Frétt

Frétt

Réttur - Fyrsta Sería

 

Réttur er fyrsta íslenska réttardrama sem framleitt hefur verið. Réttur er lögfræðidrama sem segir frá lífi og starfi þriggja lögfræðinga í Reykjavík, sem reka lögmannastofuna Lög og Réttur ehf. Í hverjum þætti eru ný viðfangsefni en í gegnum seríuna fylgjumst við með máli hins dularfulla “Föstudagsnauðgara”, sem hrellir borgarbúa í skjóli nætur. Í þáttunum fáum við að kynnast Loga, hann er einn fremsti lögmaður landsins og þekktur fyrir sín þrumuskot í gegnum árin. En hann á sér dökka fortíð. Hann sat inni fyrir manndráp frá 18 ára til 22 og hefur átt í baráttu við Bakkus. Hann hefur lifað á brúninni í gegnum tíðina og hefur einstakt lag á að koma sér í klandur. Það er oft erfitt að setja fingur á hvar siðferðismörk hans liggja, en  óumdeilanlegt er að hann er lunkinn lögmaður sem allir mundu vilja hafa á sínu bandi.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli