Frétt

Frétt

Avatar er orðin tekjuhæsta kvikmynd Íslandssögunnar!

Avatar er orðin tekjuhæsta kvikmynd Íslandssögunnar með tekjur yfir 106 milljónir kr og sló út met Mamma Mia frá 2008 sem var 102 milljónir! Á aðeins fimm vikum hafa tæplega 90.000 gestir borgað sig inn á Avatar og stefnir hún í að verða 3ja myndin frá upphafi mælinga með aðsókn yfir 100 þúsund manns! Metið á Titanic sem er 124.008 manns og gæti það verið í hættu! Einnig er Avatar stærsta mynd ársins 2010 auk þess að vera stærsta mynd ársins 2009 og hefur það aldrei áður gerst! Avatar er aðra vikuna í röð vinsælasta mynd landsins og í þriðja skipti á fimm vikum auk þess að taka Golden Globe fyrir bestu dramatíku mynd ársins og besta leikstjóra ársins – James Cameron.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli