Frétt
Nýjasta plata Hvanndalsbræðra kemur út 20.maí.
Á morgun kemur nýjasta plata Hvanndalsbræðra í verslanir. Á plötunni er að finna 12 lög og þar á meðal eru smellirnir LA LA lagið, Fjóla, Vinkona, og Eurovision lagið Gleði og Glens, en þau hafa öll notið mikilla vinsælda. Lagið Vinsæll eftir Dr Gunna í flutningi Hvanndalsbræðra er svo komið í hörkuspilun á öllum helstu útvarpsstöðvum landsins. Hljómsveitina skipa þeir Sumarliði Hvanndal (bassi og söngur), Valur Hvanndal (trommur og söngur), Pétur Hvanndal (rafgítar og mandólín) og Valmar Hvanndal (fiðla og harmonikka).
Hljómsveitin mun halda ferna útgáfutónleika á næstunni. 27. og 28.maí á Græna Hattinum Akureyri, 3.júní á Nasa í Reykjavík og 4.júní í Salthúsinu í Grindavík. Þetta eru ekki einu tónleikar Hvanndalsbræðra í sumar því að þeir eru bókaðir á yfir 30 stöðum út um allt land og eru ekki hættir að bóka.