Eftir Mánuði

Eftir Mánuði

SingStar® dettur í gírinn

28.04.2009.

Nú er tækifærið til að missa sig í SingStar®, því nú hefur Sony fyrirtækið gefið út þráðlausa hljóðnema fyrir SingStar leikina. SingStar netsamfélagið hefur þegar gefið þessum nýju hljóðnemum topp dóma, en þessi magnaða græja veitir fullt frelsi þegar sungið er í SingStar. Nú er ekkert að vanbúnaði að hoppa uppá borð eða taka sporið um leið og barkinn er þaninn.

The Promotion - DVD

28.04.2009.

Aðstoðarframkvæmdastjórinn virðist augljóslega næstur í röðinni þegar kemur að því að velja framkvæmdastjóra nýju verslunarinnar sem fyrirtækið er að fara að opna. Það er að segja þar til nýkomni Kanadamaðurinn tekur að sækjast eftir starfinu.

Cadillac Records - DVD

28.04.2009.

Hér er lýst blómatíma hljómplötuútgáfunnar Chess Records sem var í eigu Leonards Chess og lífi listamannanna sem komu þar við sögu, svo sem Muddy Waters, Little Walters, Chuck Berry, Willie Dixon og hinnar merku Ettu James.

Sena HEIMSfrumsýnir X-Men Origins: Wolverine

27.04.2009.

Sena HEIMSfrumsýnir X-Men Origins: Wolverine núna á miðvikudag 29. apríl í Smárabíói, Háskólabíó, Laugarásbíói, Sambíóunum Álfabakka og Borgarbíói Akureyri. Wolverine (Hugh Jackman) lifir einföldu og einöngruðu lífi með unnustu sinni þegar Viktor bróðir hans (sem seinna verður Sabertooth) drepur hana. Wolverine leitar hefnda fyrir morðið og örlögin haga því þannig að hann fer í gegnum hið stökkbreytta “vopnakerfi” sem kallað er X og verður sá hrikalegi og öflugi Wolverine sem við þekkjum úr X-Men myndunum þremur. HEIMSFRUMSÝNING Á FYRSTU STÓRMYND SUMARSINS. MYND SEM ENGIN MÁ MISSA AF Í BÍÓ!

Íslensk tónlist frá Senu í sumar.

27.04.2009.

Nú er óðum að skýrast hvernig íslensk tónlistarútgáfa Senu og Íslenskra tóna mun líta þetta sumarið. Útgáfan verður fjölbreytt sem endranær og ættu flestir að finna eitthvað við sitt hæfi.

100 bestu plöturnar eru fundnar

22.04.2009.

Undanfarna 10 virka daga hefur Rás 2 sagt frá 10 plötum á dag sem fylla listann yfir 100 bestu plötur Íslandssögunnar og nú er svo komið að listinn er fylltur og plöturnar eitt hundrað komnar í ljós. Sjá má niðurstöðuna, í stafrófsröð á www.tonlist.is/100bestu Þann 4. maí hefst seinni hluti leitarinnar en þá er ætlunin að almenningur og dómnefnd raði þessum 100 plötum í sæti. Ef rýnt er í listann kemur margt merkilegt í ljós. Þegar skoðað er hvaða flytjendur eru aðilar að flestum plötum á listanum koma kunnugleg nöfn strax fram; Björk Guðmundsdóttir tengist sjö plötum, Bubbi og hljómsveitir níu plötum, Sigur Rós á fimm plötur á listanum og Megas sjö plötur en það er Egill Ólafsson sem tengist flestum plötum eða ellefu talsins því Spilverk þjóðanna á þrjár plötur á listanum þar sem hann kemur við sögu, Megas og Spilverkið eina, Þursaflokkurinn aðrar fjórar og Stuðmenn þrjár. Samtals eru 61 skráður flytjandi að þessum plötum og koma þær frá 23 útgefendum.

Vicky Cristina Barcelona - DVD

21.04.2009.

Fyndnasta og skemmtilegasta mynd Woody Allen í áraraðir og ein besta mynd síðasta árs að mati gagnrýnenda. Javier Bardem, Scarlett Johanson og Penelope Cruz fara á kostum í rómantískri gamanmynd sem hefur rakað til sín verðlaunum. New York lék stórt hlutverk hjá Woody Allen í myndum á borð við Manhattan en hér er það Barcelona sem er leikvöllurinn fyrir ástarævintýri Vicky og Cristinu.

Regína - DVD

21.04.2009.

Regína er ósköp venjuleg 10 ára stelpa í Reykjavík. Hún býr með móður sinni og dreymir um að komast í sumarbúðir. Dag einn uppgötvar hún að hún getur látið hluti gerast með því að syngja um þá. Hún og Pétur vinur hennar ákveða að snúa á örlögin og hrinda af stað áætlun sem varðar framtíð þeirra og foreldra þeirra.

X-Men Trilogy - DVD

21.04.2009.

Stökkbreyttar verur sem búa yfir ótrúlegum hæfileikum eru helsta von mannkyns í framtíðinni og um leið mesta ógnin. Undir stjórn Charles Xavier prófessors (Patrick Stewart) berst hópur sem þekktur er undir nafninu X-men fyrir friðsamlegri sambúð manna og stökkbrigðanna.

Roxy Hunter And The Secret Of The Shaman - DVD

21.04.2009.

Þegar Roxy Hunter, fjörug níu ára stúlka, flytur í undarlegt, gamalt hús uppgötvar hún undraheim með dularfullum ráðgátum. Hún fær besta vin sinn, snillinginn Max, í lið með sér og í sameiningu tekst þeim að leysa morðgátu, bjarga húsinu og sameina gamla elskendur í öðrum heimi.

Quarantine

14.04.2009.

Þegar fréttatökuteymi á að að fylgja eftir hópi slökkviliðsmanna dettur engum í hug að fyrsta hjálparbeiðnin sem brugðist er við kunni líka að verða sú síðasta. Nú situr hópurinn fastur inni í íbúðabyggingu sem stjórnvöld hafa látið loka og engin undankomuleið virðist möguleg.

Skógarstríð 2

07.04.2009.

Elli er yfir sig ástfanginn af Gísellu en leiðin upp að altarinu lengist verulega þegar hópur fordekraðra gæludýra rænir herra Sperðli og hyggst skila honum aftur til eiganda síns. Búi, Elli, McSquizzy og hin skógardýrin halda í björgunarleiðangur til að frelsa vin sinn og fyrr en varir eru þau stödd í herbúðum óvinanna, heimi gæludýranna.

Max Payne

07.04.2009.

Lögreglumaðurinn Max Payne ber takmarkaða virðingu fyrir reglum og hefur engu að tapa. Hann er staðráðinn í finna þá sem myrtu fjölskyldu hans og koma fram hefndum, en rannsóknin leiðir hann á slóðir þar sem óljós mörk eru á ímyndun og raunveruleika.

Dr. Dolittle 5

07.04.2009.

Maya Dolittle gefur drauminn um að verða dýralæknir upp á bátinn og þau Lucky halda til Los Angeles þar sem hún fær starf við spjallþátt um dýr undir stjórn hinnar frægu og vellauðugu Tiffany Monaco.

Sena frumsýnir Draumalandið

06.04.2009.

Sena frumsýnir Draumalandið á miðvikudag 8. apríl í Smárabíói og Háskólabíói. Þetta er mögnuð og áhrifamikil kvikmynd í fullri lengd í leikstjórn Þorfinns Guðnasonar og Andra Snæs Magnasonar. Draumalandið er líklega eitt viðamesta heimildarmyndaverkefni sem ráðist hefur verið í á Íslandi. Myndin stefnir saman tilfinningum, vonum og væntingum, gömlu og nýju myndefni svo úr verður stór og epísk heimildarmynd sem nýtur sín hvergi betur en á hvíta tjaldinu.

Sena frumsýnir Dragonball: Evolution

06.04.2009.

Sena frumsýnir Dragonball: Evolution á föstudag 8. apríl í Smárabíói, Háskólabíó og Regnboganum. Frábær ævintýra- og spennumynd byggð á japanskri teiknimyndasögu um hetjuna Goku, öflugan stríðsmann sem verndar jörðina frá þrjótum og svikahröppum sem vilja ráða yfir jörðinni og stjórna dularfullum hlutum – drekaboltum sem geyma öflugt leyndamál. Mjög vinsæll tölvuleikur byggður á sömu sögu. Með aðalhlutverk fer Yun-Fat Chow ásamt Justin Chatwin.

Eberg sendir frá sér plötuna Antidote.

02.04.2009.

Í dag sendir tónlistarmaðurinn Einar Tönsberg frá sér sína þriðju breiðskífu, Antidote. Einar, sem er betur þekktur undir nafninu Eberg, hefur verið afspyrnu iðinn við kolann síðustu árin enda hafa plöturnar Plastic Lions og Voff Voff fengið dreifingu víða um heim og mikið lof hvarvetna. Tónlist Ebergs hefur vakið mikla athygli en lög af Voff Voff fengu m.a. að njóta sín í sjónvarpsþáttunum vinsælu The O.C. og Veronica Mars auk þess sem lagið Inside Your Head hljómaði í fyrstu iPhone auglýsingunni Vestanhafs.

Jak og Daxter™ sameinast aftur!

01.04.2009.

Þetta magnaða tvíeyki er væntanlegt aftur í leiknum Jak and Daxter™: The Lost Frontier á bæði PSP™ (PlayStation®Portable) og PlayStation®2 Hetjan Jak og hinn uppátækjasami félagi hans Daxter eru komnir saman á ný...en þetta er í fyrsta sinn sem þeir snúa bökum saman á PSP™ (PlayStation®Portable). Búið ykkur undir nýjasta leikinn í hinni geysivinsælu Jak og Daxter seríu, Jak and Daxter™: The Lost Frontier frá Sony Computer Entertainment. Búið ykkur undir stanslausan hasar og ævintýramennsku, þar sem tvíeykið þvælist um dularfull lönd í tilraun sinni til að bjarga plánetu sinni frá eyðileggingu. Takið þetta einstaka ævintýri með ykkur í ferðalagið á PSP™, eða spilið leikinn heima á PlayStation®2 – báðir leikirnir koma út í haust.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli