Eftir Mánuði
Sena frumsýnir Valkyrie á föstudag 30. jan
Sena frumsýnir Valkyrie á föstudag 30. jan í Smárabíói, Háskólabíói og Borgarbíói Akureyri. Um er að ræða metnaðarfullt stórvirki frá meistara Bryan Singer (The Ususal Suspects og X-Men 2) með Tom Cruise í aðalhlutverki. Myndin fjallar um tilræði við Hitler árið 1944 og var hugmyndin að kenna SS um morðið og virkja herinn í yfirtöku á landinu og semja um frið við bandamenn. Planið gekk undir nafninu Operation Valkyrie og var leitt af Claus von Stauffenberg sem fylgdi sinni eigin samvisku og var á móti Þýskalandi Hitlers og áleit að Hitler væri að stefna landinu í glötum sem og hann gerði. Með önnur hlutverk í þessu frábæra meistarastykki fara þungaviktaleikararnir Kenneth Branagh, Bill Nighy, Tom Wilkinson, Terence Stamp og Eddie Izzard.
Sena frumsýnir Skógarstríð 2 (Opens Season)
Sena frumsýnir Skógarstríð 2 (Opens Season) á föstudag 30. jan í Smárabíói, Háskólabíói, Laugarásbíói, á Selfossi, í Keflavík og í Borgarbíói Akureyri. Búi og Elli eru mættir aftur í frábæru framhaldi fyrri myndar sem sló í gegn! Þýskur pylsuhundur sleppur frá eiganda sínum og fer að búa með þeim félögum í skóginum. Honum líður afskaplega vel með Búa og Ella og vill ekki fara heim. Eigandi, gömul kerling vill hann aftur og tekur hann frá Búa og Ella en þeir ákveða að bjarga honum! Upphefst nú alvöru skógarstríð milli dýranna í skóginum sem vilja bjarga hundinum og annarra hunda. Ómissandi teiknimynd fyrir alla fjölskylduna með íslensku tali. Með helstu raddir í íslensku talsetningunni eru Rúnar Freyr Gíslason, Ólafur Darri Ólafsson, Selma Björnsdóttir og Björgvin Franz Gíslason. Íslensk talsetning fór fram í Sun Studio í Danmörku í leikstjórn Júlíusar Agnarssonar.
Græna ljósið frumsýnir Vicky Cristina Barcelona
Græna ljósið frumsýnir næsta föstudag í Háskólabíói myndina Vicky Cristina Barcelona, sem fer nú mikla sigurför um heiminn og rakar til sín tilnefningum og verðlaunum.
Stórleikararnir Javier Bardem, Penélope Cruz og Scarlett Johansson fara á kostum í spænsku sólinni og gagnrýnendur eru sammála um að Woody Allen hafi ekki verið ferskari í mörg ár.
Sena HEIMSfrumsýnir Underworld: Rise of the Lycans
Sena HEIMSfrumsýnir Underworld: Rise of the Lycans á föstudag 23. jan í Smárabíói, Regnboganum og Borgarbíói Akureyri. Blóðug aldagömul barátta vampíra og varúlfa heldur áfram í þessu frábæra undanfara fyrri tveggja mynda og í raun fyrsta hluta Underworld. Hin kynþokkafulla Rhona Mitra leikur móður Selenu (kate Beckinsale) en eðalleikarinn Bill Nighy sem Viktor og Michael Sheen sem Lucian mæta aftur hrikalegri enn nokkru sinni fyrr! Ómissandi fyrir alla sem sáu fyrri myndirnar sem og alla aðdáendur spennu-og hryllingsmynda.
Sena frumsýnir Seven Pounds
Sena frumsýnir Seven Pounds á föstudaginn 9. janúar í Smárabíói, Háskólabíói og Borgarbíói Akureyri. Þetta er Mögnuð mynd frá leikstjóra The Pursuit of Happyness með stórstjörnunni Will Smith í aðalhlutverki um mann sem veldur dauða sjö manneskja í bílslysi og ákveður að bæta fyrir það. Einstök kvikmyndaperla um mannlegar raunir og ótrúlega hjálpsemi og fórnfýsi. Sjö nöfn. Eitt leyndarmál. Sjö einstaklingar og hjarta mannsins er sjö pund að þyngd! Mynd sem enginn má missa af!