Frétt
Skýjað Með Kjötbollum Á Köflum - DVD & BluRay
Þegar nýjasta uppfinning Flints Lockwood eyðileggur aðaltorg borgarinnar og hverfur síðan í skýin telur hann augljóst að ferill sinn sem uppfinningamaður sé á enda. En þá gerist dálítið stórkostlegt; gómsætum ostborgurum tekur að rigna af himni ofan og ljóst er að vélin hans virkar í raun og veru. En þegar gráðugt fólk fer stöðugt að biðja um meiri mat verður tækið stjórnlaust og þeytir úr sér spagettífárviðri og risastórum kjötbollum sem valda stórhættu. Nú verður Flint, með aðstoð veðurfréttastúlkunnar Sam Sparks og talandi apans Steve, að finna leið til að slökkva á vélinni áður en allt á Jörðinni verður á kafi í mat.