Frétt
Ugly Truth - DVD & BluRay
Katherine Heigl og Gerard Butler fara með aðalhlutverkin bráðskemmtilegri mynd um baráttu kynjanna. Abby er stjórnandi vinsæls morgunþáttar í sjónvarpi og gerir miklar kröfur til væntanlegs mannsefnis. Mike, hinn óþolandi samstarfsmaður hennar, veit hinsvegar að karlmenn sækjast bara eftir einu. Þegar Abby kynnist manni og verður hrifin af honum vill hún sanna að hún geti verið rómantísk og fer að ráðum Mikes með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.