Eftir Mánuði

Eftir Mánuði

POTTÞÉTT 49 kemur út 7.apríl.

31.03.2009.

Nýjasta safnplatan í Pottþétt röðinni vinsælu kemur út þriðjudaginn 7. apríl. Á plötunum er að finna flest af vinsælustu lögum dagsins í dag. Á Pottþétt 49 eru 16 íslensk lög og þar af eru 11 áður óútgefin. Nýju lögin eru með eftirtöldum flytjendum: Árstíðir, Hjaltalín, Nýdönsk, Ingó og Veðurguðirnir, Elektra, Erna Hrönn og JES, Feldberg, Í svörtum fötum, Hjálmar, Papar og Haffi Haff. Aðrir íslenskir flytjendur eru: Jeff Who?, Baggalútur, Jóhanna Guðrún, Ingó og Lay Low. Meðal erlendra flytjenda á plötunum eru: The Killers, Kings Of Leon, Katy Perry, Empire Of The Sun, Lady Gaga, Lily Allen, REM og Starsailor. Pottþétt 49 er 86. Pottþétt platan í Pottþétt útgáfuröðinni sívinsælu.

ZACK AND MIRI MAKE A PORNO

31.03.2009.

Seth Rogen og Elizabeth Banks leika tvo leigufélaga sem ætla að reyna að losa sig úr skuldum með því að framleiða klámmynd. Þegar myndatakan hefst verður málið allt í einu flóknara - og vandræðalegra.

SECRET LIFE OF BEES

31.03.2009.

Hin 14 ára Lily Owens býr hjá ofbeldisfullum og reiðum föður en veit afar lítið um móður sína og á endanum flýr hún að heiman ásamt fóstru sinni og vinkonu, Rosaleen. Þær enda í litlum bæ í Suður-Karólínu þar sem Boatwright-systurnar þrjár taka hana að sér, en þær rækta býflugur.

BEITIR SVERÐI TIL AÐ NÁ FRAM BLÓÐUGUM HEFNDUM!

30.03.2009.

Atari hefur tilkynnt að Afro Samurai leikurinn sé kominn út á PLAYSTATION 3 og XBOX 360. Hér er á ferðinni miskunarlaus hasarleikur sem snýst um hefnd og aftur hefnd. Afro Samurai sameinar það flottasta sem við þekkjum frá Hollywood kvikmyndunum, það heitasta sem era ð gerast í hip-hop tónlistinni og anime stílnum.

Sena frumsýnir Mall Cop

25.03.2009.

Sena frumsýnir Mall Cop á föstudag 27. mars í Smárabíói, Háskólabíó, Laugarásbíó og Borgarbíói Akureyri. Þetta er frábær gamanmynd með Kevin James úr sjónvarpsþáttunum King of Queens í aðalhlutverki. Hann leikur öryggisvörð í verslunarmiðstöð sem tekur starf sitt mjög alvarlega. Aðrir gera óspart grín að honum en þegar verslunarmiðstöðin er tekin yfir af óprúttnum en vel þjálfuðum þjófum er hann sá eini sem getur komið til bjargar! Vinsælasta gamanmyndin í Bandaríkjunum í dag með yfir 140 milljónir dollara í tekjur og sat tvær vikur á toppnum!

100 bestu plötur Íslandssögunnar.

24.03.2009.

Val á 100 bestu plötum Íslandssögunnar er hafið í samstarfi Félags Hljómplötuframleiðenda, Rásar 2 og Tónlist.is. Þessa dagana stendur yfir fyrsti hluti valsins þar sem öllum gefst kostur á að koma á framfæri tillögum að plötum sem komið geta til greina en fyrir var búið að velja um það bil 400 plötur. Sjá: www.tonlist.is/100bestu Næst komandi föstudag hefst svo hið eiginlega kjör þar sem bæði almenningur og sérstök 100 manna dómnefnd velja 100 bestu plöturnar, af þessum langa lista án þess þó að raða þeim í sæti. Ætlunin er að kynna niðurstöðu dómnefndar og almennings á því hvaða plötur skipa 100 efstu sætin (í stafrófsröð) á Rás 2 dagana fyrir sumardaginn fyrsta og hefja með því Íslenskt tónlistarsumar. Þegar listinn hefur verið skorinn niður í 100 plötur tekur seinni hluti kjörsins við þar sem almenningur og dómnefndin raða plötunum í sæti. Hina endanlögu niðurstöðu er svo ætlunin að kynna 17. júní.

QUANTUM OF SOLACE - DVD & Blu Ray

24.03.2009.

Í baráttu sinni fyrir réttlæti hittir Bond hina fögru og ófyrirleitnu Camille og hún leiðir hann á slóð Dominic Greene, samviskulauss viðskiptajöfurs og eins aðalmannsins innan hinna dularfullu samtaka Quantum.

Rockstar Games gefa út Max Payne 3 í vetur

23.03.2009.

Rockstar Games, hafa tilkynnt að þeir séu að vinna að leiknum Max Payne 3, en hann er væntanlegur í vetur á PC, PlayStation 3 og Xbox 360. Leikurinn er gerður af Rockstar Vancouver, en Max Payne 3 segir sögu af lögreglumanni sem kominn er á eftirlaun, en er fastur í heimi spillingar, ringulreiðar og ofbeldi.

Sena frumsýnir Killshot

18.03.2009.

Sena frumsýnir Killshot á föstudag 20. mars í Smárabíói og Regnboganum. Þetta er æsispennandi þriller í fantafínni leikstjórn John Madden gerð eftir sögu meistara Elmore Leonard með Diane Lane og Mickey Rourke í aðalhlutverkum. Myndin fjallar um hjón (Diane Lane og Thomas Jane) sem eru sett í vitnavernd eftir að hafa orðið vitni að ákveðnu atriði sem tengist eftirlýstum leigumorðingja mafíunnar (Mickey Rourke). Hjónin halda að þau séu örugg en eru í raun hundelt af leigumorðingjanum og félaga hans, ungum geðveikum morðingja leikin af Joseph Gordon-Levitt! Uppgjör er óflýjanlegt í lokin loksins þegar morðingjarnir hafa uppi á hjónunum með ófyrirséðum afleiðingum!

Sena frumsýnir Bláa fílinn

18.03.2009.

Sena frumsýnir Bláa fílinn (The Blue Elephant) á föstudag 20. mars í Smárabíói, Háskólabíói, Laugarásbíói og Borgarbíói Akureyri. Um er að ræða frábæra teiknimynd fyrir alla fjölskylduna með íslensku tali um lítinn bláan fíl sem verður viðskila við mömmu sína þegar hann fer að leita að pabba sínum. Ungi fílinn lendir í mörgum og miklum hremmingum og ævintýrum og kemst að því að pabbi hans var frægur bardagafíll sem lét lífið í miklum bardaga við annan fíl. Blái fíllinn stækkar og verður á endingu arftaki pabba síns sem mikill leiðtogi og bardagafíll. Hann finnur mömmu sína og býr sig undir mikinn bardaga við fílinn ógurlega sem drap pabba hans. Þetta er mögnuð og stórskemmtileg mynd um vináttu, ást og hugrekki fyrir unga sem aldna.

House Bunny

18.03.2009.

Þegar eftirlætiskanínunni er vísað burt frá Playboy setrinu, ráfar hún um í reiðileysi í Beverly Hills. En svo rekst hún á sorglega systrafélagið Zeta, Alpha, Zeta og finnur þar heimili, þar sem hún getur svo sannarlega notað hæfileika sína til góðs.

Shredderman Rules

18.03.2009.

Nolan Byrd er ekki einn um að mislíka þegar mesta hrekkjusvín skólans ráðskast með hann, en hann hefur þann heiður að vera eftirlætisfórnarlamb Bubba Bixby. Það er nógu slæmt að hann rændi besta vini Nolan en til að gera illt verra nýtur Bubba þess að niðurlægja Nolan frammi fyrir draumadísinni hans. En einn góðan veðurdag hefur Nolan Byrd fengið nóg og Tætarinn verður til.

Screamers – The Hunting

18.03.2009.

Þrettán ár eru síðan drápsvélarnar sem þekktar eru sem Screamers útrýmdu mannkyninu á Síríusi 6B. En nú heyrist neyðarkall og björgunarsveit er send til plánetunnar sem annars á að vera mannlaus.

The Rocker

11.03.2009.

Tuttugu árum eftir að hafa verið rekinn úr rokkhljómsveit sem var næstum því orðin fræg fær Robert “Fish” Fishman annað tækifæri þegar hann gengur í bílskúrshljómsveit með frænda sínum og fleiri skólastrákum.

The Lodger

11.03.2009.

Lögreglumaður leitar raðmorðingja sem drepur vændiskonur á Sunset Strip í Hollywood en aðferðir hans líkjast aðferðum Jack the Ripper sem hélt Lundúnaborg í heljargreipum á 19. öld og lögreglunni tókst aldrei að hafa uppi á.

Tölvuleikir Vikunnar

10.03.2009.

Þessa vikuna kemur út mikill fjöldi leikja...fyrstan skal telja SingStar Queen á PlayStation 2...einnig er að detta inn SOCOM Confrontation á PlayStation 3...Leikjapakkinn Sega Mega Drive Ultimate Collection er mættur á PlayStation 3 og Xbox 360...PSP fær sinn skammt í formi Resistance Retribution og Patapon 2...Simsarnir mæta í nýjum leik eða MySims Party á Nintendo DS og Wii...þetta og margt fleira..

Erlend tónlist - Nýtt efni

09.03.2009.

Í þessari viku - nýjasta plata U2, þriðja sólóplata Chris Cornell, tónlistin úr Slumdog Millionaire og margt fleira. Sjá nánar.

Sena frumsýnir Marley & Me

04.03.2009.

Sena frumsýnir Marley & Me á föstudag 6. mars í Smárabíói, Háskólabíó, Laugarásbíói og Borgarbíói Akureyri. Toppmyndin í Bandaríkjunum tvær vikur í röð um jólin með stórstjörnunum Jennifer Aniston og Owen Wilson í aðalhlutverkum. Þessi stórskemmtilega gamanmynd fjallar um par sem fær sér lítinn hvolp, Marley sem verður alls ráðandi og yfirgengilegur þegar hann stækkar. Hundurinn er taugaveiklaður og nánast brjálaður en þau elska hann samt og týma ekki að gefa hann frá sér jafnvel þó þau eignist 3 börn. Marely er ótrúlega uppátækjasamur og fyndin og við fylgjumst með honum eldast og dafna hjá fjölskyldu sinni allt þar til yfir lýkur á hjartnæman en undursamlegan hátt. Byggð á samnefndri metsölubók.

Íslensk afþreying ákveður að ganga að kauptilboði í Senu

04.03.2009.

Stjórn Íslenskrar afþreyingar hf. hefur gengið að tilboði Garðarshólma Rekstrarfélags í öll hlutabréfin í Senu að undangengu formlegu söluferli . Tilboðið, sem er með fyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakönnunar, metur heildarvirði Senu á 500 m.kr. Garðarshólmi yfirtekur engar skuldir frá Íslenskri afþreyingu við söluna. Straumur fjárfestingabanki hf. annaðist formlegt söluferli á Senu. Söluferlið hófst í janúar s.l. og óskuðu þá 20 aðilar eftir formlegri þátttöku. Átta aðilar skiluðu inn óskuldbindandi tilboðum í félagið fyrir 5. febrúar s.l. Í framhaldinu var gengið til viðræðna við þá er höfðu lagt fram hagstæðustu tilboðin en frestur þeirra til að skila inn bindandi tilboði rann út í gær. Capacent Fyrirtækjaráðgjöf var ráðgjafi Garðarshólma í ferlinu. Sena er stærsta afþreyingarfyrirtæki landsins og felur starfsemin í sér innflutning og sölu á tónlist, kvikmyndum og tölvuleikjum ásamt því að skipuleggja atburði af ýmsum toga, með íslenskum og erlendum listamönnum. Sena rekur verslanir Skífunnar og kvikmyndahúsin Smárabíó, Háskólabíó, Regnbogann og Borgarbíó Akureyri.

Pineapple Express

03.03.2009.

Dópisti nokkur og auðnuleysingi verður vitni að morði sem framið er af illskeyttum fíkniefnasala og óheiðarlegri löggu. Hann gerir sér grein fyrir því að hann er svo gott sem dauðadæmdur

Meet Dave

03.03.2009.

Hann er hvorki feiminn né klæddur samkvæmt diskótísku en Dave Ming Chang er ólíkur öllum öðrum í New York. Hann er nefnilega geimvera, nánar tiltekið geimskip í sendiför til Jarðar til að bjarga heimaplánetunni.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli