Frétt
Funny Games - DVD
Vel stæð hjón eru ásamt syni sínum tekin til fanga af tveimur ungum drengjum í sumarhúsi sínu. Í fyrstu eru drengirnir afar kurteisir, en sjúkir leikir þeirra ágerast og líkamlegt og andlegt ofbeldi gagnvart fjölskyldunni versnar eftir því sem líður á nóttina. Ljóst er að líf þeirra allra eru í hættu og annar drengjanna gerir veðmál við áhorfendur: Allir fjölskyldumeðlimir verða dauðir fyrir kl. 9 um morguninn. Það sem eftir lifir nætur, er stóra spurningin: Mun einhver lifa af? Hinn gríðarlega virti leikstjóri Michael Haneke stúderar hér ofbeldi, ekki síst hvernig það kemur fyrir í kvikmyndum nú til dags og blóðþorsta nútíma bíógesta.