Eftir Mánuði

Eftir Mánuði

NÝ PS3!!

27.08.2009.

Þriðjudaginn 1. september kemur út ný gerð af PlayStation 3 tölvunni, en hún mun innihalda 120GB harðan disk. Öll innri hönnun vélarinnar hefur verið tekin algjörlega í gegn sem hefur skilað sér í léttara og minna umfangi. Miðað við fyrstu útgáfu PlayStation 3 tölvunnar er þessi um það bil 35% minni og léttari. Þar að auki eyðir nýja tölvan 30% minna rafmagni sem skilar sér t.d. í lægra viftuhljóði. Útlit tölvunnar er nettara en áður og mun höfða betur til þeirra sem eru að leita að því besta sem gerist í afþreyingakerfi heimilanna.

BATMAN: ARKHAM ASYLUM™ ER KOMINN ÚT!

26.08.2009.

Nýjasta ævintýri Batman er mætt í verslanir á PLAYSTATION®3 og Xbox 360® Batman: Arkham Asylum™, sem framleiddur er af Eidos Inc. og Warner Bros. Interactive Entertainment, er nú fáanlegur í verslunum á PLAYSTATION®3 og Xbox 360®. Leikurinn er gerður af Rocksteady Studios og byggir á Batman hasarmyndablöðunum.

Sýnishorn úr AVATAR í þrívídd !

18.08.2009.

Þann 21. ágúst n.k. kl 17.30 viljum við hjá Senu bjóða þér að sjá 15 mín sýnishorn úr stórmynd James Camerons AVATAR í þrívídd (3-D) í sal 1 í Smárabíó. Á undan sýnishorninu verður sýnd stutt kynning frá sjálfum James Cameron (sem síðast gerði Titanic) þar sem hann ræðir myndina og þá byltingarkenndu tækni sem notuð var við gerð myndarinnar. Einnig munum við sýna fyrsta trailer myndarinnar (stiklu) svokallaðan tíser trailer. Boðið verður upp á léttar veitingar. Við vonum að þú sjáir þér fært að mæta. Taktu daginn frá því sjón er sögu ríkari!

Sena frumsýnir Taking of Pelham 1 2 3

18.08.2009.

Sena frumsýnir Taking of Pelham 1 2 3 á morgun 19. ágúst í Smárabíói, Regnboganum, Laugarásbíói og Borgarbíói Akureyri. Um er að ræða magnaðan spennutrylli frá Tony Scott, leikstjóra Deja Vu og Man on Fire. Vopnaðir menn taka sér gísla í neðanjarðarlest í New York og hóta öllu illu ef borgin greiðir þeim ekki lausnarfé fyrir hvern gísl. Lestarstarfsmaðurinn Walter Garbe (Denzel Washington) upplifir sína verstu martröð þegar hann þarf að takast á við höfuðpaur glæpamannanna (John Travolta).

Græna ljósið frumsýnir Funny Games

04.08.2009.

Hinn gríðarlega virti leikstjóri Michael Haneke (Cache), sem nú síðast í maí vann Gullpálmann í Cannes fyrir nýjustu mynd sýna, The White Ribbon, stúderar hér ofbeldi, nánar tiltekið kvikmyndaofbeldi og óendanlegan blóðþorsta nútíma áhorfenda. Ljóst er að þessi kvikmynd er ekki fyrir alla, hún er stranglega bönnuð innan 18 ára og viðkvæmir eru varaðir við henni. Hér er skipulega og kerfisbundið farið gegn öllum hefðum Hollywood nú til dags varðandi ofbeldi og þeir sem eru að leita að svölum ljótum köllum, yfirnáttúrulegum hetjum og hamingjusömum endalokum ættu að velja sér eitthvað annað til að glápa á!

Sena frumsýnir Crossing Over

04.08.2009.

Sena frumsýnir Crossing Over á morgun miðvikudag 5. ágúst í Smárabíói og Regnboganum. Um er að ræða frábær spennumynd með Harrison Ford og Ray Liotta í aðalhlutverkum. Harðsvíraðir glæpamenn nota sér neyð fólks og örvæntingu til að komast yfir landamærin til Bandaríkjanna. Mögnuð mynd um hvað fólk leggur á sig... með ófyrirséðum afleiðingum!

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli