Frétt

Frétt

Platan Vísur úr Vísnabókinni (2CD) er komin út.

Komin er út afar vegleg tveggja platna útgáfa með Vísnaplötunum vinsælu Einu sinni var og Út um græna grundu. Plöturnar eru í glæsilegum umbúðum og vandaður 36 síðna bæklingur fylgir með sem inniheldur alla textana og myndskreytingar Halldórs Péturssonar ásamt áður óbirtum myndum frá upptökum platnanna.

 

Vísurnar sem sungnar eru á þessum geislaplötum, eru allar úr vísnabókinni. Bók sem er flestum Íslendingum vel kunnug, enda hefur hún notið fádæma vinsælda undanfarna áratugi. Í vísnabókinni er að finna gott sýnishorn af gömlum vísum, þulum og þjóðkvæðum, sem sungnar hafa verið fyrir íslensk börn öldum saman. Að auki er þar að finna ýmsan kveðskap nafngreindra höfunda frá síðari tímum.

 

Björgvin Halldórsson, Gunnar Þórðarson og Tómas Tómasson voru allir starfandi í Bretlandi þegar sú hugmynd kom fram að nýta gömul lög og semja ný við vísur úr Vísnabókinni. Afraksturinn kom út á tveimur hljómplötum haustið 1976 og 1977. Fyrri platan setti sölumet en þeim var báðum afar vel tekið af almenningi. Þessar plötur hafa verið sannkallaðar metsöluplötur frá útgáfu þeirra til dagsins í dag.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli