, Örn Árnason, Jóhann Sigurðarson, Jakob Þór Einarsson og Jóhanna Vigdís Arnardóttir.
Stefán Hilmarsson – Ein handa þér
Stefán Hilmarsson rær nú á ný mið og sendir í dag frá sér sína fyrstu
jólaplötu. Það má þó segja að Stefán sé í vissum skilningi kominn
fullan hring, því hann vakti fyrst athygli landsmanna þegar hann söng
um jólahjól fyrir ríflega tveimur áratugum. En síðan þá hefur Stefán
sáralítið sinnt jólalögunum fyrr en núna. Á plötunni kennir ýmissa
grasa og stíla og hún er drekkhlaðin gullfallegum, grípandi og
vönduðum lögum sem í framtíðinni eiga vafalaust mörg eftir að fylla
flokk sígildra jólalaga. Með Stefáni syngja dúetta þau Ellen
Kristjánsdóttir, Helgi Björnsson og Björgvin Halldórsson. Platan er í
senn hátíðleg og hæfilega „poppuð“ og ætti að hæfa jólabörnum á öllum
aldri og af öllum gerðum. Gleðileg jól.
Ríkið
Drepfyndnir sketsaþættir frá hinum sömu og færðu okkur Fóstbræður, Svínasúpuna og Stelpurnar. Þættirnir gerast á skrifstofu, á ansi óræðum og vægast sagt hallærislegum tíma. Þar er allt verulega kjánalegt; húsgögnin, vinnutækin, klæðaburðurinn, hárgreiðslan og skeggið.
Stafakarlarnir á plötu!
Plata byggð á metsölubókinni um Stafakarlana er komin út hjá Senu. Um er að ræða geisladisk með 35 lögum eftir Bergljótu Arnalds þar sem hver bókstafur fær sitt eigið lag. Tónlistardiskurinn er hugsaður til að kenna börnum lestur og auka orðaforða, en auk laganna er sagan lesin í heild sinni. Þá er víða komið við í tónlistarheiminum og fá krakkarnir að kynnast hinni ýmsu tegund tónlistar um leið og þau syngja með og þjálfa sig í lestri.
Gleði Gleði! Frábærir leikir að detta inn!!
Það er heldur betur óvæntur glaðningur að detta inn fyrir helgina. Sena getur staðfest að 4 af bestu leikjum vetrarins detta í búðir fyrir helgina og ættu því tölvunördar landsins og aðrir spilarar að geta skottast út í næstu versluna og nælt sér í eintak.
Þeir leikir sem um ræðir eru Call of Duty: World at War, en það er framhaldið af leik ársins í fyrra. Næstur er sá leikur sem fólk hefur beðið spennt eftir í árabil en við erum jú að tala um LittleBigPlanet, leik sem er að fá um 96% í dóma og er það ferskasta sem komið getur inn í leikjaflóruna og á klárlega eftir að koma á fjölmörgum yndælum fjölskyldu og vinastundum í minninguna. Þá er það Football Manager 2009 sem dettur einnig inn, leikur sem allir Manager sjúklingar verða að eignast og geta nú loks svalað þörfinni. Og svo að lokum er það Motorstorm Pacific Rift, en hér er á ferðinni einhver magnaðasti drullukappaksturleikur allra tíma.
Það er því stórkostleg helgi framundan og óskum við ykkur því góðrar skemmtunar :)
ÞEGAR TÖLVULEIKIR OG FÓTBOLTI SAMEINAST
Í dag hefst nýtt tímabil í sögu knattspyrnustjórnunar þar sem knattspyrnufélagið Everton hefur skrifað undir samning við framleiðendur Football Manager 2009 leikjanna um að verða fyrsta félagið sem notar tölvuleik sem hluta af starfseminni.
Everton er fyrsta liðið til að skrifa undir samning við Sports Interactive, framleiðendur Football Manager leikjanna, en sá samningur veitir David Moyes og starfsliði hans til að nota gagnagrunn leiksins (sem inniheldur 370,000 leikmenn og aðila í knattspyrnuheiminum). Everton mun geta með þessu skoðað yfir 20,000 lið í meira en 50 löndum, en gagnagrunnur leiksins er unninn af aðdáendum liðanna og telur fjöldi þeirra meira en 1000 manns um allan heim.
Jól í Rokklandi kemur út 18.nóv
Óli Palli í Rokklandi er mikill jóla-álfur og þykir gaman þegar líða fer að
jólum og hann getur farið að spila lög úr jóla-plötuskápnum sínum, en þar
kennir ýmissa grasa.
Í inngangi efnismikils bæklings sem fylgir með Jólum í Rokklandi segir Óli
Palli m.a.:
,,Á hverju ári þegar jólin nálgast hitti ég fólk sem spyr mig útí hvenær við
á Rás 2 ætlum að byrja að spila jólalögin, en reglan hefur verið sú
undanfarin ár að við byrjum 1. desember.
Margir bíða spenntir eftir að útvarpið hefji upphitun fyrir jólin en svo eru
þeir líka til sem segjast ekki þola þetta jólalagadrasl á útvarpsstöðvunum
sem ætli allt lifandi að drepa um leið og nóvember sé hálfnaður.
Það má vel vera að það sé þannig einhversstaðar, en alls ekki hjá okkur á Rás 2.
Sjálfur á ég í kringum 150 jólaplötur og hef lagt talsvert á mig til að hafa
uppi á sumum þeirra en ég hef sérstakan áhuga á jólamúsík sem ég á erfitt
með að útskýra. Ég á allskyns jólaplötur en skemmtilegast finnst mér þegar
rokkið og jólin renna saman á einhvern hátt. Ólíklegustu listamenn hafa
gefið út jólaplötu eða a.m.k. eitt og eitt jólalag.
Sálin hans Jón míns - Hér er draumurinn
Þann 18. nóvember sendir hljómsveitin Sálin hans Jóns míns frá sér veglegan útgáfupakka. Útgáfan heitir „Hér er draumurinn“ og er einhver veiga- íburðarmesta hljóð- og mynddiskaútgáfa sem gerð hefur verið hérlendis. Í raun er um þrjár útgáfur að ræða; Í fyrsta lagi þriggja hljóðdiska útgáfu sem inniheldur 45 þekktustu lög sveitarinnar. Í öðru lagi er um að ræða tveggja mynddiska útgáfu (DVD) þar sem annar diskurinn geymir 90 mínútna heimildamynd um Sálina, en hinn diskurinn öll myndbönd sveitarinnar. Í þriðja lagi er um að ræða sjö diska viðhafnarútgáfu í takmörkuðu upplagi; fjóra hljóðdiska og þrjá mynddiska (DVD).
Strangers
Mynd þessi er byggð á sönnum atburðum og túlkar á áhrifaríkan hátt hvernig það að opna dyrnar fyrir ókunnugum getur leitt til ólýsanlegrar skelfingar. Liv Tyler og Scott Speedman fara á kostum í óvenjulegri spennumynd
Pétur W. Kristjánsson - Algjör sjúkheit (2CD)
18. nóvember kemur í verslanir glæsileg tvöföld safnplata með öllum helstu lögunum sem Pétur söng á sinni viðburðaríku ævi. Pétur lagði sjálfur grunninn að lagavali nokkru áður en hann lést árið 2004. Farið er yfir allan ferils Péturs allt frá sólóferlinum 1970 til plötunnar „Gamlar myndir“ sem kom út eftir andlát Péturs. Stór hluti laganna er að koma út í fyrsta skiptið á geislaplötu eða 12 talsins og einnig eru á safnplötunni 8 lög sem ekki hafa verið útgefin áður. Þetta gera 20 lög af 42 sem eru á plötunni.
100 Erlend jólalög á 5 geislaplötum
Safnplötupakkinn „100 Erlend jólalög á 5 geislaplötum“ kemur út föstudaginn 14. nóvember. Á plötunum 5 er að finna öll helstu erlendu jólalögin með flytjendum sem allir þekkja. Á meðal flytjenda eru: Band Aid, Elvis Presley, John Lennon og Yoko Ono, Dean Martin, Boney M., Cliff Richard, Bing Crosby, The Jackson 5, The Beach Boys, Stevie Wonder, Johnny Cash og fleiri og fleiri.
Þess má geta að safnplatan „100 íslensk jólalög“ er komin í tvöfalda platínusölu sem er 20.000 eintök en platan kom út fyrir jólin 2006.
Jólasveinarnir í Dimmuborgum
Langt norður í landi á stað sem heitir Dimmuborgir og er í Mývatnssveit búa dálítið magnaðir karlar. Þú hefur kannski komið þangað? En þú sást þá ekki ? það er bara vegna þess að þú hefur ekki horft nægilega vel í kringum þig.
Big Stan
Klaufalegi glæpamaðurinn Big Stan (Rob Schneider) er dæmdur í fangelsi og bíður afplánunar, en hann er dauðhræddur við fangelsisvistina og óttast að sér verði nauðgað. Hann fær því meistara í sjálfsvarnaríþróttum (David Carradine) til að kenna sér Kung-Fu.
Nýjasta plata Buff er komin út
Nýjasta plata Buff er komin út og er hún samnefnd sveitinni. Um er að ræða 11 laga plötu með þessari vinsælu hljómsveit en hún inniheldur lög eins og Núna mun ég vaka, Þakklæti, Í gær og Enginn nema þú. Hafa öll þessi lög slegið í gegn og er lagið Enginn nema þú eitt mest spilaða lag landsins í dag. Platan var að mestu tekin upp á litlum sveitabæ á Jótlandi í Danmörku í janúar og svo hafa meðlimir Buffsins verið að vinna hana í smáskömmtum hér heima. Er þetta þriðja plata þeirra félaga. Liðsmenn Buff eru Bergur Geirsson, Einar Þór Jóhannsson, Hannes Heimir Friðbjarnarson, Pétur Örn Guðmundsson og Stefán Örn Gunnlaugsson.
Hinn íslenzki Þursaflokkur og Caput (CD+DVD)
Upptaka frá frábærum tónleikum sem haldnir voru í Laugardalshöllinni 23. febrúar fyrr á þessu ári. Öll helstu lög Þursa í stórkostlegum flutningi Þursa og Caput hópsins. Í pakkanum er geislaplata með 16 lögum frá tónleikunum og einnig fylgir með mynddiskur sem inniheldur tónleikana í heild sinni. Í tilefni tónleikanna var gefinn út kassi með heildarsafni Þursanna og var kassanum einkar vel tekið, bæði af gagnrýnendum sem og aðdáendum Þursa. Öll hönnun kallast á við svarta kassann og eru einkar glæsilegar en umbúðirnar eru rauðar að lit.
BOND Í BÍÓ!!!
Daniel Craig snýr aftur sem 007 í Quantum of Solace 22. myndinni um njósnari hennar hátignar en hann fór á kostum í hinni mögnuðu Casino Royale sem blés löngu tímabæru lífi í þennan frábæra myndaflokk. Í fyrsta sinn í sögu Bond myndanna er beint framhald á milli Casino Royale og Quantum of Solace og hefst söguþráður nýju myndarinnar örfáum mínútum eftir að sú síðasta endaði. Myndin er frumsýnd í Smárabíói, Regnboganum, Háskólabíói, Laugarásbíói, Borgarbíói Akureyri og á Selfossi og í Keflavík og enginn má láta þessa frábæru spennumynd í lífseigasta kvikmyndabálki sögunnar framhjá sér fara.
Manstu gamla daga 1960 - 1969 (2CD)
Manstu gamla daga 1960 – 1969 kemur út 7.nóv. Hér er á ferðinni framhald af safnplötunni „Manstu gamla daga?“ sem innihélt vinsæl lög frá árunum 1952 til 1959 og var vel tekið. Nú er tekinn fyrir sjöundu áratugurinn og inniheldur þessi safnplata vinsæl lög frá árunum 1960 til 1969. Hér að neðan er lagalisti plötunnar „Manstu gamla daga? 1960 til 1969“
Baggalútur sendir frá sér plötuna Nýjasta nýtt!
Á morgun 5.nóvember mun hinn goðsagnakenndi Baggalútur senda frá sér sína fjórðu hljómskífu, Nýjasta nýtt! Hér er á ferð ákaflega vönduð 15 smellna
gleði- og samkvæmisskífa af bestu gerð sem lætur engan ósnortinn.
Hljómskífan inniheldur einvörðungu flunkuný, frumsamin lög með íslenskum textum – og er innblástur að mestu sóttur til 7. og 8.
áratuga síðustu aldar. Valinkunnir hljóðfæraleikarar leika á skífunni, bæði íslenskir og útlenskir.
Sérstakir gestir eru rauðbrystingurinn rokksjúki; Eiríkur Hauksson og hin angurværa Sigríður Thorlacius. Hljómskífunni fylgir æsispennandi samkvæmisspil, ætlað þvísemnæst allri fjölskyldunni.
Bubbi og Stórsveit Reykjavíkur
Á morgun þriðjudaginn 4.nóvember kemur út upptaka frá tónleikum Bubba Morthens og Stórsveitar Reykjavíkur sem fram fóru 4. og 5 janúar á þessu ári. Um er að ræða bæði mynd- og geisladisk (CD/DVD). Hugmyndina að tónleikunum fékk Bubbi og hafði hann gengið með hana í ár áður en hann hafði samband við Stórsveitina sem sagði strax já takk og var hafist handa að útsetja lög Bubba fyrir Stórsveitina. Alls rötuðu 17 lög á þessa útgáfu.
Ekki voru það bara lögin hans Bubba sem voru í sparifötunum á tónleikunum því að kóngurinn sjálfur Bubbi Morthens kom fram í hvítum smóking þessi kvöld. Það var Þórir Baldursson sem færði mörg af bestu lögum Bubba í stórsveitartarbúning með frábærum árangri, eins og heyra má á þessari vönduðu útgáfu.
Sena frumsýnir Quarantine
Sena frumsýnir spennutryllinn Quarantine í Smárabíói, Laugarásbíói og Borgarbíói Akureyri í dag. Um er að ræða eina svakalegastu hrollvekjuspennumynd seinni ára. Þann 11. mars 2008 var íbúðarblokk í Los Angeles innsigluð af yfirvöldum. Íbúarnir hafa ekki sést síðan! Engar upplýsingar eða vitni fyrr en núna!
Myndin er stranglega bönnuð innan 16 ára og alls ekki fyrir viðkvæma!
Hér er draumurinn
Heimildamyndin „Hér er draumurinn“ eftir Jón Egil Bergþórsson verður frumsýnd í Háskólabíói föstudaginn 31. október og verður sýnd þar alla helgina. Myndin, sem er í fullri bíómyndalengd, fjallar um Sálina hans Jóns míns sem fagnar 20 ára starfsafmæli í ár. Í myndinni er farið yfir feril sveitarinnar með nýjum viðtölum við hljómsveitarmeðlimi og einnig þá sem fylgt hafa sveitinni í gegnum tíðina. Gríðarlega fjölbreytt myndefni frá ferli sveitarinnar var notað við vinnslu myndarinnar enda er mikið myndefni til ásamt gömlum viðtölum sem kom að góðum notum.
Ávextir, álfar, sjófiskar og spýtukall
Fyrir 10 árum samdi Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson í fyrsta sinn tónlist í söngleik fyrir börn. Það var Ávaxtakarfan en söguna samdi Kristlaug María Sigurðardóttir. Ávaxtakarfan sló í gegn svo um munaði og var raunar sett upp aftur nokkrum árum síðar. Tónlist við söguna um Benedikt búálf fylgdi svo í kjölfarið nokkrum árum síðar og naut sú sýning einnig mikilla vinsælda. Hafið bláa var svo sett upp í Austurbæ árið 2006 og hlaut ma Grímuverðlaunin. Gosi var svo frumsýndur í fyrra í Borgarleikhúsinu en sýningum er einmitt að ljúka nú um mundir eftir að hafa verið í fullum gangi í heilt ár.
Ný plata með Steina
Á morgun miðvikudaginn 29.október kemur út ný plata með hljómsveitinni Steina. Steini eins og flestir muna eftir vann Þorskastríð Cod Music fyrr á árinu og fékk í verðlaun útgáfusamning. Á plötunni sem heitir Human Comfort er að finna 12 lög og texta eftir Steina, 9 splúnkuný og 3 eldri sem komu áður út á fyrstu plötu Steina, Behold (2006). Var ákveðið að hafa þau með á nýju plötunni enda fór lítið sem ekkert fyrir fyrri plötu Steina sem hann gaf sjálfur út. Fyrstu lögin í spilun af plötunni eru Girls Are All the Same og Agnes of God. Hafa þau bæði fengið góða spilun á öllum helstu útvarpsstöðvum landsins en lagið Girls Are All the Same hefur vakið sérstaka athygli.
Jólagestir Björgvins 6.des
Björgvin Halldórsson og félagar hafa ákveðið að láta ekki deigan síga og blása til stórkostlegrar skemmtunar laugardaginn 6. desember í Laugardalshöllinni. Verða þá haldnir í annað sinn stórtónleikarnir Jólagestir Björgvins, en þeir slógu rækilega í gegn í fyrra þegar þrjár hallir seldust upp og tæplega 10,000 manns skemmtu sér konunglega.
Mamma Mia yfir 10.000
Tónlistin úr Mamma Mia hefur selst í yfir 10.000 eintökum á árinu, sem gerir hana söluhæstu plötu ársins. Myndin sjálf er langvinsælasta mynd ársins, en yfir 100.000 manns hafa séð myndina.
Ný plata með AC/DC
Út er komin glæný plata með áströlsku rokksveitinni AC/DC. Platan heitir Black Ice og er fyrsta platan þeirra síðan Stiff Upper Lip kom út árið 2000. Platan inniheldur meðal annars stórsmellinn Rock N Roll Train.
Nýjasta plata Lay Low kemur í verslanir í dag!
Farewell Good Night´s Sleep er nýjasta afurð hinnar frábæru tónlistarkonu Lay Low. Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir gerði samning við Cod Music árið 2006 og fljótlega kom út frumburður hennar Please Don´t Hate me og sló sú plata gjörsamlega í gegn. Hefur platan selst í yfir 10 þús eintökum og er enn að seljast.
The Viking Giant Show
The Viking Giant Show er hugarfóstur Heiðars Kristjánssonar sem er betur þekktur sem Heiðar í Botnleðju. Heiðar byrjaði að vinna að þessari plötu fyrir um þrem árum síðan og sendi fljótlega frá sér lögin Party At The White House og The Cure, bæði vöktu þessi lög mikla athygli. Í dag eru lögin Don´t look into My Lies og My Vision í spilun á helstu útvarpsstöðvum landsins.
Einn af þeim sem hreifst sem mest af þessu verkefni Heiðars er aðalsprauta Queen Of the Stone Age, Josh Homme, en á ferð hans til Íslands 2006 heyrði hann lagið Party At The White House og féll algjörlega fyrir því. Skemmtilegt er frá því að segja að þegar Josh Homme var á leið út á flugvöll vildi hann heyra lagið í síðasta sinn og hringdi í útvarpsmanninn Matta sem þá var í loftinu á einni útvarpsstöðinni. Fékk hann sitt óskalag og fór sáttur af landi brott.
Sena HEIMSfrumsýnir Max Payne
Sena HEIMSfrumsýnir Max Payne á föstudag 17. okt í Smárabíói, Háskólabíói, Sambíóunum Álfabakka og Borgarbíói Akureyri. Um er að ræða magnaðan spennutrylli í anda tölvuleikjanna frægu með Mark Wahlberg í fantaformi. Engin miskunn bara sársauki!
Sena frumsýnir Skjaldbökuna og Hérann
Sena frumsýnir Skjaldbökuna og Hérann á föstudag 17. okt í Smárabíói, Háskólabíói, Regnboganum, Laugarásbíói og Borgarbíói Akureyri. Um er að ræða frábæra teiknimynd fyrir alla fjölskylduna með íslensku tali. Þetta hið klassíka ævintýri um Skjaldbökuna og Hérann í nýrri og skemmtilegri útfærslu. Íslensk talsetning var í höndum Stúdíós Sýrlands og í leikstjórn Jakob Þórs Einarssonar og allir okkar fremstu leikarar ljá raddir sínar í myndinni m.a. Sigurður Sigurjónsson, Jóhann Sigurðarson, Björgvin Franz Gíslason, Sigurður Hrannar Hjaltason, Margrét Eir og Jóhanna Vigdís Arnardóttir.
Saint‘s Row 2 er kominn út!
Þá er leikurinn Saint‘s Row 2 kominn út á PlayStation 3 og Xbox 360, en hér er á ferðinni framhaldið af Saint‘s Row leiknum sem seldist í fleiri milljónum eintaka. Í Saint‘s Row 2 þurfa leikmenn að leiða gengið 3rd Street Saints í bardaga gegn öðrum illskeyttum gengjum og illum stórfyrirtækjum til að ná strætum Stillwater borgar aftur á sitt vald. Leikurinn er gerður af Volition fyrirtækinu, en í Saint‘s Row 2 geta leikmenn breytt nánast öllu og gert það að sínu, tekið þátt í hasarmiklum bardögum, spilað 2 saman í gegnum söguþráðinn eða í 16 manna multiplayer. Þar fyrir utan inniheldur leikurinn óhemjumikið af vopnum og farartækjum.
Gilligill,
Gilligill, flunkuný ellefu laga tímamótabarnaplata er komin út hjá Senu. Platan inniheldur lög og texta eftir Braga Valdimar Skúlason, eða Braga Baggalút. Memfismafían spilaglaða sér um undirleik á hljómskífunni sem er tekin upp af Guðmundi Kristni Jónssyni, töframanninum knáa í Hljóðrita.
Fjölmargir þjóðþekktir og dáðir listamenn syngja og tralla á plötunni; Sigtryggur Baldursson, Magga Stína, Sigríður Thorlacius, Sigurður Guðmundsson, Guðmundur Pálsson, Snorri Helgason, Egill Ólafsson og Björgvin Halldórsson.
Flestir ættu að þekkja lagið Pabbi minn er ríkari en pabbi þinn og er það stórskemmtilega lag að finna á plötunni.
Platan er öllum leyfð en ekki er æskilegt að hlýða á hana oftar en tuttugu sinnum á sólarhring.
Hana-nú með viðhöfn.
Hljómplata Vilhjálms Vilhjálmssonar, Hana-nú kom upphaflega út sumarið 1977. Hún sló fljótlega í gegn og hefur iðulega verið valin meðal allra bestu plötum dægurlagasögu Íslands. Þegar Magnús Kjartansson, upptökustjóri plötunnar fékk fyrir tæpu ári síðan ábendingu um tilvist upptöku áður óþekkts lags með Vilhjálmi frá árinu 1977 rifjaðist upp fyrir honum að þetta lag, Tölum saman, var einmitt hluti af þeim lögum sem í upphafi áttu að mynda plötuna Hana-nú en hafði einhverra hluta vegna heltst úr lestinni á sínum tíma. Þegar betur var að gáð hafði Vilhjálmur sungið lagið á sínum tíma af fullum krafti þótt aðeins hafi verið um prufuupptöku að ræða. Fljótlega fæddist því sú hugmynd að fullvinna lagið nú 30 árum síðar. Að sama skapi kviknaði einnig sú hugmynd að gefa fullunnið lagið út á þeirri plötu sem það átti að tilheyra, Hana-nú. Einnig var ákveðið að nota þetta tækifæri til að laga ýmsa tæknilega hnökra sem voru á Hana-nú plötunni með því hljóðblanda hana að nýju.
MEET BILL
Líf Bills virðist algerlega fullkomið, það er að segja fullkomið klúður. Konan hans heldur við fréttaþul á sjónvarpsstöð staðarins og sjálfur situr hann fastur í ömurlegu starfi í bankanum hjá tengdapabba.
Fólkið í blokkinni
Komin er út tvöfalda geislaplatan Fólkið í blokkinni/Allt í góðu … ásamt nýjum lögum úr blokkinni. Eins og nafnið gefur til kynna geymir hún plöturnar Fólkið í blokkinni frá árinu 2000 og Allt í góðu frá árinu 2004 ásamt 4 nýjum lögum. Tilefni útgáfunnar er frumsýning Borgarleikhússins á söngleiknum Fólkið í blokkinni eftir Ólaf Hauk Símonarson en hann er einnig höfundur allra laganna. Söngvarar á plötunni eru m.a. KK, Eggert Þorleifsson, Hansa, Helgi Björnsson, Heiða, Regína Ósk, Stefán Karl ofl.
DEVIL'S CHAIR
Nick West fer með kærustuna inn í tómt og yfirgefið geðsjúkrahús þar sem þau ætla að neyta fíkniefna. En þegar stúlkan fær sér sæti á stól afskræmist hún og dregst inn í undarlegt svarthol.
LINEWATCH
Cuba Gooding jr. er hér í hlutverki landamæravarðar við landamæri Bandaríkjanna og Mexíkós, sem hefur ekki alltaf verið réttu megin við lögin. Syndir fortíðar skjóta upp kollinum þegar gamli glæpaforinginn hans leitar hann uppi
PROM NIGHT
Fyrir þremur árum varð Donna vitni að því þegar fjölskylda hennar var myrt á hrottafenginn hátt. Í kvöld er útskriftarballið í skólanum og þótt skuggar fortíðarinnar sæki á hana hlakkar hún engu að síður til að fagna framtíðinni með vinum sínum.
WHAT HAPPENS IN VEGAS
Eftir eitt viltasta kvöld á lífsleið þeirra beggja, vakna þau Jack (Ashton Kutcher) og Joy (Cameron Diaz) upp daginn eftir gift og það hvort öðru. Bæði viðurkenna að þetta séu reginmöstök og samþykkja að ógilda giftinguna.
Sena frumsýnir House Bunny
Sena frumsýnir House Bunny á föstudag 10. okt í Smárabíói, Háskólabíói og Borgarbíói Akureyri. Anna Faris (Scary Movies 1-4) leikur kanínu í þessari frábæru gamanmynd frá höfundum Legally Blond sem rekin er af Playboy setrinu fræga og þarf að standa á eigin fótum í hinum harða heimi!
Fyrsta plata Motion Boys
Fyrsta plata Motion Boys sem ber nafnið Hang On kemur út þann 9.október næstkomandi.
Platan inniheldur smáskífurnar Waiting To Happen, Hold Me Closer To Your Heart, Steal Your Love, Queen Of Hearts og nýjasta lagið Five 2 Love.
Útgáfutónleikar Motion Boys verða haldnir á Nasa þennan sama dag 9.október. Þar munu þeir flytja plötuna í heild sinni auk þess sem þeir prufukeyra heimagerðan hljóðgervil í fyrsta skipti opinberlega.
Miðaverð er annars vegar 1500 kr og þá fylgir diskurinn með eða hins vegar 500 kall. Sérstakir gestir á tónleikunum verða Sprengjuhöllin.
Sena frumsýnir Reykjavík-Rotterdam
Sena frumsýnir Reykjavík-Rotterdam á föstudag 3. okt í Smárabíói, Háskólabíói, Laugarásbíói, Borgarbíói Akureyri og í Sambíóunum Selfossi og Keflavík. Þetta er frábær spennumynd í leikstjórn Óskars Jónassonar gerð eftir handrit Arnaldar Indriðasonar og Óskars Jónasonar. Með aðalhlutverk fara Baltasar Kormákur og Ingvar E Sigurðsson en með önnur hlutverk fara Lilja Nótt Þórarinsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Ólafur Darri Ólafsson og Jörundur Ragnarsson. Baltasar Kormákur leikur öryggisvörð og fyrrverandi sjómann sem afplánað hefur fangelsisdóm fyrir áfengissmygl sem berst við að halda fjölskyldu sinni á floti. Honum býðst að fara einn túr enn á flutningaskipi milli Reykjavíkur og Rotterdam en túrinn er vel borgaður. Hann slær til, í þeirri von að koma sér á réttan kjöl en óvæntir atburðir setja strik í reikninginn!
Sena frumsýnir Burn After Reading
Sena frumsýnir Burn After Reading á föstudag 26. sept í Smárabíói, Háskólabíói og Borgarbíói Akureyri. Þetta er nýjasta mynd Cohen bræðra (Fargo, No Country For Old Men) með landsliði leikara í aðalhlutverkum eins og Brad Pitt, George Clooney Frances McDormand, John Malkovich og Tilda Swinton í magnaðri mynd um mislukkaðar persónur sem ætla að fremja hinn fullkoma glæp! Ein besta mynd Cohen bræðra sem fór beint á toppinn í USA og stefnir í að verað stærsta mynd þreirra bræðra!
Pineapple Express slær í gegn!
Nýjasta grín-geggjun Apatow gengisins er heldur betur að slá í gegn hér á landi og hefur þessi svokallaða „bólufreðna“ gamanmynd fengið einróma lof gagnrýnenda og gesta. Rúmlega 4000 gestir lögðu leið sína á þessa mögnuðu gamanmynd um helgina en bara í gær sáu hana rétt um 1000 manns þannig að enn og aftur hitta þessir snillingar í mark með frábærri gamanmynd. Apatow og félagar eru að leggja undir sig Hollywood og heiminn með eftirminnilegum persónum og vel skrifuðum handritum og myndalistinn orðinn glæsilegur á örfáum árum; Superbad, Knocked Up, 40 Year Old Virgin, Forgetting Sarah Marshall, Talladega Nights, Anchorman, Step Brothers og cult-serían Freaks and Geeks sem var upphafið af þessu öllu saman.
Sena gefur út í dag Stikkfrí frá árinu 1997
Sena gefur út í dag íslensku barna- og fjölskyldumyndina Stikkfrí frá árinu 1997 eftir Ara Kristinsson. Myndin hefur ekki komið út á DVD áður og er því ómetanlegur gripur í DVD-safn landans.
Myndin verður fáanleg í næstu verslun í vikunni.
Í viðhengi er mynd af þrem aðalleikkonunum eins og þær líta út í dag
LittleBigPlanet kemur út í október
Útgáfudagur LittleBigPlanet™ hefur verið ákveðinn
Sony Computer Entertainment og Media Molecule hafa tilkynnt að LittleBigPlanet leikurinn er tilbúinn, en hann kemur út 22.október aðeins á PLAYSTATION®3.
Leikurinn mun innihalda meira en 50 borð sem leikmenn geta spilað einir sér eða með allt að þremur öðrum. Leikurinn inniheldur einnig mjög öflugt kerfi sem gerir leikmönnum kleift að búa til sín eigin borð eða hreinlega búa til hvað sem er.
Sena frumsýnir Pineapple Express
Sena frumsýnir Pineapple Express á föstudag 19. sept í Smárabíói, Háskólabíói, Laugarásbíói og Borgarbíói Akureyri. Þetta er nýjasta gamanmynd leikstjórans Judd Apatow sem á að baki frábærar grínmyndir eins og Superbad, Knocked-Up og 40 Year Old Virgin. Þessi frábæra og steikta gamanmynd gefur þeim ekkert eftir og fjallar um dópistann Dale Denton sem Seth Rogen leikur og félaga hans, dópsalann Saul Silver sem James Franco leikur og hremmingum þeirra eftir að þeir verða vitni morði sem tengist dópi sem heitir Pineapple Express!
Konami semur við UEFA
Konami fyrirtækið hefur tilkynnt að PES 2009 muni innihalda Meistaradeild Evrópu. UEFA og Konami hafa náð samkomulagi að keppnin muni verða einungis í Pro Evolution Soccer seríunni næstu 4 ár. Nýjasti leikurinn eða Pro Evolution Soccer 2009 kemur út 16.október á PLAYSTATION®3, Xbox 360 og PC-DVD, svo í byrjun árs 2009 á Wii.
Sena frumsýnir Mirrors á föstudag 12. sept
Sena frumsýnir Mirrors á föstudag 12. sept í Smárabíói, Háskólabíói og Borgarbíói Akureyri. ... Kiefer Sutherland leikur fyrrverandi löggu (Ben Carson) sem fær vinnu sem öryggisvörður í frægri stórverslun sem eldsvoði hefur eyðilagt. Undalegir og óútskýrðir atburðir leiddu til dauða fyrrverandi öryggisvarðar og fer hann að rannsaka málið. Við brunann kemur í ljós að geðveikrarhæli var á sama stað í gamla daga og stórversluninni er nú en hælið brann til kaldra kola og var lokað á símum tíma.
SINGSTAR ABBA VÆNTANLEGUR
Sony Computer Entertainment Europe, ABBA og Universal Music tilkynna nýtt SingStar™ samstarf
SingStar™ ABBA mun koma út fyrir jólin, aðeins á PlayStation®
Sony Computer Entertainment í Evrópu hefur tilkynnt samstarf með ABBA um að færa vinsælustu lög sveitarinnar inní SingStar bæði á PlayStation®2 og PLAYSTATION®3. Eigendur þessara leikjatölva geta nú sungið með mörgum af heitustu popplögum sögunnar, en þar á meðal eru ‘Mamma Mia’, ‘Gimme Gimme Gimme’, ‘Waterloo’ og ‘Dancing Queen’.
Gamanmyndin Step Brothers frumsýnd
Sena frumsýnir Step Brothers á föstudag 5. september í Smárabíói, Háskólabíói, Laugarásbíói og Borgarbíói Akureyri. Þetta er frábær gamanmynd með Will Ferrell og John C. Reilly í aðalhlutverkum! Þeir leika stjúpbræður sem þola ekki hvorn annan til að byrja með en verða síðan bestu vinir og læra heilmikið af hvor öðrum! Þetta er mynd sem hefur slegið í gegn víðast hvar og fór t.d. beint á toppinn í Bandaríkjunum fyrr í sumar.
Sena frumsýnir Grísina 3
Sena frumsýnir Grísina 3 á föstudag 5. september í Smárabíói, Háskólabíói, Regnboganum, Laugarásbíói og Borgarbíói Akureyri. Um er að ræða frábæra teiknimynd fyrir alla fjölskylduna með íslensku tali. Þetta hið klassíka ævintýri um grísina þrjá og úlfana í nýrri og skemmtilegri útfærslu. Íslensk talsetning var í höndum Stúdíós Sýrlands og í leikstjórn Jakob Þórs Einarssonar og allir okkar fremstu leikarar ljá raddir sínar í myndinni m.a. Björgvin Franz Gíslason, Örn Árnason, Jóhann Sigurðarson, Sigurður Sigurjónsson og Jóhanna Vigdís Arnardóttir.
SPORE KOMINN ÚT!
Leikurinn SPORE hefur verið 8 ár í framleiðslu, en leikurinn er gerður af Will Wright, höfundi Sims leikjanna. Leikurinn er klárlega einhver fullkomnasti leikur sem komið hefur út á PC og algjör bylting í tölvuleikjum. Leikmenn upplifa stórbrotna ferð sem hefst við upphaf lífsins og endar með heimsyfirráðum. Allt þetta er gert á sama skemmtilega hátt og í Sims leikjunum, en leikurinn notar sama stjórnkerfi og aðdáendur Sims leikjanna þekkja.
HEIMSfrumsýning Make it Happen 27. ágúst
Sena HEIMSfrumsýnir Make it Happen á morgun miðvikudag 27. ágúst í Smárabíói og Regnboganum. Þetta er hörku-dansmynd með hinni sjóðheitu Mary Elizabeth Winstead í aðalhlutverki en hún á að baki myndir eins og Die Hard 4.0, Death Proof, Final Destination 3 og Sky High (sem sjónvarpið sýndi á laugardag) þrátt fyrir ungan aldur. Þetta er frábær mynd í anda So You Think You Can Dance þáttanna með fullt af flottum lögum m.a. hið vinsæla lag “Just Dance” sem hljómað hefur nánast stanslaust í útvarpinu undanfarið m.a. á FM 957. Þótt lífið breytist... þurfa draumarnir ekki að breytast!
Ég fíla 90´s
Safnplatan ÉG FÍLA 90’s inniheldur 38 lög sem voru gríðarlega vinsæl á árunum 1990 – 1999. Á plötunum eru allir helstu danssmellirnir frá þessum tíma en flest þessi lög voru efst á öllum vinsældarlistum svo vikum skipti og mikið spiluð á flestum útvarpsstöðvum. Þrír íslenskir flytjendur eru á safnplötunni en það eru: Bong, Páll Óskar og Scope. Meðal erlendra flytjenda eru: Haddaway, 2 Unlimited, Aqua, Ace Of Base, Michael Jackson, Faithless, Vanilla Ice, Whigfield, Snap, Outhere Brothers, Scatman John, Culture Beat, Dr. Alban, Goodmen og Snow.
Minningartónleikar um Vilhjálm Vilhjálmsson
Eins og kunnugt er verða haldnir stórtónleikar til heiðurs minningu Vilhjálms Vilhjálmssonar, föstudaginn 10. október í Laugardalshöllinni. Landslið söngvara kemur fram ásamt 10 manna hrynsveit, strengjasveit og kórum.
Nú hefur verið ákveðið að miðasalan á tónleikana hefjist föstudaginn 5. september stundvíslega klukkan 10:00.
Upplýsingar um miðasöluna
Miðasalan fer fram á Miði.is og á öllum sölustölum Miða.is. Aðeins er um númerið sæti að ræða og er salnum skipt upp í fjögur verðsvæði sem hér segir:
Nýja plata Lay Low kemur út 16.október
Lovísa hefur undanfarið dvalið í London við upptökur á sinni annarri plötu með upptökustjóranum Liam Watson í Toerag hljóðverinu. Liam er annálaður fyrir að brúka aðeins gamlar græjur sem hann m.a. keypti úr Abbey Road hljóðverinu goðsagnakennda. Í Toerag hljóðverinu hefur Liam meðal annars tekið upp "Elephant" plötuna með White Stripes og nýjust plötu James Hunter.
Samstarf Lovísu og Liams hefur gengið afar vel og ekki spillir fyrir að einvala lið hefur komið að hljóðfæraleik auk Lovísu. "Hljómsveit"
Lovísu á nýju plötunni samanstendur af; Carwyn Ellis (hljómborð), Ed Turner (gítar), Rupert Brown (trommur), Matt Radford (bassi) og BJ Cole (slæd gítar).
Ekkert verður látið uppi að svo stöddu um hljóm og stefnu nýju plötunnar, sem er naflaus enn, heldur beðið frumflutnings í útvarpi á fyrsta lagi nýju plötunnar sem verður um miðjan september.
Nýja platan kemur út á Íslandi fimmtudaginn 16. október og sama kvöld heldur Lay Low útgáfutónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík.
Sena frumsýnir The Rocker
Sena frumsýnir The Rocker á morgun miðvikudag 20. ágúst í Smárabíói, Háskólabíói, og Laugarásbíó. Þetta er sprenghlægileg gamanmynd frá leikstjóra The Full Monty með hinum stórskemmtilega Rainn Wilson úr Office þáttunum í aðalhlutverki. Eina von hljómsveitarinnar... er vonlaus!
SKRAPP ÚT verðlaunuð á LOCARNO hátíðinni
Laugardagskvöldið 16.ágúst var íslensku kvikmyndinni Skrapp út veitt verðlaun á 61. Locarno hátíðinni í Sviss, sem er ein elsta og virtasta kvikmyndahátíð Evrópu og telst til A hátíða ásamt Cannes,
Berlínar- og Feneyjahátíðinni.
Variety Piazza Grande verðlaunin sem Sólveig Anspach tók á móti eru ný verðlaun, veitt þeirri mynd sem að mati dómnefndarinnar þykir hafa til að bera mikið listrænt gildi og höfða einnig til almennings. Um þessi verðlaun keppa þær myndir á hátíðinni sem sýndar eru á hinum magnaða Piazza Grande –sem rúmar 8.500 manns í sæti undir berum himni og er sá stærsti í Evrópu.
Sena frumsýnir X-Files: I Want to Believe 13. ágúst
Sena frumsýnir X-Files: I Want to Believe á morgun miðvikudag 13. ágúst í Smárabíói, Háskólabíói, Sambíóunum Kringlunni og Borgarbíói Akureyri. Mulder og Scully eru mætt aftur í frábærri spennumynd í anda þáttanna. Þau skötuhjú eru fengin til að hjálpa FBI í rannsókn á hvarfi eins fulltrúa FBI í dularfullu morðmáli með ófyrirséðum afleiðingum!
ESJA sendir frá sér sína fyrstu plötu
Esja er hugarfóstur þeirra Krumma úr Mínus og Daníels Ágústs úr GusGus og Nýdönsk. Samstarf þeirra hófst eftir að þeir hittust, nánast fyrir tilviljun, með kassagítara í kjallaraherbergi í miðbænum síðla hausts 2006.
Tónlistin sem þeir hafa skapað í sameiningu er ekki mikið í líkingu við það sem þeir hafa brallað áður. Þetta er rafmagns- og kassagítarblúsrokk með skírskotanir í fenjamúsík suðurríkja Bandaríkjanna (s.s. Allman Brothers, Lynyrd Skynyrd og The Band). Þetta eru frumsamin, einföld lög með alvöru textum sem ættu að falla í kramið hjá þeim sem kunna að meta lagasmíðar í hráum og einlægum búningi.
Megas Og Senuþjófarnir - Á Morgun
Á morgun hefur að geyma nýjar útgáfur Megasar og hljómsveitarinnar Senuþjófanna á sextán gömlum lögum, tólf þeirra eru íslensk, en fjögur erlend við íslenska texta. Hljómsveitin Senuþjófarnir er skipuð þeim Guðmundi Kristni Jónssyni gítarleikara, Sigurði Guðmundssyni bassaleikara, Birni Ólafssyni trommara og Þorbirni Sigurðssyni hljómborðsleikara ásamt Guðmundi Péturssyni gítarleikara. Lagavalið er fjölbreytt, en lögin eiga það sameiginlegt að Megas ólst upp með þeim og hefur á þeim dálæti. Þarna eru m.a. lög við texta eftir Hannes Hafstein og Halldór Laxness og sígild dægurlög, flest frá sjötta áratugnum. Eins og við er að búast eiga þessi lög það líka flest sameiginlegt að textarnir eru góðir. Þarna eru m.a. Hagavagninn, Litla stúlkan, Brúnaljósin brúnu, Á morgun, Játning, Æskuminning, Manstu gamla daga, Selja litla og Stína, ó Stína og svo kvöldvökuslagarar eins og Þórsmerkurljóð og Þórður kakali.
Sena frumsýnir nýja íslenska mynd Skrapp út þann 8. ágúst
Sena frumsýnir nýja íslenska mynd eftir Sólveigu Anspach sem heitir Skrapp út þann 8. ágúst n.k. í Smárabíói, Háskólabíói og Borgarbíói Akureyri. Þetta er frábær feel-good gamanmynd sem mun virkilega vekja athygli bíógesta en snillingarnir í Zik Zak eru á bak við myndina sem skartar Diddu Jóns, Ingvari, Krumma, Erpi, Jörundi og fleiri góðum í meginrullum.
Sena frumsýnir The Strangers miðvikudaginn 23. júlí
Sena frumsýnir The Strangers miðvikudag 23. júlí í Smárabíói, Regnboganum og Borgarbíói Akureyri. Þetta er svakalegur spennutryllir af bestu gerð sem fær hárin til að rísa með Liv Tyler og Scott Speedman í aðalhlutverkum. Myndin er byggð á sönnum atburðum sem gerðust 11. febrúar árið 2005. Myndin kostaði einungis 8 milljónir dollara í framleiðslu en fór beint á toppinn í Bandaríkjunum fyrr á árinu og hefur slegið í gegn og halað inn 52 milljónir í kassann og myndin á auk þess stærstu opnun ársins þar í landi á spennutrylli (það sem af er ári). Myndin er starnglega bönnuð innan 16 ára!
Fyrsti diskur Merzedes Club kominn út!
Fyrsti diskur Merzedes Club kominn út! Hljómsveitin sem
hefur slegið í gegn svo um munar er þar með að fylgja eftir vinsældum
sínum með 10 laga diski þar sem á eru m.a. 4 lög sem þegar hafa notið
mikilla vinsælda.
Sena HEIMSfrumsýnir Meet Dave á morgun miðvikudag 9. júlí
Sena HEIMSfrumsýnir Meet Dave á morgun miðvikudag 9. júlí í Smárabíói, Regnboganum, Sambíóunum Kringlunni og Borgarbíói Akureyri. Þetta er frábær fjölskyldu og gamanmynd með Eddie Murphy í aðalhlutverki um geimverur sem koma langt utan úr geimnum í dulargervi sem hæfir veröld okkar fullkomnlega því dulargervið er nefnilega geimskip sem lítur út eins og manneskja! Lítur út eins og Eddie Murphy! Og inn í Eddie Murphy eru geimverurnar sem lenda í miklum ævintýrum hér á jörðinni og leiðtogi þeirra er engin annar en Eddie Murphy!
Sena frumsýnir Hancock í dag miðvikudag 2. júlí
Sena frumsýnir Hancock í dag miðvikudag 2. júlí í Smárabíói, Háskólabíói, Laugarásbíói, Sambíóunum Álfabakka, Selfossi og Keflavík og Borgarbíó Akureyri. Án efa skemmtilegasta sumarmyndin í ár og Will Smith hefur aldrei verið betri! Will Smith leikur ofurhetjuna John Hancock sem allir elska að hata. Hancock gerir ekkert rétt og allir eru á móti honum. Það er ekki fyrr en hann bjargar lífi almannatengslafulltrúa sem býður honum hjálp sína á móti að líf Hancocks og ímynd breytast... En það er svo sannarlega ekki auðvelt verkefni!
ÍSLENSKIR DVD DAGAR
Sena kynnir með stolti meistaraverk Friðriks Þórs Friðrikssonar loksins fáanlega á DVD; Rokk í Reykjavík, Bíódagar og Skytturnar, fyrsta mynd Friðriks. Einnig fáanlegar Englar Alheimsins, Börn Náttúrunnar, Djöflaeyjan og Á Köldum Klaka. Rokk Í Reykjavík er ein magnaðasta heimildarmynd íslenskrar kvikmyndasögu um rokkið í Reykjavík í byrjun níunda áratugarins. Bíódagar er margverðlaunuð mynd fyrir alla fjölskylduna og var m.a. valin besta barnamynd Norðurlandanna 1994. Þessar sígildu myndir eru skyldueign inn á heimili landsmanna.
Helgi Björns - RÍÐUM SEM FJANDINN
Helgi Björnsson er kominn með nýjan disk með sterkum kántrýblæ, íslensk lög sem allir þekkja og geta sungið með. Með Helga á plötunni er valinn hópur tónlsitarmanna sem fengið hafa nafnið Reiðmenn vindanna. Jóhann Hjörleifsson leikur á trommur, Friðrik Sturluson á bassa, Kjartan Valdemarsson á harmonikku, og hljómborð, Matthías Stefánsson á gítar og fiðlu, Stefán M. Magnússon á gítar, mandólín, og banjó og Björn Halldór Helgason syngur bakraddir. Platan er kántrýskotin en með breiðu úrvali, svolítið af ryþma-og-blús-fíling og alveg yfir í New Orleans takta og jafnvel írska tóna – s.s. e-ð fyrir alla á þessari frábæru plötu.
Ný plata garðars thórs Cortes kemur út í dag
Plata Garðars Thórs Cortes, When You Say You Love Me, kemur út í Bretlandi og á Íslandi mánudaginn 30. júní. Þetta er önnur platan sem Garðar gefur út í Bretlandi, en sú þriðja á Íslandi og er henni ætlað að fylgja á eftir plötunni Cortes sem vann sér inn tilnefningu til Bresku tónlistarverðlaunanna en þau fóru fram í London í maí sl. Sú plata náði einnig fyrsta sætinu á Breska klassíska vinsældalistanum og sat þar í þrjár vikur. Á nýju plötunni má finna óperuaríurnar M'appari tutt'amor, Com e Gentil og Pourquoi Me Reveiller og Che Gelida Manina. Einnig er að finna á plötunni útgáfur Garðars af þekktum lögum eins og Lady, She og Sofðu unga ástin mín.
Nýtt lag með Motion Boys
Hljómsveitin Motion Boys hefur undanfarið unnið hörðum höndum að því að klára fyrstu breiðskífu sína og hafa upptökur hennar farið fram í Gróðurhúsi Valgeirs Sigurðssonar, sem jafnframt er upptökustjóri plötunnar.
Gert er ráð fyrir að upptökur klárist um miðjan júlí og að platan komi út í lok sumars. Sena gefur út.
Ný smáskífa:
Fyrsta lag af væntanlegri plötu er tilbúið, og kemur út sem smáskífa nú á föstudaginn (27/7). Lagið nefnist "Queen of Hearts" og verður fáanlegt sem niðurhal af Tónlist.is og Grapewire.net. Þetta er fjórða lagið sem hljómsveitin sendir frá sér, en áður hafa komið út lögin "Waiting to Happen", "Hold me Closer to your Heart" og "Steal your Love".
Sena frumsýnir Big Stan á föstudag 27. júní
Sena frumsýnir Big Stan á föstudag 27. júní í Smárabíói, Háskólabíói og Borgarbíói Akureyri. Um er að ræða stórkostleg gamanmynd um lítinn mann sem Rob Schneider leikur. Hann fer í steininn og leggur fangelsið undir sig í þessari brjáluðu gamanmynd - eina fyndnustu sumarmynd ársins! Það er kominn nýrr hrotti fangelsið...af minni gerðinni! Með önnur hlutverk fara David Carradine og Jennifer Morrison.
Sena semur við Motion Boys.
Í haust mun koma út fyrsta hljómplata Motion Boys mörgum til mikillar ánægju og er það Sena sem gefur út. Hingað til hefur bandið sent frá sér þrjú lög sem öll hafa fengið gríðarlega spilun á helstu útvarpsstöðvum landsins en það eru lögin Waiting to Happen, Hold me closer to your heart og Steel your love.
Sena frumsýnir Kjötborg
Sena frumsýnir í Háskólabíói heimildarmynd um hornverslunina Kjötborg og bræðurna Gunnar
og Kristján sem reka hana. Myndin er full af húmór og viðkæmni, gáska og fegurð.
Hún hlaut áhorfendaverðlaun sem Besta Myndin á Skjaldborgarhátíðinni 2008
og hefur hlotið fjórar stjörnur í dómum Morgunblaðsins og Rás 2.
,,einstaklega ánægjuleg mynd.´´ **** S.V. Mbl.
,,ég held þær séu að brjóta blað ííslenskri kvikmyndagerð´´**** Ó.H.T. Rás 2
Svona var … 1967 til 1981 komnar út.
Út eru komnar 15 nýjar plötur í útgáfuröðinni Svona var… en hver plata í röðinni beinir kastljósi að vinsælustu íslensku lögum hvers árs. Árið 2005 komu fyrstu 15 plöturnar út og leikurinn hófst á árinu 1952 og náði fyrsti skammturinn allt til ársins 1966 á 15 plötum eins og áður sagði. Nú eru hins vegar nýkomnar út næstu 15 plötur í röðinni sem geyma öll vinsælustu lög áranna 1967 til ársins 1981. Það var Trausti Jónsson sem sá um lagavalið fyrir plöturnar sem einblína á árin allt til 1970 en Ásgeir Tómasson tók þar við af Trausta og kláraði allt til 1981.
Oft Spurði ég mömmu
Út er komin platan "Oft spurði ég mömmu" með Sigurði Guðmundssyni og er það mefismafían sem spilar undir. Platan var gerð á þann sérstaka hátt að stuðst var við upptökutækni þá sem var við lýði þegar Ribbon míkrófónarnir hófu innreið sína á 4. áratug síðustu aldar. Þá var tekið upp á eina rás með segulbandstæki og því var ekki hægt að eiga við upptökurnar eftir á, söngur og hljóðfæraleikur var tekinn upp samtímis og besta upptakan af hverju lagi valin og látin standa sem slík. Platan var tekin upp 3. – 5. mars síðast liðinn í Hljóðrita í Hafnarfirði og upptökum stjórnuðu þeir Guðmundur Kristinn Jónsson og Styrmir Hauksson. Á meðan upptökur stóðu yfir var mikið lagt upp úr því að skapa góða stemningu í gamla Hljóðrita en í því fólst meðal annars það að allir tónlistarmennirnir mættu í sínu fínasta pússi og dekkað var á borð þar sem heimilislegar kræsingar flæddu af borðum og kölluðu fram minningar hjá tónlistarfólkinu um gamla góða daga.
Sena frumsýnir Meet Bill
Sena frumsýnir Meet Bill á miðvikudag 18. júní í Regnboganum og Háskólabíói. Aaron Echart fer á kostum í frábærri gamanmynd...með hjarta en hann leikur mann sem er búinn að fá nóg af því að vinna hjá tengdaföður sínum og kemst auk þess að því að konan hans er að halda framhjá honum! Á svipuðum tíma kynnist hann sjálfsöruggum og uppátækjasömum unglingi og afgreiðslustúlkunni Lucy (leikin af Jessicu Alba) og þá um leið fer hann að finna sjálfa sig á ný og eltast við drauma sína!
100 bestu lög lýðveldisins
Þann 17. júní koma út 100 bestu lög lýðveldisins á fimm geislaplötum, í einum kassa. Það var snemma á þessu ári sem hugmynd kviknaði að þessari útgáfu. Ákveðið var að leita til 30 einstaklinga sem vel eru að sér í íslenskri tónlistarsögu og þeir beðnir að velja þau 30 lög sem þeir töldu bestu lög íslenskrar dægurtónlistar. Gengið var úr skugga um að hópurinn væri haganlega samansettur hvað varðaði þekkingu, aldur, kyn, tónlistarhneigðir og almenna smekkvísi en að sama skapi ákveðið að biðja engan starfandi tónlistarmann að taka þátt. Á vordögum var niðurstaða úr valinu fengin og þau lög sem prýddu 100 efstu sæti kjörsins er einmitt að finna á þessari glæsilegu safnútgáfu; 100 bestu lög lýðveldisins.
Fjórir naglar er komin út.
Fjórir naglar er fyrsta sólóplata Bubba síðan hann gaf út tvíleikinn "Ást" og "Í sex skrefa fjarlægð frá paradís" sumarið 2005. Aldrei í útgáfusögu Bubba hefur liðið svo langur tími á milli platna. Líkt og oft áður fór Bubbi nýjar leiðir og fékk til liðs við sig Pétur Ben til að stjórna upptökum og útsetja. Útkoma þess samstarfs er hreint út sagt frábær og má heyra nýjan tón í sumum lögunum ásamt þekktum áherslum Bubba í tónlistinni. Meðreiðarsveinar Bubba á plötunni er hljómsveitin Stríð og Friður en hana skipa Arnar Geir Ómarsson trommuleikari, gítarleikararnir Guðmundur Pétursson og Pétur Hallgrímsson auk bassaleikarans Jakobs Smára Magnússonar. Fjórir naglar hafa þegar fengið frábæra dóma í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu. Fimm stjörnur eða fullt hús í báðum tilvikum.
Sena frumsýnir Flawless
Sena frumsýnir Flawless (Gallalaus) á morgun miðvikudag 11. júní í Regnboganum. Um er að ræða flottan krimmaþriller sem gerist í London árið 1960. Með aðalhlutverk fara Demi Moore og Michael Caine sem leikur húsvörð sem hjálpar Demi Moore, metnaðarfullum starfsmanni hjá London Diamond Corporation að fremja hið fullkomna gimsteinarán... en ekki fer allt eins og planað var!
Sena HEIMSfrumsýnir The Happening
Sena HEIMSfrumsýnir The Happening á morgun miðvikudag 11. júní í Smárabíói, Háskólabíói, Sambíóunum Kringlunni og Sambíóunum Keflavík. Um er að ræða nýjustu stórmynd leikstjórans M. Night Shyamalan sem sló í gegn með The Sixth Sense og Signs. Mark Wahlberg leikur kennarar sem þarf að flýja út á land með vinum og fjölskyldu vegna óvæntra atburða sem ógna lífi fólks! Magnaður spennutryllir með undirliggjandi ádeilu og óvæntum endi að hætti M. Night Shyamalan sem heldur bíógestum í heljargreipum frá byrjun til enda!
SUMARTILBOÐ í Regnboganum
Föstudaginn 6. júní byrjar sérstakt SUMARTILBOÐ í Regnboganum – miðaverð aðeins 650kr á ALLAR MYNDIR – ALLAR SÝNINGAR – ALLA DAGA VIKUNNAR Í ALLT SUMAR. Tilboðið hefst með frumsýningu á nýjustu mynd Al Pacino, 88 Minutes.
Adam Sandler í bíói 6. júní
Sena frumsýnir You Don´t Mess with the Zohan á á föstudag 6. júní í Smárabíói, Háskólabíói, Laugarásbíói, Borgarbíó Akureyri og Sambíóunum Keflavík. Adam Sandler leikur ísraelskan leyniþjónustumann sem lætur sig hverfa og lætur gamlan draum rætast um að fara að vinna á hárgreiðslustofu með ófyrirséðum afleiðingum! Hann blæs þig í drasl! Frábær gamanmynd sem kítlar hláturtaugarnar og kemur öllum í gott sumarskap.
Nýja Bang Gang platan komin út
Föstudaginn 30.maí kom nýjasta plata Bang Gang loksins í búðir en 5 ár eru síðan síðasta plata Bang Gang, Something Wrong kom út. Platan sem heitir Ghosts from the past er beðið með mikilli eftirvæntingu enda sló síðasta plata í gegn hérlendis sem og erlendis. Það er Cod Music sem gefur út.
Fyrsti Lúxus Digital salur landsins.
Smárabíó – DIGITAL
Fyrsti Lúxus Digital salur landsins.
Sena hefur sett upp fullkominn stafrænan búnað í Smárabíó og er bíóið fært um að sýna myndir í fullum Digital mynd og hljóðgæðum. Kerfið hefur verið sett upp í Sali 1, 2 og Lúxussal í Smárabíó og til að byrja með verða valdar myndir sýndar í stafrænum gæðum. Indiana Jones er fyrsta myndin sem sýnd verður í Dolby Digital gæðum. Með þessu bætist enn ein skrautfjöður í glæsilegan tækjabúnað Smárabíós. Kerfið samanstendur af BARCO digital projector og DOLBY digital server, með þessum búnaði erum við stoltir að segja frá því að gæði kvikmynda í Smárabíó eru með því glæsilegasta sem sést hefur.
Með þessum breytingum verður til fyrsti Digital Lúxussalur landsins. Það verður vart betra en að halla sér aftur í þægilegum stólum og njóta mynd og hljóðgæða í hæsta gæðaflokki
Sigurvegari Þorskastríðsins 2008 er...
Þorskastríð Cod Music sló heldur betur í gegn þetta árið og tóku 102 hljómsveitir og listamenn þátt og alls bárust hátt í 300 lög. Aðstandendur Cod Music hafa nú í 10 daga legið yfir lögunum sem send voru inn og erum við gífurlega ánægðir með að tilkynna að sigurvegari Þorskastríðsins 2008 er Steini. Steini er tónlistarmaður úr Reykjavík sem hefur verið starfandi undir þessu nafni í nokkur ár. Í fyrra sendi Steini sjálfur frá sér sína fyrstu plötu sem hét Behold og fóru tvö lög af henni í spilun. Steini hefur verið að vinna að nýju efni síðan og er með um 40 lög á lager sem velja þarf úr á næstu plötu. Reiknað er með að Steini fari í stúdíó í enda júní og má þá búast við plötu frá honum í haust.
Fyrsta sólóplata Dísu komin út
16.maí kom út á vegum Cod Music fyrsta sólóplata Dísu en hún er án efa ein efnilegasta söngkona og lagahöfundur þessa lands. Platan sem telur 11 lög inniheldur meðal annars lögin Anniversary og Temptation sem hafa verið að fá frábæra útvarpsspilun síðustu mánuði. Platan er að mestu unnin með Sam Frank en einnig kemur Barði Jóhannsson og tónlistarkonan Shelly að einu lagi, laginu Temptation. Platan var unnin í heimastúdíói Dísu og tók um 6 mánuði að fullvinna hana. Þetta er fyrsta sólóplata Dísu og er ljóst að hún á framtíðina fyrir sér enda aðeins 20 ára gömul.
Dísu hefur verið boðið að koma fram á tveimur tónlistarhátíðum á næstunni og eru þau bæði í Danmörku. Eru þetta Svendborg Festival sem fram fer í enda maí í Svendborg og Spot festival sem fram fer í byrjun júní í Aarhus.
Þursarnir á Nasa 13.júní
Þursanir léku á Kaffi Edinborg á Ísafirði síðastliðin föstudag og slógu enn og aftur í gegn; Edinborgarhúsið pakkfylltist og gestir skemmtu sér konunglega. Áður höfðu Þursarnir fyllt Græna hattinn á Akureyri þrisvar sinnum og 3.000 manns fylltu Laugardalshöllina í Reykjavík. Vegna háværra hvatningaradda, hafa Þursarnir ákveðið að halda eina tónleika í viðbót, nú í miðborg höfuðstaðarins og enda þetta ævintýri sem hófst í febrúar síðastliðnum. Tónleikarnir verða á Nasa föstudaginn 13. júní kl. 23:00. Þar munu þeir koma fram einir og sér, án utanaðkomandi aðstoðar, hráir og blátt áfram eins og þeir geta verið.
What Happens in Vegas
Sena HEIMSfrumsýnir What Happens in Vegas núna á miðvikudag 7. maí í Smárabíói, Háskólabíói, Laugarásbíói, Borgarbíói Akureyri og Sambíóunum Keflavík. Myndin verður frumsýnd í USA á föstudag 9. maí. Þetta er frábær gamanmynd með Cameron Diaz og Ashton Kutcher í aðalhlutverkum. Þau leika tvo einstaklinga sem gifta sig óvart á fylleríi í Las Vegas og vilja auðvitað strax skilja þegar það rennur af þeim nema hvað þau vinna óvart 3 milljónir dollara í spilakassa áður en þau skilja og upphefst nú mikil barátta um peningana með ófyriséðum afleiðingum, bráðskemmtilegum uppákomum og baráttu kynjanna og óvæntum endi.
100 Eurovisionlög á 5 geislaplötum
Safnplatan „100 Eurovisionlög á 5 geislaplötum“ kemur út þriðjudaginn 6. maí. Plöturnar eru 5 saman í einum pakka á mjög hagstæðu verði. Á plötu 1 og 2 er að finna 39 lög sem hafa unnið í Eurovision söngvakepninni, á plötu 3 eru lög sem hafa náð vinsældum hér á landi en hafa ekki unnið keppnina. Á plötu 4 er að finna öll lögin sem hafa verið send í keppnina til að keppa fyrir Íslands hönd og á plötu 5 er að finna lög sem hafa notið vinsælda úr forkeppnum fyrir Eurovision hér á landi.
Bob Dylan í Nýju Laugardalshöllinni
Concert hefur tekið ákvörðun um að færa stórtónleikana með Bob Dylan þann 26. maí úr Egilshöll í Nýju Laugardalshöllina. Að öðru leyti verður fyrirkomulagið óbreytt; áfram er heildarmagn miða í boði 8.000, svæði A tekur 4.000 og svæði B einnig 4.000. Samkomulag hefur náðst við rekstraraðila Egilshallarinnar um þennan ráðhag.
Pottþétt 46 kom út 29.apríl
Nýjasta safnplatan í Pottþétt röðinni vinsælu kom út þriðjudaginn 29. apríl. Á plötunum er að finna flest af vinsælustu lögum dagsins í dag. Meðal íslenskra flytjenda á plötunni eru: Páll Óskar með nýjasta lagið sitt af plötunni vinsælu „Allt fyrir ástina“, Lay Low með lagið „Jolene“ eftir Dolly Parton úr leikritinu „Ökutímar“, Merzedes Club með nýja lagið sitt „Meira frelsi“, Ingó og Veðurguðirnir með lagið vinsæla „Bahama“ og Bubbi og Björn Jörundur með nýja útgáfu af laginu sígilda „Ég er kominn heim“ sem Óðinn Valdimarsson gerði vinsælt árið 1960 . Pottþétt 46 er 83. Pottþétt platan í Pottþétt útgáfuröðinni sívinsælu.
Street Kings
Sena frumsýndi Street Kings miðvikudaginn 23. apríl í Smárabíói, Háskólabíói og Borgarbíói Akureyri.
Á leið til London á rauða dregilinn með Ashton Kutcher
Á leið til London á rauða dregilinn með Ashton Kutcher á heimsfrumsýningu á bíómyndinni What Happens in Vegas
Sena frumsýndi Awake á föstudag 18. apríl
Sena frumsýndi Awake á föstudag 18. apríl í Háskólabíói. Um er að flottan spennutrylli með Jessicu Alba og Hayden Christensen.
Rokkland 2007 kemur út 21.apríl.
Mánudaginn 21. apríl kemur út sjöundi diskurinn í Rokklands-seríunni, Rokkland 2007. Rokklands-diskarnir eru hugsaðir sem einskonar framlenging útvarpsþáttarins Rokkland sem hefur verið á dagskrá Rásar 2 óslitið síðan árið 1995. Umsjónarmaður Rokklands hefur verið sá sami frá upphafi: Ólafur Páll Gunnarsson. Hann sér einnig um lagaval og samsetningu á Rokklands-diskunum, en hefur fengið aðstoð við textann í veglegum bæklingnum sem fylgir hverjum diski. Andrea Jónsdóttir er hans hægri hönd við textaskrifin.
Superhero Movie
Sena frumsýndi Superhero Movie síðasta föstudag 11. apríl í Smárabíói, Háskólabíói og Borgarbíói Akureyri.
21
Sena sýnir 21 í Smárabíói, Háskólabíói og Sambíóunum Akureyri. Um er að ræða toppmyndina í USA til tveggja vikna byggða á sannsögulegum atburðum um hóp hæfustu nemenda MIT sem sérhæfðu sig í að læra og telja í spilið 21 með það markmið að hreinsa spilavítin í Vegas! Með Kevin Spacey, Laurence Fishburne, Kate Bosworth og Jim Sturgess (Across the Universe) í aðalhlutverkum.
Evening
Helstu leikkonur nútímans fara á kostum í áhrifamikilli kvikmynd. Þegar Anne rifjar upp helgina sem hún átti með ástinni í lífi sínu og breytti lífi hennar varanlega, gera dætur hennar sér grein fyrir áhrifum fortíðarinnar
Impulse
Claire Dennison er gullfalleg og hugsar ekki um annað en að vekja losta hjá eiginmanninum. Henni dettur í hug að setja á svið leikþátt þar sem hún er saklaus stúlka í leit að skeleggum manni sem er reiðubúinn að gera hvað sem er til að ná henni á sitt vald
Veðramót
Þrír bjartsýnir byltingasinnar fara norður í land og taka að sér að stjórna vistheimili fyrir vandræða unglinga “Veðramótun“. Fljótlega uppgötva þau að hugsjónir sem þau lögðu upp með duga ekki alls staðar.
The Brothers Solomon
Þegar faðirinn liggur fyrir dauðanum og óskar þess að fá að sjá fyrsta barnabarnið áður en hann gengur á fund skapara síns er það hægara sagt en gert fyrir bræðurna Solomon.
The Lover’s Guide Interactive
Leiðarvísir elskendanna er frábær leiðsögn að góðu og farsælu ástarsambandi. Diskarnir eru framleiddir í samvinnu við Relate og sýna fjöldann allan af tækni og aðferðum til að ná hæstu hæðum í kynlífinu.
Moliere – Græna Ljósið
Bráðfyndin frönsk stórmynd um gamanleikskáldið fræga Moliére, sem hefur verið kallaður Shakespeare Frakklands.
Árið er 1644 og Moliére er aðeins tuttugu og tveggja ára. Hann er skuldum vafinn og hundeltur af innheimtumönnum.
Persepolis – Græna Ljósið
Teiknimynd byggð á samnefndum sjálfsævisögum hinnar írönsku Marjane Satrapi, sem hafa náð metsölu um allan heim og unnið til fjölda verðlauna.
Marjane er aðeins 9 ára gömul þegar íslamska byltingin á sér stað í Íran og strangtrúaðir taka öll völd, neyða blæjur á konur og fangelsa þúsundir.
Promise Me This – Græna Ljósið
Nýjasta myndin frá íslandsvininum Emir Kusturica kom sá og sigraði á Cannes kvikmyndahátíðinni.
Efst uppi á einangraðri hæð mitt í serbnesku sveitinni kemur Tsane, afi hans og kýrin þeirra Cvetka. Ásamt nágrannakennaranum eru þau einu íbúar þorpsins
Terror’s Advocate – Græna Ljósið
Ögrandi heimildarmynd eftir Barbet Schroeder um Frakkann Jacques Vergés, hinn mjög svo umdeilda lögfræðing sem hefur unnið sér það til frægðar að verja alla verstu skúrka heims, en á meðal skjólstæðinga hans má nefna Pol Pot, Mao Tse Tung, Slobodan Milosevic, Saddam Hussein, Carlos the Jackal og Klaus Barbie.
Die Fälscher
Frábær þýsk mynd, byggða á sönnum atburðum, um hóp af gyðingum í útrýmingarbúðum, sem árið 1936 eru sérvaldir af nasistum til að falsa erlenda gjaldmiðla. Myndin var tilnefnd til Gullbjörnsins í Berlín
Balls Of Fury
Þegar FBI fær Randy Daytona, fyrrverandi atvinnumann í borðtennis, í lið með sér til að koma upp um ólöglegt atferli í íþróttinni er Randy staðráðinn í að komast á ný til fyrra metorða og koma upp um morðingja föður síns
Lions For Lambs
Háskólakennari í Kaliforníu reynir að hvetja nemenda sinn til að gera gagn í lífinu og á sama tíma skýrir þingmaður í Washington D.C. tortryggni fréttakonu frá nýjum hugmyndum varðandi ástandið í Austurlöndum nær.
Family Guy: Blue Harvest
Griffin-fjölskyldan fer að sjálfsögðu á kostum í mögnuðustu vísindaskáldsögu allra tíma. Peter er stórfenglegur í hlutverki Han Solo, Lois hefur vissulega konunglegt yfirbragð sem Leia prinsessa, Chris nær göngulagi Loga geimgengils fullkomlega
Jane Austin Book Club
Fimm konur og einn karl hittast reglulega til að ræða skáldsögur enska rithöfundarins Jane Austen og komast fljótt að raun um að vandamál Emmu, herra Darcy og Bennet systra eru ekki svo ólík þeirra eigin.
Good Luck Chuck
Einhleypar konur standa í biðröð við svefnherbergisdyr Charlies Logan. Að eyða einni nótt með honum tryggir að þær muni hitta þann eina rétta innan skamms. Charlie er nefnilega eins konar lukkudýr.
Waitress
Gengilbeinan Jenna býr í smábæ, en hana dreymir stóra drauma og hún gerir hreint ótrúlega góðar bökur. Hana dreymir um að sigra í bökukeppni og vinna 25.000 dali, segja skilið við eiginmanninn og opna eigin bökuverslun.
Sálin hans jóns míns - Vatnaskil komin út!
Hljómsveitin Sálin hans Jóns míns fagnaði mánudaginn 10. mars 20 ára afmæli sínu. Hún er orðin ein lífseigasta hljómsveit Íslandssögunnar og er án tvímæla einhver sú farsælasta sem komið hefur fram hérlendis. Tónleikar Sálarinnar hafa jafnan verið fjölsóttir og hefur sveitin sent frá sér 12 plötur sem geyma ógrynni vinsælla laga, en þær eru fáar sveitirnar sem eiga viðlíka magn vinsælla laga.
Nanny Diaries
Annie Braddock hefur núlokið námi og er undir miklum þrýstingi frá móður sinni að finan starf við hæfi í viðskiptaheiminum. Annie kýs þó frekar að þiggja starf sem barnfóstra hjá auðugri fjölskyldu
Surf's Up - Brettin Upp!!
Mörgæsastrákurinn Kódi, sem á heima á Skjálfanda á Suðurskautslandinu, fer að heiman til að taka þátt í mikilli brimbrettakeppni við strönd Pen Gu eyjar. Þar kynnist hann ýmsum nýjum vinum, svo sem kjúklingnum Jóa og strandverðinum Lani.
Kassinn uppseldur hjá útgefanda.
Það er óhætt að segja að kassinn með Þursaflokknum sem inniheldur heildarútgáfu hljómsveitarinnar hafi heldur betur slegið í gegn. Kassinn hefur fengið gríðarlega góða dóma í öllum helstu fjölmiðlum landsins. Fyrsta upplag er nú uppselt á einungis einni viku en það eru rúmlega 1.000 eintök. Annað upplag er væntanlegt fljótlega.
Örfá eintök eru eftir í verslunum.
Eastern Promises
Viggo Mortensen og Naomi Watts fara á kostum í þessari frábæru spennumynd leikstjórans David Cronenberg. Ferill glæpamannsins Nikolai og tengls hans við kunna glæpaklíku er í uppnámi þegar leiðir hans og ljósmóðurinnar Önnu liggja óvænt saman
Joshua
Lífið brosir við Brad og Abby Cairn. Hjónabandið er hamingjusamt, þau eiga bráðgreindan 9 ára son og annað barn á leiðinni. En Joshua litli virðist hafa megna óbeit á litlu systur sinni og óhugnalegir atburðir taka að gerast. Er þetta allt ótrúleg tilviljun eða úthugsuð hefnd.
Shield - Sería 4
Fjórða serían af þessum snilldar þáttum er nú loksins komin á DVD, inniheldur alla 13 þættina ásamt fullt aukaefni á 4 diskum.
Aðalhlutverk : Michael Chiklis, Walton Goggins, Benito Martinez
Sena heimsfrumsýndi Jumper í febrúar
Sena heimsfrumsýndi 15. febrúar Jumper (Stökkvari) í Smárabíói, Regnboganum, Laugarásbíói, Sambíóunum Kringlunni, Borgarbíó Akureyri og Sambíóunum Keflavík.
Hinn íslenzki Þursaflokkur - kassi
Þann 18. febrúar mun Sena gefa út heildarsafn með Þursaflokknum sem inniheldur allar fjórar plötur sveitarinnar ásamt aukaplötu með fimm lögum af plötunni sem aldrei kom"Ókomin forneskjan". Þá er að finna lög af tónleikum sveitarinnar frá ýmsum tímum. Allar plöturnar hafa verið settar í nýjan búning í tilefni útgáfunnar.
27 Dresses
Sena kynnir kvikmyndina
27 dresses (27 Kjólar) með Katherine Heigl í aðalhlutverki sem verður frumsýnd 22. febrúar í Smárabíói, Regnboganum, Laugarásbíói og Borgarbíói Akureyri.
The Dark Is Rising
Í jólafríinu uppgötvar ósköp venjulegi unglingurinn Will Stanton að hann er langt frá því að vera venjulegur. Sem sjöundi sonur sjöunda sonar er hann “leitarinn”, stríðsmaður sem ætlað er að finna jafnvægi milli ljóss og myrkurs.
Missionary Man
Þegar ókunnugur maður, Ryder að nafni, birtist óvænt í smábæ einum breytist líf borgaranna til hins betra, en þeir hafa hingað til þurft að lúta harðstjóranum á staðnum. Vopnaður Biblíunni, mótorhjóli og hefndarþorsta skorar Ryder ógnvaldinn á hólm og sannar að réttlætið sigrar að lokum.
Love Lies Bleeding
Duke og Amber álita að peningar breyti öllu – allavega eftir að Duke verður óvænt vitni að fíkniefnaviðskiptum og finnur tösku troðfulla af illa fengnu fé. Þau láta pússa sig saman í snarheitum og hyggjast síðan hefja lífið sem þau hefur alltaf dreymt um.
Weddign Daze
Anderson hefur misst draumadísina sína og er þess fullviss að hann verði aldrei framar ástfanginn. En þegar besti vinur hans ögrar honum stenst hann ekki mátið og ber óvænt upp bónorð við gengilbeinuna Katie
Bruce Willis Collection
Bruce Willis Collection - Inniheldur myndirnar : Die Hard (Alan Rickman) / Bandits (Billy Bob Thornton, Cate Blanchet) / The Siege (Denzel Washington) / Hart's War (Colin Farrell)
Futurama Complete Series
Futurama Complete - Seríur 1 til 4 saman í þessu 15 diska pakka. Öll ævintýri Dr. Zoidberg's, Bender's og félaga í þessum eigulega pakka.
Family Guy - Freakin Party Pack
Family Guy - Freakin Party Pack - Family Guy Seríur 1 til 6 saman í boxi. 16 diska pakki sem inniheldur alla þættina með þessari endalaust skrítnu fjölskyldu - Skyldueign í safnið !!
Femin kemur út 5.feb
Safnplatan Femin kemur út þriðjudaginn 5. febrúar. Á plötunni er að finna ballöður og popplög með flestum af vinsælustu listamönnum heimsins í dag. Meðal flytjenda eru: John Lennon, Ragnheiður Gröndal, Katie Melua, Amy Winehouse, Coldplay, Michael Jackson, Fergie, Michael Bublé og Norah Jones.
Family Guy - Blue Harvest
Er til betri leið til að halda upp á 30 ára afmæli Star Wars en að horfa á Family Guy útgáfuna af Stjörnustríðinu - Chris er Luke, Lois er Leia Prinsessa, Peter er Han Solo .....
Boston Legal - Sería 3
Denny Crane, Alan Shore, Shirley Scmidt og félagare eru mætt aftur í þriðju seríunni af þessum sívinsælu þáttum sem slegið hafa í gegn á Skjá Einum
Inniheldur alla þættina úr seríu þrjú á alls sex diskum.
James Bond Ultimate Edition - Pierce Brosnan
Allar Bond myndirnar með Pierce Brosnan saman í einum pakka - Goldeneye / Tomorrow Never Dies / The World Is Not Enough / Die Another Day
James Bond Ultimate Edition - Roger Moore
Allar Bond myndirnar með Roger Moore saman í pakka - Live And Let Die, Man With The Golden Gun, The Spy Who Loved Me, Moonraker, For Your Eyes Only, Octopussy, A View To A Kill
James Bond Ultimate Edition - Sean Connery
Allar Bond myndirnar með Sean Connery saman í pakka - Dr. No, From Russia With Love, Goldfinger, Thunderball, You Only Live Twice, Diamonds Are For Ever
Clint Eastwood Collection
Clint Eastwood Collection - Inniheldur myndirnar : A Fistful Of Dollars / The Good, The Bad And The Ugly / For A Few Dollars More / Hang 'Em High
Arnold Schwarzenegger - Collection
Arnold Schwarzenegger Collection inniheldur myndirnar : Predator / Commando / The Terminator / Conan The Barbarian
Steve McQueen - Collection
Steve McQueen Collection
Inniheldur myndirnar : The Great Escape / The Magnificent Seven / The Thomas Crown Affair / The Sand Pebbles (4 Diska Box Set)
Nýjir titlar á BluRay
Independence Day - Will Smith, Jeff Goldblum, Bill Pullman
Mr & Mrs Smith - Brad Pitt, Angelina Jolie, Vince Vaughn
Robocop - Peter Weller, Kurtwood Smith, Ronny Cox
Edward Scissorhands - Johnny Depp, Winona Ryder, Alan Arkin
Butterfly On A Wheel
Neil og Abby lifa áhyggjulausu lífi þar til dóttur þeirra er rænt og undarlegur maður, Ryan að nafni, skýtur upp kollinum. Ryan stendur augljóslega að baki mannráninu og nú krefst hann þess að hjónin vinni ýmis verk fyrir sig til að bjarga lífi til dótturinnar.
Day Watch
Aðeins eitt getur komið í veg fyrir endalok veraldarinnar. Hinir ójarðnesku varðmenn á Dagvaktinni, sem stjórna herjum ljóss og myrkurs. Þegar sonur eins yfirmannsins gengur myrkrinu á hönd eru ótrúleg öfl leyst úr læðingi og framtíð heimsins veltur á því hvort jafnvægi náist.
Brúðguminn hefur heldur betur slegið í gegn!
Kvikmyndin Brúðguminn sem Sena frumsýndi 18. janúar síðast liðinn er komin í 17.066 manns í aðsókn eftir aðeins 10 daga þrátt fyrir landsleiki, brjálað veður ofl!
SUPERBAD
Seth og Evan þrá ekkert meira en að kynnast stelpum áður en þeir halda burt í framhaldsskóla, en til þess þurfa þeir að útvega áfengi fyrir stórveislu kvöldið áður. Ásamt vini með fölsuð skilríki halda þeir af stað í leit að áfengi en þurfa um leið að flýja undan vægast sagt undarlegum lögregluþjónum.
LA VIE EN ROSE
Stórbrotinn mynd um viðburðaríka ævi Edith Piaf eftir Oliver Dahan.
Myndin var heimsfrumsýnd á kvikmyndahátiðinni í Berlín þar sam hún var opnunarmyndin og Marion Cotillard þykir vinna eftirminnilegaan stórsigur sem hin hæfileikaríka og skrautlega Piaf
Ökutímar Lay Low komin í verslanir
Tónlistarkonan Lay Low (Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir) hefur undanfarið tekið þátt í uppsetningu Leikfélags Akureyrar á verkinu Ökutímum eftir Paula Vogel. Hlutverk Lay Low var í upphafi að taka að sér tónlistarstjórn verksins í samráði við Maríu Reyndal leikstjóra. Fljótlega þróaðist verksvið Lay Low útí að taka fullan þátt í sýningunni á sviði og því er í raun um að ræða frumraun hennar á leiksviði. Ökutímar hafa verið sýndir fyrir fullu húsi hjá Leikfélagi Akureyrar síðan í byrjun nóvember og hefur verkið vakið mikla athygli og sterk viðbrögð og er ennþá í sýningu.
Brúðguminn - Dómar
* * * * *
“Íslenska kvikmyndavorinu lauk 16.janúar sl. Þá hófst langþráð íslenskt kvikmyndasumar með frumsýningu Brúðgumans eftir Baltasar Kormák sem er best heppnaða kvikmynd Íslendinga til þessa.”
Cattle Call
Lífið virðist brosa við Richie Ray, hann er ríkur, einhleypur og rekur vel heppnaða stefnumótamiðlun á netinu, “fullkominfyrirmig.com”, en þrátt fyrir það gengur honum ekki sérlega vel í ástum.
Her Best Move
Skólaárinn eru erfið og fyrir knattspyrnustúlkuna Söru Davis eru þau sérstaklega erfið. Engin stenst henni snúning á vellinum, enda er hún knúinn áfram af metnaði Gils, föður hennar, sem er þjálfari atvinnuliðs.
Halloween
Hinn tíu ára gamli Michael Myers hatar alla í fjölskyldunni nema Laurie, litlu systir sína, en henni vill hann aðeins það besta.
The Mist
Sena sýndi The Mist (Mistrið) í Smárabíói og Regnboganum. Þetta er mögnuð spennumynd frá Frank Darabont leikstjóra The Green Mile og The Shawshak Redemption eftir frábærri sögu Stephen King. Óttinn breytir öllu. Missið ekki af þessari!
Nýtt frá Jack Johnson
Brimbrettamaðurinn, umhverfissinninn, kvikmyndagerðamaðurinn og síðast enn ekki síst tónlistarmaðurinn Jack Johnson sendir frá sér sína áttundu plötu (ef með eru taldar tónlist fyrir kvikmyndir) þann 4 febrúar. Samtals hafa þær fyrstu sjö selst í yfir 15 milljónum eintaka.
Anna Og Skapsveiflurnar
Dag einn vaknar fullkomna stúlkan Anna upp mep einhvern hræðilegan sjúkdóm. Hún er döpur eftirlíking af Marylin Manson og er hræðilega mislynd.
Vacancy
Þegar bíllinn bilar langt frá mannabyggðum neyðast David og Amy Fox til að gista á eina hótelinu í grenndinni þar sem ekki er annað til afþreyingar en að horfa á sjónvarpið.
I Think I Love My Wife
Framtíðinn blasir við bankamanninum Richard Cooper. Starfsferillinn er flekklaus, hann á ástríka eiginkonu og tvö gullfalleg börn. Það er bara eitt vandamál, honum dauðleiðist!