Frétt
Sena frumsýnir kvikmyndina The A-Team
Sena frumsýnir The A-Team miðvikudaginn 16. júní í Smárabíói, Háskólabíói, Laugarásbíói, og Borgarbíói Akureyri.
Um er að ræða hörkuspennandi hasarmynd sem fær adrenalínið til að flæða. Hópur fyrrverandi hermanna úr Íraksstríðinu reyna að hreinsa nafn sitt gagnvart Bandaríkjaher sem grunar mennina fjóra um glæp sem þeir segjast vera saklausir af. Spennumynd sumarsins sem engin má missa af með stórstjörnunum Liam Neeson, UFC bardagameistaranum Rampage Jackson, Sharlto Copley úr District 9 og töffaranum Bradley Cooper úr Hangover.
Ljósmyndir í prentgæðum, trailer (stiklu) og aðrar upplýsingar má finna með því að smella á slóðina: