Frétt
Strumpasafnið 2 - DVD
Hér er á ferðinni annar diskurinn í röð þátta um Strumpana frægu. Sá fyrsti “Skrækur”, segir frá því þegar sorgaratburður verður til þess að Strympa verður óhuggandi. Í næsta þætti, “það Strumpaðist frá himnum” dreymir Svefnstrump um að hitta verur frá öðrum plánetum. Þegar hann hins vegar segist hafa hitt slíka veru trúir honum enginn. Í þættinum “Sveppastríð” lenda Strumparnir í átökum við Tröllin sem búa í Tröllafjalli, af þvi að Strumparnir elska sveppi, en Tröllin telja sig eiga þá alla. Í þættinum “Vorstrumpur” biður Kjartan læriföður sinn, hinn fróða en hættulega Baltasar, um öfluga galdrauppskrift til þess að hafa hendur í hári Strumpana. Í lokaþættinum á disknum, “Hinn góði, hinn vondi og hinn strumpaði” segir frá Argon konungi, sem er stór, sterkur og illur viðureignar og barátta Strumpanna við hann og galdrameistarann hans, Mordein.