Frétt
Family Guy .. Something Something Something Dark Side
Hamingjan sanna, Family Guy með skrumskælingu á uppáhalds geimvísindamyndinni okkar! Megi hláturinn vera með ykkur þegar Chris geimgengill tekur höndum saman með Peter Solo og Louis prinsessu í bardaga við Stewie Svarthöfða og hyski hans. Fjöldi annarra persóna úr Stjörnustríðsmyndunum tekur þátt í þessu bráðskemmtilega ævintýri sem hlegið verður að næstu ljósárin!