Frétt

Frétt

Helgi Björns slær enn og aftur í gegn

Tvær plötur á topp 10 og sú þriðja á topp 20

Það er til marks um fáheyrðar vinsældir Helga Björns og Reiðmannanna hans að allar plöturnar þeira voru meðal 20 mest seldu plötum á landinu í sl. viku samkvæmt Tónlistanum sem var birtur í gær, en Tónlistinn heldur utan um sölu á plötum í öllum helstu verslunum landsins. Nýja platan, Ég vil fara upp í sveit trónir á toppi listans, Þú komst í hlaðið (2010) er í sjöunda sæti og Ríðum sem fjandinn er því 19. Það verður að teljast ólíklegt að nokkur íslenskur tónlistarmaður hafi áður verið í þessari stöðu.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli