Frétt
Loftkastalinn Sem Hrundi - DVD
Þriðja myndin í Millennium trílógíunni fylgir eftir gríðarlegum vinsældum hinna tveggja sem gagnrýnendur héldu vart vatni yfir. Lisbeth Salander á harma að hefna gegn manninum sem reyndi að myrða hana og stofnunum sem tókst næstum að eyðileggja líf hennar. Lisbeth er á gjörgæslu, grunuð um tilraun til morðs. Hún þarf ekki aðeins að sýna fram á sakleysi sitt, heldur afhjúpa gjörspillta embættis- og stjórnmálamenn sem hafa látið misnotkun og ofbeldi viðgangast í þágu kerfishagsmuna. Hún nýtur aðstoðar Mikaels Blomkvist, blaðamanns, og félaga hans á tímaritinu Millenninum.