Frétt
Sveitin milli sanda er komin út.
Friðrik Karlsson og Þórunn Lárusdóttir slógu eftirminnilega í gegn árið 2006 með plötunni Álfar og fjöll sem seldist í 7 þúsund eintökum. Á plötunni voru þekkt íslensk dægurlög sett í mjög afgerandi stíl sem þjóðinni féll greinilega vel. Á þessari nýju plötu er haldið áfram þar sem frá var horfið á hinni fyrri. Söng- og leikkonan frábæra Jóhanna Vigdís Arnarsdóttir, Hansa, hefur tekið við sönghlutverkinu en Friðrik Karlsson er enn við stjórnvölinn.
1. Vegir liggja til allra átta
2. Adiemus
3. Sveitin milli sanda
4. Hættu að gráta hringaná
5. Englar
6. Silfursleginn sær
7. Vikivaki
8. Taktu mína hönd
9. Visur Vatnsenda-Rósu
10. Meðan draumarnir dofna