Frétt
Johnny Cash með sjöttu og síðastu plötuna í American seríunni
Johnny Cash - American VI: Ain’t No Grave
Johnny Cash hefði orðið 78 ára þann 26 febrúar síðastliðinn.
American VI: Ain't No Grave er sjötta og síðasta platan í American Recordings seríunni. Eins og á hinum fimm plötunum þá er það Rick Rubin sem sér um upptökustjórn.
Sem fyrr eru tökulög áberandi, en þau eru m.a. “Redemption Day“ (Sheryl Crow), "For The Good Times“ (Kris Kristofferson) ásamt nýju lagi sem Johnny Cash samdi á síðustu þremur árum lífs síns, en lagið heitir "I Corinthians: 15:55“.