Frétt

Frétt

James Cameron - Box Sett - DVD

 

Titanic

Ekkert jafnast á við þessa hjartnæmu sögu um fyrstu og síðustu ferð Titanic. Hún hefur hrifið gesti kvikmyndahúsa um allan heim og er óumdeilanlega vinsælasta kvikmynd allra tíma. Jack og Rose (Leonardo DiCaprio og Kate Winslet) finna hvort annað um borð í glæsifleyinu Titanic og verða umsvifalaust ástfangin. Þrátt fyrir erfiðar hindranir tekst þeim að ná saman en þá dynja ósköpin yfir.

Aliens

Sigourney Weaver snýr aftur í hlutverki Ripley, einu manneskjunnar sem lifði af fyrstu átökin við geimverurnar skelfilegu. Frásögn hennar af þessum verum og afdrifum áhafnarinnar er tekið með tortryggni þar til íbúar LV-426 hverfa á dularfullan hátt og henni er falið að stjórna rannsóknarleiðangri þangað. Hér má sjá  áhrifamikil atriði sem ekki voru höfð með þegar myndin var frumsýnd árið 1986.

The Abyss

Æsispennandi mynd í leikstjórn James Cameron sem gerist öll neðansjávar. Áhöfn olíuborpalls er fenginn til að stjórna leitar- og björgunarleiðangri þegar kjarnorkukafbátur sekkur á óútskýranlegan hátt. Einn kafaranna (Ed Harris) leggur upp í einstakan leiðangur nærri 8 kílómetra undir yfirborð sjávar þar sem hann þarf að takast á við dularfullt afl sem getur breytt heiminum eða jafnvel eytt honum.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli