Frétt
Sena frumsýnir gamanmyndina Youth in Revolt
Sena frumsýnir gamanmyndina Youth in Revolt í dag miðvikudaginn 26. maí í Smárabíói og Regnboganum og eftir viku fer hún úr Regnboganum í Háskólabíó.
Um er að ræða frábær unglinga gamanmynd með hinum bráðskemmtilega Michael Cera (Juno, Superbad, Year One) sem leikur 16 ára ungling í tilvistarkreppu. Hann er hreinn sveinn sem kynnist draumastúlkunni sinni og ákveður að gera allt til þess að heilla hana m.a. gera uppreins gegn sinni eigin bældu sjálfsmynd með því að skapa óþokkann Dillinger. Myndin fylgir öllu því sprenghlægilega sem hann leggur á sig til að missa sveindóminn með henni. Flottir leikarar í aukarullum eins og Justin Long og Ray Liotta.
Trailer (Stiklu) úr myndinni má finna á slóðinni:
http://www.worstpreviews.com/trailer.php?id=1192&item=1