Frétt
Skýjað með kjötbollum á köflum
“Skýjað með kjötbollum á köflum” er þýðing á einni vinsælustu barnabók heims, “Cloudy With a Chance of Meatballs”, en hún kom fyrst út fyrir 31 ári síðan og hefur selst í yfir þremur milljónum eintaka um allan heim. Bókin fjallar um tvö systkini sem heyra hjá afa sínum sögur af bænum Matarkistu þar sem hægt er að treysta á rigningu þrisvar sinnum á dag og alltaf í kringum matmálstíma; á morgnana, í kringum hádegi og um kvöldmatarleytið. Nema hvað að þetta er engin venjuleg rigning því að af himnum ofan rignir mat og íbúar Martarkistu þurfa ekki annað en að stíga út fyrir til að ná sér í allan þann mat sem þau þurfa á að halda. Allt leikur í lyndi þar til eitthvað fer hræðilega úrskeiðis. Maturinn sem fellur af himnum ofan tekur að stækka hættulega mikið og mataróveður verða æ algengari með skelfilegum afleiðingum. Nú eru góð ráð dýr fyrir íbúa Matarkistu.
Kvikmyndin frumsýnd í janúar.
Í janúar verður kvikmyndin “Skýjað með kjötbollum á köflum” tekin til sýninga í kvikmyndahúsum landsins en hún sló rækilega í gegn vestra fyrr á árinu. Myndin var þrjár vikur á toppnum og þénaði um 122 milljónir dollara. Er myndin ein vinsælasta teiknimynd ársins 2009 og vinsælasta teiknimynd Sony Pictures fyrr og síðar . “Skýjað með kjötbollum á köflum” verður sýnd í þrívídd og með íslensku tali í öllum betri kvikmyndahúsum landsins.
Það rignir sælgæti yfir gesti Smáralindar 12.desember.
Laugardaginn 12.desember mun rigna sælgæti í Vetrargarðinum Smáralind vegna útkomu bókarinnar. Verður þessi viðburður kynntur sérstaklega seinna í vikunni.