Frétt

Frétt

Fangavaktin - DVD

 

Ógæfa bensínafgreiðslumannana af Laugaveginum ætlar engan endi að taka í Fangavaktinni, þriðja hluta Vaktaseríunnar. Á meðan Ólafur Ragnar valsar um frjáls og sinnir starfi sínu sem fasteignasali, hafa þeir félagar Georg og Daníel komið sér á kaldan klaka eftir atburðina í Bjarkarlundi og þurfa að afplána dóma á Litla Hrauni.

Í fangelsinu finna þeir fyrir úrval íslenskra glæpamanna sem hafa ef til vill margt á samviskunni en hafa aldrei lent í Georgi Bjarnfreðarsyni áður. Má þar nefna Manchester United aðdáandann Ingva sem stjórnar öllu með harðri hendi, málverkafalsarann Viggó Breiðfjörð, loðfílinn Þröst Hjört og hinn einfalda og “heiðarlega” Kenneth Mána Johnson.

Með íslenskum og enskum texta.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli