Frétt

Frétt

Bítlarnir mæta harðir í nýjasta Rock Band

-Inniheldur 45 af vinsælustu lögum Bítlanna-

-Spilaðu Bítlalögin á gítar, bassa, trommur eða syngdu með tveimur öðrum-

 

 

Rock Band Beatles er nýjasti leikurinn í hinni geysivinsælu Rock Band seríu, en hún gengur útá það að leikmenn spila á hin ýmsu hljóðfæri.  Í Rock Band settinu eru trommur, gítar, bassi og hljóðnemi fyrir sönginn.  Leikurinn kemur út á PS3 og Xbox 360 í næstu viku.

 

 

Nú hefur stærsta hljómsveit sögunnar ákveðið að setja tónlist sína í tölvuleik með hjálp Rock Band.  Leikurinn er gerður með fullri samvinnu hinna eftirlifandi Bítla og fjölskyldum Lennon og Harrison.

 

 

Leikurinn inniheldur gagnvirka ferð í gegnum feril Bítlanna og inniheldur leikurinn ekki aðeins þeirra frægustu lög, heldur einnig fræga staði sem þeir spiluðu á og eru þar á meðal hinn þekkti Cavern klúbbur, Abbey Road stúdíóið og fleiri staðir. 

 

 

Spilun Rock Band Beatles er svipuð og í Rock Band 2, þar sem leikmenn fara í hlutverk hljómsveitarmeðlima með því að spila á gítar, bassa, syngja (röddun í fyrsta skipti í leiknum þar sem 3 geta sungið) eða spila á trommur.  Ef leikmönnum gengur vel að spila opnast svo fyrir fleiri lög og allskyns aukaefni, en meðal þess er efni sem aldrei áður hefur komið fyrir sjónir almennings.  Fyrir aðdáendur Bítlanna er þetta einhver mest spennandi upplifun sem komið hefur fram í áratugi.

 

 

Leikurinn inniheldur:

 

  • 100% alvöruefni: Eini tölvuleikurinn sem býður uppá tónlist Bítlanna, en leikurinn er gerður með aðstoð eftirlifandi meðlima og fjölskyldum hinna.
  • 45 klassísk lög: Leikurinn inniheldur upprunalegar útgáfur af 45 helstu lögum Bítlanna, allt frá I Want to Hold Your Hand að Here Comes the Sun.
  • Allir syngja saman: Í fyrsta sinn í Rock Band leik geta þrír sungið og raddað lögin..ef fólk þorir :)
  • Kepptu við Bítlana: Auk þess að geta spilað í gegnum söguþráð leiksins (ferilinn) geta leikmenn spilað öll lögin í hinum ýmsu keppnismöguleikum.
  • Grafík sem tekur á hinum ýmsu tímabilum: Frábær grafík leiksins varpar Bítlunum á skjáinn á hinum ýmsu tímabilum og er fjöldi tónleikastaða endurgerðir.

 

Skjámyndir úr leiknum má finna á :
http://www.tothegame.com/screenshots-ps3-9134-rock-band-the-beatles-for-sony-playstation-3.html

 

Myndband úr leiknum má finna á :
http://www.gametrailers.com/video/gameplay-trailer-the-beatles/52975

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli