Frétt

Frétt

Sena HEIMSfrumsýnir AVATAR á föstudag 18. desember

Sena HEIMSfrumsýnir AVATAR á föstudag 18. desember í Smárabíói, Háskólabíói, Laugarásbíói, Regnboganum Borgarbíói Akureyri og Keflavík bæði í stafrænni þrívídd (3-D) og í 2-D.

 

Avatar er byltingakennd stórmynd eftir James Cameron  leikstjóra Titanic. Mynd sem kvikmyndaáhugafólk um allan heim hefur beðið eftir í mörg ár og mun líklega breyta bransanum til frambúðar. Með aðalhlutverk fara Sam Worthington, Sigourney Weaver, Michelle Rodriguez, Zoe Saldana og Giovanni Ribisi.

 

Avatar gerist í framtíðinni á litlu tungli sem heitir Pandóra. Á Pandóru býr ættbálkur sem nefnast Na´vi en það eru 3 metra háir frumbyggjar bláir að lit sem hafa skýr einkenni mannfólks. Þetta eru friðsamar verur nema það sé ráðist á þær. Mannfólkið getur ekki andað að sér loftinu á Pandóru svo vísindamenn erfðafræðilega búa til blending af manni og Na´vi sem kallast Avatar (manngervingur) og þeir stjórna þessum Avatörum  í gegnum hugartengsl/hugsanahlekk.

 

Lamaður landgönguliði í bandaríska flotanum að nafni Jake Sully (leikin af Sam Worthington) býður sig fram til þess að lifa sem Avatar á Pandóru og njósna um Na´vi fyrir herinn en verður ástfanginn af Neytiri, fallegri Na'vi prinsessu og fyrr en varir verður hann flæktur í átök milli hersins og ættbálks hennar en innrás hersins gæti tortýmt plánetunni!

 

Allar nánari upplýsingar, viðtöl, myndir í prentgæðum og myndbrot (trailerar) ofl um myndina er að finna á www.sena.is/avatar

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli