Frétt
NÝ PS3!!
Lægra verð og gífurlegt úrval leikja á eftir að auka veg PS3 tölvunnar
Þriðjudaginn 1.september kemur út ný gerð af PlayStation 3 tölvunni, en hún mun innihalda 120GB harðan disk.
Öll innri hönnun vélarinnar hefur verið tekin algjörlega í gegn sem hefur skilað sér í léttara og minna umfangi. Miðað við fyrstu útgáfu PlayStation 3 tölvunnar er þessi um það bil 35% minni og léttari. Þar að auki eyðir nýja tölvan 30% minna rafmagni sem skilar sér t.d. í lægra viftuhljóði. Útlit tölvunnar er nettara en áður og mun höfða betur til þeirra sem eru að leita að því besta sem gerist í afþreyingakerfi heimilanna.
Á sama tíma og þessi nýja tegund er gefin út, hefur Sony Computer ákveðið að breyta vörumerki vélarinnar yfir í PS3. Nýja PS3 tölvan inniheldur eftir sem áður möguleikann á að horfa á Blu-ray kvikmyndir, spila leiki af Blu-ray diskum, auk fullkominnar netþjónustu. Harði diskur PS3 vélarinnar hefur verið stækkaður úr 80GB yfir í 120GB, sem gerir notendum kleift að vista fleiri leiki, tónlist, ljósmyndir, myndbönd og fleira.
Síðan PS3 tölvan kom út í mars 2007 hafa verið gefnir út fyrir hana meira en 1000 leikir og fer sú tala hækkandi með hverjum mánuðinum sem líður. Á næstunni koma út titlar á borð við Uncharted 2: Among Thieves, EyePet, Ratchet & Clank: A Crack in Time, Heavy Rain, God of War 3, MAG, ModNation Racer, Gran Turismo 5 og fleiri.
Nýja PS3 tölvan inniheldur einnig:
PS3 kerfisuppfærslu 3.00
Á sama tíma og nýja PS3 vélin kemur á markað, mun kerfi vélarinnar verða uppfært. Þessi uppfærsla bætir við fjölda nýjunga sem gerir kerfið notendavænna. Meðal þessara nýjunga er „What‘s New“ skjámynd, þar sem notendur geta séð helstu uppfærslur sem komið hafa í PlayStation búðinni, auk þess geta notendur séð þarna hvaða leiki þeir hafa nýlega verið að spila. PS3 tölvan mun halda áfram að þróast í gegnum þessar kerfisuppfærslur.
BRAVIA Synch möguleikinn
Nýja PS3 vélin kemur með svokölluðum BRAVIA Synch möguleika, en hann virkar þannig að ef PS3 tölvan er tengd við BRAVIA sjónvarp frá Sony með HDMI kapli, þá geta notendur stýrt valmynd PS3 tölvunnar með sjónvarpsfjarstýringunni. Einnig er hægt að stilla vélina þannig að þegar slökkt er á sjónvarpinu, þá slökknar á tölvunni.
Að setja inn önnur stýrikerfi verður ekki mögulegt
Nýja PS3 tölvan mun einbeita sér að færa notendum það besta í leikjum og annarri afþreyingu og mun sá möguleiki að setja inn önnur stýrikerfi því vera tekinn út.
Nýja PS3 tölvan kemur í verslanir á Íslandi, þriðjudaginn 1.september.