Frétt
Angels And Demons - Blu Ray og DVD
Robert Langdon er boðaður til Rómar þar sem erkióvinur kirkjunnar, leynifélagið Illuminati, hefur rænt fjórum kardínálum. Langdon fær sér til aðstoðar vísindakonuna Vittoru Vetra og í sameiningu fylgja þau eftir fornum táknum á leið sinni um katakombur, dómkirkjur, innsiglaðar grafhvelfingar og fleiri dularfulla staði. Þau mega engan tíma missa eigi þeim að takast að hindra að Illuminati myrði kardínálana og sprengi Vatíkanið í loft upp.
Bönnuð innan 16 ára
Íslenskur texti
Kemur á DVD og Blu Ray