Frétt
DJ HERO™ ER KOMINN ÚT
Leikurinn inniheldur 93 einstök lög mixuð saman af heimsfrægum plötusnúðum, en leikurinn inniheldur lög úr flestum tegundum tónlistar, Hip Hop, Rokk, Popp, Dans og R&B
Partíið er komið í gang með einhverjum harðasta tónlistarleik ársins, en DJ Hero™ er nú fáanlegur í verslunum um land allt. DJ Hero gerir leikmönnum kleift að stökkva uppá svið og taka lagið sem hörðustu plötusnúðar heimsins, en leikurinn inniheldur 93 lagamix sem gerð eru af bestu plötusnúðum heimsins. Leikurinn inniheldur frábæra spilun sem tæklar allt það helsta sem plötusnúðar þurfa að gera og tónlist með listamönnum á borð við The Killers, Marvin Gaye, Daft Punk, Queen, the Black Eyed Peas og fleirum.
„Það hefur tekið mig nánast allt mitt líf að ná tökum á starfi plötusnúðsins, en DJ Hero nær að opna þetta listform fyrir almenningi,” segir stórstjarnan og plötusnúðurinn David Guetta. “Leikmenn sem hafa aldrei prófað græjur plötusnúðsins munu nú geta á auðveldan hátt upplifað alvöru stuð og hvernig það er að spila fyrir framan áhorfendur.”
Þegar hefur leikurinn fengið frábær viðbrögð :
„DJ Hero is an impressive piece of work…” with “…infectiously inventive mash-ups.” – Entertainment Weekly
„One of the best games I’ve played this year” with “the best soundtrack for any music game, ever” and “You’re going to want to have DJ Hero on hand for your next party.” – 9/10 – IGN Editor’s Choice Award – IGN.com
„The best music game of the year and a leap forward for the genre.” – 92/100 – GamesMaster Magazine
DJ Hero byggir á sömu hugsun og Guitar Hero leikirnir, þar sem allir geta tekið þátt. DJ Hero inniheldur nýja tónlistar upplifun sem gerir leikmönnum kleift að keyra upp partíið, og ekki aðeins upplifa tónlistina, heldur einnig til að hlusta á hana á nýjan hátt. Leikurinn inniheldur meira en 100 lög sem hafa verið mixuð saman af heitustu plötusnúðum heimsins og eru gerð sérstaklega fyrir DJ Hero. Með leiknum fylgir „turntable” sem gerir upplifunina raunverulegri, en með honum geta leikmenn „scratchað”, „crossfade-að” og „samplað”