Frétt
Algjör Sveppi 2 - DVD
„Algjör Sveppi er mættur aftur á nýjum úttroðnum DVD-diski sem inniheldur hvern einasta þátt í annarri þáttaröð. Þættirnir voru sýndir við mikla kátínu yngstu áhorfendanna laugardags- og sunnudagsmorgna á Stöð 2 veturinn 2008-2009. Nú er Sveppi búinn að flytja og kominn með ennþá stærra og flottara herbergi og fullt af spennandi leikföngum. En Sveppi þarf samt ekki leikföng og græjur til að
geta leikið sér því ímyndunaraflið er hans uppáhalds leikfang. Saman taka Sveppi og Villi gáfnaljós, besti vinur hans upp á ótrúlegustu hlutum og stundum koma líka aðrir krakkar í heimsókn eins og Ilmur og Auddi. Ekki má svo gleyma öllum lögunum sem Sveppi og Villi leika og syngja saman með sínu nefi. Algjör Sveppi er bráðskemmtilegt og uppbyggjandi barnaefni sem allir kátir krakkar vilja horfa á aftur og aftur og aftur og aftur ... og svo einu sinni enn!