Frétt

Frétt

BATMAN: ARKHAM ASYLUM™ ER KOMINN ÚT!

Nýjasta ævintýri Batman er mætt í verslanir á
PLAYSTATION®3 og Xbox 360®
Batman: Arkham Asylum™, sem framleiddur er af Eidos Inc. og Warner Bros. Interactive Entertainment, er nú fáanlegur í verslunum á PLAYSTATION®3 og Xbox 360®.  Leikurinn er gerður af Rocksteady Studios og byggir á Batman hasarmyndablöðunum.  Batman: Arkham Asylum býður leikmönnum uppá fjölbreytta spilun sem setur tölvuleiki á næsta stig, en leikurinn er bland af hasar, ævintýri og ofurhetjulátum.  Sögusviðið er Arkham geðsjúkrahælið sem er dimmur og drungalegur staður, uppfullur af spennuþrungnu andrúmslofti.

 

Í Batman: Arkham Asylum, lendir Batman í gildru Jókersins og festist inná geðsjúkrahælinu Arkham, en það vistar geðsjúka glæpamenn Gothamborgar.  Til að skapa réttu stemminguna réðu framleiðendur leiksins Mark Hamill til að tala fyrir Jókerinn og Kevin Conroy talar fyrir Batman.

 

Batman: Arkham Asylum inniheldur frumsamda sögu, skrifaða af Paul Dini, sem hefur unnið fimm sinnum til Emmy verðlauna, en hann skrifaði meðal annars fyrstu þáttaröðina af Lost og Batman: The Animated Series.  Leikmenn þurfa að nota skuggann til að fela sig og valda ótta meðal óvina sinna, en þeirra á meðal eru Jókerinn, Harley Quinn, Bane, Killer Croc, Poison Ivy og Scarecrow, en allir þessir höfðingjar hafa yfirtekið geðveikrahælið.

 

PLAYSTATION3 eigendur leiksins Batman: Arkham Asylum geta spilað sem Jókerinn á átta sérstökum borðum leiksins. 

 

Þegar hefur leikurinn fengið frábæra dóma en meðal þeirra eru :

• IGN: 9.3 out of 10
• 1up.com’s: A-
• GamesRadar UK: 9 out of 10
• GameTrailers: 9 out of 10
• Team Xbox: 9.1 out of 10
• WonderwallWeb: 9.5 out of 10
• Eurogamer: 9 out of 10
• Computer & Video Games (UK): 9.2 out of 10
• Play.tm: 94 out of 100
• PlayStation: The Official Magazine (US): 5 out of 5
• Game Informer (US): 9.5 out of 10
• PSM3 Magazine (UK): 92 out of 100
• Official Xbox Magazine (UK): 9 out of 10
• GamesMaster (UK): 96 out of 100
• Xbox World 360 Magazine (UK): 95 out of 100
• Focus (UK): 5 out of 5
• Total Film (UK): 5 out of 5
• The Sunday Times: 5 out of 5
• Jeux Video Magazine (France): 19 out of 20
• Official PlayStation Magazine (France): 19 out of 20
• Official Xbox Magazine (France): 19 out of 20
• PSM3 (France): 19 out of 20
• Console.Plus (Germany): 91 out of 100
• Console.AT (Germany): 91 out of 100
• M!Games (Germany): 90 out of 100
• Play3 (Germany): 90 out of 100
• PS3M (Germany): 9 out of 10
• 360 Live (Germany): 9 out of 10
• GamesTM (Germany): 9 out of 10
• Pelaaja (Finland): 10 out of 10

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli