Frétt

Frétt

Friðrik Karlsson - Slökun og vellíðan er komin út.

Komnar er út, í einum veglegum kassa, 5 slökunarplötur með tónlist eftir Friðrik Karlsson.
Þessi útgáfa er hluti af „Vellíðan“, tónlistarröð Friðriks Karlssonar og inniheldur fjórar áður útgefnar vinsælar slökunarplötur; „Hugar-ró“, „Fullkomin kyrrð“, „Vellíðan“, „Töfrandi andrúmsloft“ og eina nýja sem ber heitið „Keltneskt sólarlag“. Þær fjórar fyrstnefndu hafa allar verið ófáanlegar um nokkurt skeið. Einstakir tónlistarhæfileikar Friðriks ásamt víðtækri þekkingu hans á mannrækt og sjálfsstyrkingu endurspeglast í þessari tónlist. Tónlistin hefur reynst vel til slökunar og stuðlað að jafnvægi í hugarró í hraða nútímans. Hún þykir ennfremur vel til þess fallin að skapa friðsæla stemningu við ástundun jóga, á nudd- og snyrtistofum og við heilun margskonar og hefur náð gífurlegum vinsældum.

 

Þá koma út aftur á sama tíma tvær plötur sem hafa verið uppseldar og ekki verið fáanlegar um langan tíma. Þetta eru plöturnar „Morgunn – kvöld“ frá árinu 2001 og „Móðir og barn“ frá árinu 2006. Báðar plöturnar eru tvöfaldar.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli