Frétt

Frétt

Stefán Hilmarsson sendir frá sér plötuna Húm

Stefán Hilmarsson hefur sent frá sér sína fimmtu sólóplötu. Margir af fremstu lagasmiðum landsins lögðu Stefáni til lög og óhætt er að segja að platan sé uppfull af gæðatónlist. Meðal þekktra höfunda sem eiga efni á plötunni eru Gunnar Þórðarson, Jóhann G. Jóhannsson og Magnús Þór Sigmundsson, auk Stefáns sjálfs, en öll umgjörð og flutningur er sannarlega fyrsta flokks.

 


Þrátt fyrir að hafa staðið á sviðinu í rúma tvo áratugi hefur Stefán vaxið mjög hin síðari ár sem söngvari og virðist eiga mikið inni ennþá. Rödd hans hefur þroskast eins og vandað franskt rauðvín og aldrei hefur hann sungið betur en á þessari plötu, sem er án tvímæla besta verk Stefáns til þessa.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli