Frétt
CALL OF DUTY®: MODERN WARFARE® 2 ER KOMINN ÚT!
Nú er tíminn til að gíra sig upp fyrir háhraða hasar og stórbrotna bardaga, þar sem Activision hefur gefið út nýja leikinn frá Infinity Ward, Call of Duty: Modern Warfare 2. Leikurinn inniheldur nýja ógn sem steðjar að heimsbyggðinni og þurfa leikmenn að vera klárir fremst við víglínu óvinarins, en stórbrotið stríð hefur hafist og berst það meðal annars inná ameríska grundu. Enginn er öruggur frá þessari yfirvofandi árás.
“Allt frá fyrsta degi, var það markmið okkar með Modern Warfare 2 að færa aðdáendum um allan heim einhverja raunverulegustu og mest spennandi upplifun sem við höfum skapað,” segir Vince Zampella, Forstjóri Infinity Ward. “Sérhver hönnun leiksins, allt niður í minnstu smáatriði voru gerð til að leikmenn myndu upplifa að vera staddir í eigin hasarmynd – með tilheyrandi hasar, spennu og adrenalínflæði.”
Leikurinn gerist í kjölfar þeirra sögulegu tíðinda sem gerðust í Call of Duty® 4: Modern Warfare®, Modern Warfare 2 setur leikmenn sem miðdepil í einhvern harðasta söguþráð sem sést hefur, stútfullur af óvæntum atburðum og stórbrotnum bardögum um allan heim. Leikurinn inniheldur allann pakkann, því fyrir utan söguþráð leiksins geta leikmenn spilað í gegnum glænýjan spilunarmöguleika eða “Special Ops” þar sem tveir leikmenn geta spilað saman, annaðhvort á sömu tölvunni eða í gegnum netið, en í þessum möguleika fara leikmenn í gegnum fjölda herferða þar sem tímamörk gilda. Eftir því sem leikmenn verða svo hærri í tign, opnast fyrir fleiri herferðir. Auk þessa skartar leikurinn fullkomnasta multiplayer sem sést hefur í Call of Duty leikjunum.