Frétt

Frétt

Anvil - DVD

Hér er á ferðinni stórkostlega skemmtileg heimildarmynd sem hefur farið sigurför um heiminn undanfarið. Myndin fjallar um tvo rokkara á sextugsaldri, Lipps og Robb, sem slógu næstum því í gegn fyrir 30 árum og halda enn í vonina um að verða frægir. Stærstu rokkarar heims, meðlimir hljómsveita á borð við Mettallica og Anthrax, viðurkenna að hafa stolið heilmiklu frá Anvil; að þeir hafi verið meðal upphafsmanna þungarokksins, sannir brautryðjendur og áhrifavaldar. En nú 30 árum síðar vinna þeir skítastörf og þurfa að nýta sér öll frí sem gefast til að geta haldið áfram að túra misglæsilegar búllur og tekið upp plötur. Þeir voru hársbreidd frá því að slá í gegn á en eitthvað klikkaði. Það eina sem heldur þeim gangandi núna er vonin, brennandi ástin á hljómsveitarlífi nu og vonin um að einhvern tíman rætist úr draumunum. Oft reynir á vinskapinn, sem hefur staðið yfi r síðan þeir félagar voru 14 ára, og þá er öskrað og grátið en á endanum fallast menn í faðma og halda áfram að berjast. Fjölskyldur beggja hafa fært ótaldar fórnir og skipulagt líf sitt í kringum hljómsveitarbröltið og halda enn í vonina að það hafi ekki verið til einskis. Menn á borð við Michael Moore og Keanu Reeves hafa hrósað myndinni í hástert og meðlimir AC/DC hrifust svo af meðlimum Anvil og þrautseigju þeirra að þeir buðu þeim að hita upp fyrir sig á tvennum risatónleikum vestra. Í kjölfarið hafa meðlimir Anvil haft nóg að gera í að túra um heiminn og nú fyrst seljast plötur þeirra eins og heitar lummur. Það má því segja að langþráður draumur um viðurkenningu og frægð hafi loksins ræst þökk sé þessari  stórskemmtilegu kvikmynd.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli