Frétt

Frétt

Ríó tríó sendir frá sér jólaplötu.

Þeir Helgi Pétursson, Ólafur Þórðarson og Ágúst Atlason, Ríó tríó, hafa í áranna rás sent frá sér nokkur vel heppnuð jólalög. Sá draumur hafði lengið blundað í þeim félögum að gefa út heila plötu eingöngu með jólalögum. Því var ráðist í það verk nýlega að hljóðrita fimm ný jólalög, þar af þrjú eftir þá félaga sjálfa,  til viðbótar þeim eldri. Afraksturinn kemur nú út á geislaplötu og er bráðgóður. Á plötunni Gamlir englar – Sígildir á jólum, er að finna öll eldri jólalög Ríó ásamt 5 nýjum lögum.  Plata sem kemur þér í frábært jólaskap enda Ríó þekktir fyrir að vera “léttir yfir jólin.”

 

1. Hin eilífa frétt
2. Á jólanótt    
3. Léttur yfir jólin
4. Sveinki minn komdu í kvöld   
5. Hvað fékkstu í jólagjöf?
6. Gleði jólatíða 
7. Jólaþula     
8. Hin fyrstu jól
9. Man ég það  
10. Þá nýfæddur Jesús
11. Nú er glatt í hverjum hól
12. Í dag er glatt í döprum hjörtum

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli