Frétt

Frétt

Ligga ligga lá

Í tilefni af sjötugs afmæli Ómars Ragnarssonar hafa félagarnir Gunnar Helgason og Felix Bergsson, Gunni og Felix, ákveðið að heiðra Ómar með því að senda frá sér barnaplötu með öllum bestu barnalögum hans.  Útgefandi er Sena.
Þeir félagar Gunni og Felix slógu í gegn í Stundinni okkar fyrir 15 árum og hafa ekki hætt að skemmta börnum síðan. Þeir hafa gefið út 28 plötur með barnaefni af ýmsum toga og nú er sú 29. að verða að veruleika og verður jafnframt sú fyrsta sem þeir gefa út með efni eftir aðra en þá sjálfa.  Ýmsir áhrifavaldar hafa verið þeim félögum fyrirmynd í barnaefninu og sá allra stærsti þegar kemur að tónlist er án alls vafa Ómar Ragnarsson. Textarnir hans eru sérstaklega vandaðir og skemmtilegir og hafa fullkomlega staðist tímans tönn. Lög eins og Jói Útherji, Hláturinn lengir lífið og Ligga ligga lá kitla hláturtaugar mestu fýlupúka og Gunni og Felix vilja með plötunni endurvekja þessi lög svo börnin sem eru núna að vaxa úr grasi fái notið þessarrar skemmtilegu tónlistar.  Á plötunni eru 13 lög og meðal tónlistarmanna eru Hjörleifur Valsson, Jón Ólafsson, Stefán Már Magnússon og Haukur Gröndal.  Upptökustjórn og útsetningar voru í höndum samstarfsmanns Gunna og Felix til margra ára, Jóns Ólafssonar.

 


Diskurinn ber nafnið Ligga Ligga Lá – Gunni og Felix flytja lög Ómars Ragnarssonar
Útgáfudagurinn verður 17. júní og þá verða Gunni og Felix kynnar á Stóra pallinum í Reykjavík og munu að sjálfsögðu flytja lög af diskinum.

 

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli