Eftir Mánuði

Eftir Mánuði

Kjörinu um 100 bestu plötur Íslandssögunnar að ljúka.

27.05.2009.

Eftir langt og strangt ferli er kjörinu um 100 bestu plötur Íslandssögunnar nú að ljúka en lokað verður fyrir kosninguna á tónlist.is á miðnætti miðvikudaginn 27. maí. Upphaflega voru 485 íslenskar breiðskífur í boði, breiðskífur sem innihéldu frumútgefnar upptökur og uppfylltu hefðbundin skilyrði um að teljast breiðskífur eða LP plötur. Undanskildar voru því smáskífur, EP plötur, safnplötur og annað slíkt. Í kjöri 100 manna dómnefndar og með víðtækri þátttöku almennings voru valdar þær 100 plötur sem bestar þykja og í seinni hlutanum voru því aðeins þessar 100 plötur í boði og ætlunin að raða plötunum í sín endanlegu sæti á listanum góða.

The Day The Earth Stood Still - DVD og Blu Ray

25.05.2009.

Keanu Reeves er hér í hlutverki Klaatu, veru frá öðrum heimi sem kemur til jarðarinnar og hrindir af stað atburðum sem ógna öllu lífi. Í örvæntingarfullri tilraun til að bjarga mannkyninu, taka stjórnvöld og vísindamenn saman höndum til að freista þess að skýra leyndardóminn að baki komu gestsins.

Futurama: Into The Wild Green Yonder - DVD

25.05.2009.

Myrk öfl, eldri en tíminn sjálfur, gera árás í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að nýtt (og grænt) tímabil hefjist í sögunni. Vitið þið nokkuð andstyggilegra? Og það sem verra er, Bender er ástfanginn af giftri vélþokkadís og Leela á flótta undan lögreglunni.

Beowulf and Grendel - DVD

25.05.2009.

Tröllið Grendel fer ránshendi um ríki Hróðgars konungs, en viðleitni Bjólfs til að standa gegn ófreskjunni verður að engu þegar Grendel neitar að mæta honum í bardaga. Þegar Bjólfur kynnist síðan Selmu, dularfullri og fallegri norn

How I Met Your Mother: Season 2

25.05.2009.

Draumadísin hans er einhvers staðar þarna úti, en hver er hún? Ted er á þrítugsaldri og í stöðugri leit að eina, rétta sálufélaganum. Vinir hans, Marshall og Lily, eru í óða önn að undirbúa brúðkaup sitt en hinn óforbetranlegi Barney er enn sannfærður piparsveinn.

How I Met Your Mother: Season 3

25.05.2009.

Leitin að rétta sálufélaganum hefur aldrei verið eins brjálæðislega fyndin. Þrítugsafmælið nálgast óðfluga og Ted hefur enn ekki fundið þá einu réttu. Ann rekst á ýmsar hindranir, vaknar einn morguninn með óvænt húðflúr

GUITAR HERO® METALLICA® KEMUR Á FÖSTUDAGINN

25.05.2009.

Hér fá leikmenn tækifæri á að skella sér inní heim Metallica þar sem Lars Ulrich, James Hetfield, Kirk Hammett og Robert Trujillo fara hamförum í sínum heitustu lögum, hvort heldur það sé á gítar, með söng, bassa eða dúndrandi trommuslætti. Leikurinn inniheldur meira en 45 gargandi rokklög sem eru annarsvegar flutt af Metallica og hinsvegar flutt af meira en 20 hljómsveitum sem hafa haft áhrif á Metallica bandið í gegnum tíðina.

Punisher 2: War Zone - DVD og Blu Ray

20.05.2009.

Frank Castle, fyrrverandi sérsveitarmaður, er mættur aftur, í þetta sinn í einkastríði á tveimur vígstöðvum. Hann hefur afmyndað glæpaforingjann Billy Russoti illa í bardaga þar sem alríkislögreglumaður beið einnig bana og Russoti er staðráðinn í að ná fram hefndum.

Sena HEIMSfrumsýnir Night at the Museum 2

19.05.2009.

Sena HEIMSfrumsýnir Night at the Museum: Battle of the Smithsonian á morgun miðvikudag 20. maí í Smárabíói, Regnboganum, Háskólabíó, Laugarásbíói, Borgarbíói Akureyri og Keflavík. Ben Stiller leikur öryggisvörðinn Larry Daley sem laumar sér inn í stærsta safn í heimi, Smithsonian safnið í Washington í þeim tilgangi að bjarga nokkrum heimsfrægum karakterum sem hafa verið fluttir í safnið fyrir mistök. Upphefst nú mikið stríð í safninu þegar forfrægar sögulegar verur vakna til lífsins og taka þátt í stríðinu! Frábær ævintýra gamanmynd í anda fyrri myndar með Ben Stiller, Owen Wilson og Robin Williams ásamt fullt af flottum aukaleikurum í fanta formi.

Green Day með sína áttundu plötu

14.05.2009.

Áttunda plata ameríska rokktríósins Green Day kemur út á föstudaginn. Platan heitir 21st Century Breakdown og er fyrsta hljóðversplata þeirra síðan American Idiot kom út árið 2004, en hún sló rækilega í gegn útum allan heim, rakaði saman Grammy verðlaunum og hefur selst í yfir 12 milljónum eintaka.

Lhasa de Sela með nýja plötu

14.05.2009.

Þriðja plata Mexíkósk/bandarísku tónlistarkonunnar Lhasa de Sela kemur út hér á landi mánudaginn 18 maí, en platan heitir einfaldlega ”Lhasa”.

Thief 4

13.05.2009.

Fyrsti Thief leikurinn, Thief: The Dark Project setti nýja staðla í gerð fyrstu persónu leikja og bjó til nýja leikjagerð þar sem áherslan var á að læðast um og láta lítið fyrir sér fara. Leikir Thief seríunnar hafa fengið góða dóma og hlotið fjölmargar viðurkenningar, en þar á meðal eru GameSpy Hall of Fame og GameSpot Greatest Games of All Time

Sena HEIMSfrumsýnir Angels & Demons

12.05.2009.

Sena HEIMSfrumsýnir Angels & Demons (Engla og Djöfla) á morgun miðvikudag 13. maí í Smárabíói, Regnboganum, Háskólabíó, Laugarásbíói, Borgarbíói Akureyri og Keflavík. Robert Langdon (Tom Hanks) er boðaður með skömmum fyrirvara til Sviss að rannsaka vettvang óhugnalegs morðs á þekktum vísindamanni. Fyrr en varir er hann flæktur inn í aldalangar erjur kaþólsku kirkjunnar og leynifélagsins Illuminati sem hefur í hyggju að sprengja sjálft Vatíkanið í loft upp. Byggð á metsölubók Dan Brown, höfunds Da Vinci Lykilsins.

Handball Manager 2009 kominn út!

12.05.2009.

Glænýr “manager” leikur sem inniheldur öll helstu lið handboltaheimsins, bæði landslið og félagslið. Þar á meðal er íslenska landsliðið og efsta deildin á Íslandi. Hér þurfa leikmenn að setja upp leikkerfi, kaupa og selja leikmenn, koma að rekstri félagsins og koma liðinu á toppinn. Meðal landsliðskeppna eru Ólympíuleikarnir og Heimsmeistarakeppnin. Í Handball Manager 2009 er þrívíddar grafíkvél þar sem leikmenn geta séð kerfin spilast. Leikurinn inniheldur bæði lið kvenna og karla.

Nick And Norah‘s Infinite Playlist - Blu Ray og DVD

11.05.2009.

Nick og Norah hittast af tilviljun og leggja upp í leiðangur um rokkheima New York í leit að tónleikum sem eiga að fara leynt og hafa ekkert verið auglýstir, en eru þó með frægri hljómsveit.

Accidental Husband - DVD

11.05.2009.

Þegar spjallþáttastjórnandinn Emma (Uma Thurman) ráðleggur ungri konu að segja slökkviliðsmanninum, unnusta sínum (Jeffrey Dean Morgan) upp, rétt fyrir brúðkaupið, finnur hann upp á djöfullegri hefndaráætlun.

Nýtt hálfvitalag í spilun.

11.05.2009.

Já nú hefur aldeilis dregið til tíðinda í Hálfvitalandi því að nú er nýtt lag með Ljótu hálfvitunum að fara í það sem fagmennirnir kalla „spilun“. Það þýðir að hljóðritun með einhverju ákveðnu lagi hefur verið sent á útvaprstöðvar í þeirri von að fólki finnist það skemmtilegt og vilji hlusta á það, hringi jafnvel í útvarpsfólk og trufli það við vinnu sína í þeim eina tilgangi að biðja það um að spila þetta tiltekna lag. Þessa iðju (þ.e. að setja lög „í spilun“) hafa hálfvitar ekki mikið stundað en reyndir menn úr bransanum segja að það sé sniðugt.

Tónlistin úr The Boat That Rocked er komin út

08.05.2009.

Tónlistin úr The Boat That Rocked er komin út, en myndina framleiddu þeir sömu gerðu “Four Weddings and a Funeral”, “Notting Hill” og “Love Actually”, sem er ávísun á góða tónlist.

Trúbrot 1969 – 1972

07.05.2009.

Út er komið heildarsafn með hljómsveitinni Trúbrot í myndarlegri öskju. Askjan inniheldur allar fjórar plötur sveitarinnar „Trúbrot“, „Undir áhrifum“, „....lifun“ og „Mandala“. Þá eru tvær litlu plöturnar sem komu út 1970 sem aukalög á fyrstu plötunni. Á fyrstu plötunni er einnig sem aukalag „Breyttu bara sjálfum þér„ sem var ekki gefið út er platan kom út upphaflega, en var fyrst útgefið er platan kom fyrst út á geislaplötu. Með öskjunni fylgir einkar veglegur 52 síðna bæklingur þar sem saga sveitarinnar er rakin í máli og myndum. Það er Jónatan Garðarsson sem fer yfir sögu þessarar einna merkustu hljómsveitar í íslensku poppi.

Yusuf Islam með nýja plötu

05.05.2009.

Út er komin glæný plata með Yusuf Islam, sem margir þekkja betur undir nafninu Cat Stevens.

Seven Pounds - DVD og BD

04.05.2009.

Will Smith er hér í hlutverki Bens Tomas, manns sem stendur á krossgötum í lífinu og leitar leiða til að létta á samvisku sinni. Hann kemst að því að hann hefur vald til að breyta aðstæðum sjö persóna sem eiga skilið að fá annað tækifæri.

Rachel Getting Married - DVD og BD

04.05.2009.

Þegar Kym Buchman kemur heim til að vera við brúðkaup systur sinnar hefur hún í farteskinu langa sögu af persónulegum vandamálum, fjölskyldudeilum og sorgum. Fjölskylda og vinir brúðhjónanna hafa hugsað sér að verja saman ánægjulegri helgi, lausri við vandamál og hvers kyns leiðindi, en Kym hefur einstakt lag á að kynda undir spennunni sem brátt nær suðumarki.

Bob Dylan með glænýja plötu

04.05.2009.

Goðsögnin Bob Dylan hefur sent frá sér plötuna Together Though Life, sem er hljóðversplata númer 35.

Ný með Depeche Mode

04.05.2009.

Tólfta hljóðversplata bresku sveitarinnar Depeche Mode er komin út.

Nýjar plötur í viku 15

04.05.2009.

Helstu plötur þessa vikuna eru með sjálfum Neil Young, kanadísku rokksveitinni Queensryche, Stevie Nicks og fleirum.

Nýjar plötur í viku 14

04.05.2009.

Í þessari viku koma út nýjar plötur með meðal annars Dianu Krall, Leonard Cohen, Mastodon, PJ Harvey, Lisu Ekdahl, JJ Cale og fleir og fleiri.

Australia - DVD og Blu Ray

04.05.2009.

Nicole Kidman og Hugh Jackman sýna snilldarleik í sögulegri kvikmynd sem gerist við upphaf síðari heimsstyrjaldarinnar. Ensk hefðarkona á ferðalagi um Ástralíu kemst þar í kynni við býsna sérstakan kúreka og heillandi frumbyggjabarn þegar hún tekur þátt í nautgriparekstri yfir hinar fögru en hrjóstrugu óbyggðir Ástralíu.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli