Frétt
Stúlkan Sem Lék Sér Að Eldinum - DVD
Önnur myndin í Millennium trílógíunni fylgir eftir gríðarlegum vinsældum Karla sem Hata Konur sem gagnrýnendur héldu vart vatni yfir. Hin ótrúlega Lisbeth Salander lendir aftur í ótrúlegum hremmingum með blaðamanninum Mikael Blomkvist í baráttu þeirra við ill öfl í
samfélaginu. En í þetta skiptið þarf Lisbeth að hverfa aftur til sinnar myrku fortíðar ef henni á að takast að vera skrefi á undan og halda sér lifandi. Hér er á ferð stórkostlegur spennutryllir sem fylgir eftir einni albestu spennumynd síðari ára.