Frétt
Guð Blessi Ísland - DVD
Helgi Felixson er Íslendingur, búsettur í Svíþjóð og virtur kvikmyndagerðarmaður erlendis. Hann var fyrir tilviljun staddur á Íslandi 6. október þegar Geir H. Haarde hélt sína frægu ræðu rétt fyrir setningu neyðarlaganna.
Það var erfitt að skilja nákvæmlega hvað var að gerast og ómögulegt að ímynda sér atburðina sem fylgdu í kjölfarið. En Helgi brást við með því að gera það sem hann gerir best, hann tók upp kvikmyndavélina og byrjaði að taka upp það sem fyrir augu bar.
Hverjar eru afleiðingar hrunsins fyrir venjulegt fólk í þessu landi ? Við kynnumst lögreglumanni, vörubílstjóra og einstæðri móður og við sjáum nýjar hliðar á Björgólfi Thor, Bjarna Ármannsyni, Jóni Ásgeiri og Geir H. Haarde.
Guð blessi Ísland er söguleg kvikmynd sem var heimsfrumsýnd 6. október 2009 á Íslandi og var í kjölfarið sýnd víða um heim. Diskurinn er troðfullur af spennandi aukaefni.
Enskur texti