Frétt

Frétt

Söknuður er komin út á hljóðbók

Söknuður ævisaga Vilhjálms Vilhjálmssonar eftir Jón Ólafsson er komin út á hljóðbók. Hljóðbókin er skreytt á nýstárleg með tónlist Vilhjálms Vilhjálmssonar. Jón Ólafsson höfundur les bókina sem er bæði fáanleg í verslunum og á www.tónlist.is.


 
Söknuður ævisaga Vilhjálms Vilhjálmssonar hefur heldur betur slegið í gegn og hefur nú þegar verið endurprentuð tvisvar sinnum í desember. Hafa samtals 8500 eintök verið prentuð og eru miklar líkur á einni endurprentun í viðbót fyrir jól. Söknuður er fyrsta bók Jóns Ólafssonar.


 
„Einhver skemmtilegasta bók sem ég hef lesið lengi“ - Ólafur Arnarsson, Pressan.is


 
„Söknuður er ekki bara merkileg heimild um horfinn tíma, heldur gefur hún líka góða mynd af listamanni sem þjóðin saknar. Meira svona, takk“ - Árni Matt, Morgunblaðið


 
„Mér sýnist auðséð að Jón Ólafsson hafi verið rétti maðurinn til að vinna þetta vandasama verk“ - Ómar Ragnarsson


 
„Jón Ólafsson er mjög vandvirkur í bókinni og fer vel í saumana á lífshlaupi Vilhjálms...Mjög góð bók“ - Dr Gunni, Fréttablaðið


 
***„Jóni tekst að draga upp góða og að minni hyggju sanna mynd af söguhetjunni“ - Jón Þ. Þór, DV

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli