Frétt

Frétt

Whatever Works - DVD

 

Hér er á ferðinni nýjasta mynd meistara Woody Allen og það er enginn annar en Larry David, maðurinn á bak við Curb Your Enthusiasm og Seinfeld þættina, sem fer með aðahlutverkið. Eins og við er að búast þegar tveir viðlíka snillingar snúa bökum saman, er útkoman með eindæmum skemmtileg. Larry David leikur sérvitran New York búa úr yfi rstéttinni er ákveður að snúa baki við sínu ljúfa lífi og gerast þess í stað lausagangsmaður. Hann hittir unga stúlku frá Suðurríkjunum (Evan Rachel Wood) og eftir að hafa umgengist hana og fjölskyldu hennar uppgötvar hann að bóhem lífi ð er ekki eins áhyggjulaust og hann sá fyrir sér. Margir vilja meina að hér sá á ferðinni besta mynd Woody Allen í áraraðir og gagnrýnendur hafa kallað hana „feel-good“ mynd ársins.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli