Eftir Mánuði
Sena frumsýnir Alvin og íkornarnir 2
Sena frumsýnir Alvin og íkornarnir 2 26. desember í Smárabíói, Háskólabíói, Laugarásbíói, Regnboganum og Borgarbíói Akureyri. Alvin, Theódor og Símon eru mættir aftur í stórskemmtilegu framhaldi fyrri myndar sem sló í gegn árið 2007 og tók yfir 25 þús manns í aðsókn hér á landi. Þeir þurfa nú að mæta Birgittu, Jónu og Elínborgu í hljómsveitinni skríkjunum í þessari frábæru gamanmynd fyrir alla fjölskylduna sem verður frumsýnd með íslensku og ensku tali annan í jólum um land allt.
Með helstu hlutverk í íslensku talsetningunni fara Atli Rafn Sigurðarson, Björgvin Franz Gíslason, Þrúður Vilhjálmsdóttir, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir og Inga María Valdimarsdóttir en þær þrjár síðast töldu tala fyrir skríkjurnar þrjár og Víðir Guðmundsson, Ólafur S.K. Þorvaldz og Bjartmar Þórðarson sem tala fyrir íkornana. Íslensk talsetning fór fram í Stúdíó Sýrlandi í nóvember 2009 undir leikstjórn Rósu Guðnýjar Þórsdóttur og framkvæmdastjóri var Páll Ólafsson.
METBÍÓAÐSÓKN Á AVATAR UM HELGINA!
Íslenskir bíógestir létu ekki segja sér það tvisvar að upplifa töfra Pandóru í hinni byltingarkenndu stórmynd James Cameron um helgina. Þegar tölurnar eru teknar saman er þetta lang stærsta opnun ársins eða 55% stærri opnun en 2012 sem átti fyrir stærstu opnun ársins. Að auki er þetta næst stærsta opnun á kvikmynd í desember frá upphafi. Heildartekjur með miðnæturfrumsýningum námu um 16.2 milljónum króna og sóttu myndina yfir 14.000 manns!
Sena HEIMSfrumsýnir AVATAR á föstudag 18. desember
Sena HEIMSfrumsýnir AVATAR á föstudag 18. desember í Smárabíói, Háskólabíói, Laugarásbíói, Regnboganum Borgarbíói Akureyri og Keflavík bæði í stafrænni þrívídd (3-D) og í 2-D.
Avatar er byltingakennd stórmynd eftir James Cameron leikstjóra Titanic. Mynd sem kvikmyndaáhugafólk um allan heim hefur beðið eftir í mörg ár og mun líklega breyta bransanum til frambúðar. Með aðalhlutverk fara Sam Worthington, Sigourney Weaver, Michelle Rodriguez, Zoe Saldana og Giovanni Ribisi.
Avatar gerist í framtíðinni á litlu tungli sem heitir Pandóra. Á Pandóru býr ættbálkur sem nefnast Na´vi en það eru 3 metra háir frumbyggjar bláir að lit sem hafa skýr einkenni mannfólks. Þetta eru friðsamar verur nema það sé ráðist á þær. Mannfólkið getur ekki andað að sér loftinu á Pandóru svo vísindamenn erfðafræðilega búa til blending af manni og Na´vi sem kallast Avatar (manngervingur) og þeir stjórna þessum Avatörum í gegnum hugartengsl/hugsanahlekk.
Lamaður landgönguliði í bandaríska flotanum að nafni Jake Sully (leikin af Sam Worthington) býður sig fram til þess að lifa sem Avatar á Pandóru og njósna um Na´vi fyrir herinn en verður ástfanginn af Neytiri, fallegri Na'vi prinsessu og fyrr en varir verður hann flæktur í átök milli hersins og ættbálks hennar en innrás hersins gæti tortýmt plánetunni!
Allar nánari upplýsingar, viðtöl, myndir í prentgæðum og myndbrot (trailerar) ofl um myndina er að finna á www.sena.is/avatar
Söknuður er komin út á hljóðbók
Söknuður ævisaga Vilhjálms Vilhjálmssonar eftir Jón Ólafsson er komin út á hljóðbók. Hljóðbókin er skreytt á nýstárleg með tónlist Vilhjálms Vilhjálmssonar. Jón Ólafsson höfundur les bókina sem er bæði fáanleg í verslunum og á www.tónlist.is.
Söknuður ævisaga Vilhjálms Vilhjálmssonar hefur heldur betur slegið í gegn og hefur nú þegar verið endurprentuð tvisvar sinnum í desember. Hafa samtals 8500 eintök verið prentuð og eru miklar líkur á einni endurprentun í viðbót fyrir jól. Söknuður er fyrsta bók Jóns Ólafssonar.
Á leiðinni á rauða dregilinn í London að sjá Avatar
Hann Pétur Már Kristjánsson datt heldur betur í lukkupottinn! Hann var dregin út í skemmtilegum Avatar-leik Senu og LG Mobile á FM 957 og fékk lúxusmiða fyrir tvo á sérstaka heimsfrumsýningu á Avatar á Leicester Square í London fimmtudaginn 10. desember og verður því á rauða dreglinum ásamt leikurum myndarinnar og leikstjóranum sjálfum James Cameron!
Innifalið í pakkanum er flug og hótel og VIP móttökur til og frá flugvelli og til og frá sýningu ásamt VIP móttöku og morgunmati á hótelinu!
Leikurinn heldur áfram og fimmtudaginn 17. desember verða dregnir út á FM 957 fleiri heppnir vinningshafar sem fá m.a. glæsilegan LG síma frá Tæknivörum í verðlaun og Lúxus bíómiða á myndina fyrir sig og sína!
Allar upplýsingar um leikinn er að finna á slóðinni: http://www.sena.is/avatar/leikur.htm
Avatar verður heimsfrumsýnd 18. Desember í Smárabíói, Regnboganum, Laugarásbíói, Háskólabíói, Borgarbíói Akureyri og Keflavík.
Skýjað með kjötbollum á köflum
“Skýjað með kjötbollum á köflum” er þýðing á einni vinsælustu barnabók heims, “Cloudy With a Chance of Meatballs”, en hún kom fyrst út fyrir 31 ári síðan og hefur selst í yfir þremur milljónum eintaka um allan heim. Bókin fjallar um tvö systkini sem heyra hjá afa sínum sögur af bænum Matarkistu þar sem hægt er að treysta á rigningu þrisvar sinnum á dag og alltaf í kringum matmálstíma; á morgnana, í kringum hádegi og um kvöldmatarleytið. Nema hvað að þetta er engin venjuleg rigning því að af himnum ofan rignir mat og íbúar Martarkistu þurfa ekki annað en að stíga út fyrir til að ná sér í allan þann mat sem þau þurfa á að halda. Allt leikur í lyndi þar til eitthvað fer hræðilega úrskeiðis. Maturinn sem fellur af himnum ofan tekur að stækka hættulega mikið og mataróveður verða æ algengari með skelfilegum afleiðingum. Nú eru góð ráð dýr fyrir íbúa Matarkistu.
Sena frumsýnir Extract núna á föstudag 4. Desember
Sena frumsýnir Extract núna á föstudag 4. Desember í Laugarásbíói. Þetta er frábær ný gamanmynd frá höfundum Office Space með Jason Bateman í aðalhlutverki. Bateman leikur Joel sem verður að bjarga fyrirtækinu sínu frá undirförlum starfsmönnum sem vilja komast yfir það og hjónabandi sínu en hann grunar að konan sín haldi framhjá sér ofan á persónuleg vandamál áður en hann fer yfir um!
Sena sýnir spennumyndina The Box
Ungt par fær sent til sín lítinn viðarkassa með rauðum hnappi. Dularfullur maður kemur daginn eftir og bíður þeim 1 milljón dollara ef þau ýta á hnappinn en í staðinn mun einhver manneskja, þeim ókunn, láta lífið. Þau hafa eingöngu einn sólarhring til að gera upp hug sinn og takast á við eigin samvisku og um leið að sjá fram úr erfiðum fjárhagsvanda. Frá spennumynd með Cameron Diaz í aðalhlutverki frá leikstjóra Donnie Darko.