Frétt
Sena frumsýnir Predators
Robert Rodriguez (Desperado, Sin City) er mættur með svakalegan spennutrylli um skrímslin ógurlegu í leikstjórn Nimrod Antal. Myndin fjallar um hóp málaliða og sérsveitamanna sem þurfa að berjast fyrir lífi sínu á óþekktri plánetu. Þeir eru í rauninni bráð fyrir hina mögnuðu Predatora. Fyrir hópnum og með aðalhlutverk í myndinni fer Óskarsverðlaunahafinn Adrien Brody. Mynd sem fær hárin til að rísa og mynd sem engin aðdáandi fyrri Aliens og Predator-mynda má láta framhjá sér fara!
Sjá slóð með trailer (stiklu úr myndinni):
http://trailers.apple.com/trailers/fox/predators/