Frétt

Frétt

Jólagestir Björgvins í Höllinni 2008 (CD+DVD).

Út er komin einstaklega glæsileg útgáfa á mynddisk og hljómdisk frá frábærum tónleikum Jólagesta Björgvins fyrir troðfullri Laugardalshöll í desember sl. Geislaplatan inniheldur 20 lög frá tónleikunum en mynddiskurinn geymir tónleikana í heild sinni. Að venju var afar gestkvæmt á sviðinu hjá Björgvini og meðal þeirra sem stigu á stokk voru margir fremstu söngvarar landsins auk barnakórs, 16 manna strengjasveitar, karlakórsins Voces Masculorum, barnakórs Kársnesskóla og stórhljómsveitar Björgvins undir stjórn Þóris Baldurssonar.


 
Þann 5. desember heldur Björgvin sína árlegu tónleika í Laugardalshöll og er þegar uppselt á tónleikana kl 21:00. Bætt hefur verið við aukatónleikum sama dag kl 16:00 og stefnir í að uppselt verði á þá tónleika einnig. Nánari upplýsingar á www.midi.is

 

Lagalisti tónleikanna á mynddiski:

 

1. Jól - Björgvin
2. Svo koma jólin - Björgvin
3. Ein handa þér - Stefán Hilmarsson
4. Glæddu jólagleði í þínu hjarta - Björgvin og Páll Óskar
5. Himinganga - Páll Óskar og Monika
6. Þú komst með jólin til mín - Björgvin og Sigríður Beinteinsdóttir
7. Umvafin englum - Guðrún Gunnarsdóttir
8. Ég veit hvað ég vil um jólin - Björgvin
9. Jólastjarna - Sigríður Beinteinsdóttir
10. Við vöggu í Betlehem - Björgvin
11. Er líða fer að jólum - Ragnar Bjarnason
12. Hvít jól - Björgvin og Ragnar Bjarnason
13. Rokkað í kringum jólatréð - Laddi
14. Æsku minnar jól - Björgvin og Stefán Hilmarsson
15. Eitt sinn rétt fyrir jólin - Svala Björgvinsdóttir
16. Mig langar til… - Páll Óskar
17. Svona eru jólin - Björgvin og Eyjólfur Kristjánsson
18. Happy Xmas (War Is Over) - Krummi og Daníel Ágúst
19. Um jólin - Björgvin
20. Óskastjarna - Björgvin og Svala Björgvinsdóttir
21. Ave Maria - Kristján Jóhannsson
22. Panis Angelicus - Kristján Jóhannsson
23. Samt koma jól - Björgvin og Kristján Jóhannsson
24. Ef ég nenni - Helgi Björnsson
25. Ný jól - Björgvin
26. It´s Beginning To Look A Lot Like Christmas - Björgvin
27. Gullvagninn (Sendu nú vagninn þinn að sækja mig) – Björgvin

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli